Virði skráðra félaga í Kauphöllinni lækkað um 254 milljarða króna á tveimur mánuðum

Það sem af er ári hefur Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækkað um 28,3 pró­sent. Hún hækk­aði um rúm­lega 20 pró­sent árið 2020 og 33 pró­sent í fyrra. Leið­rétt­ing er að eiga sér stað á virði skráðra félaga.

Þrjú félög voru skráð á markað í sumar. Þeirra stærst er Alvotech, sem var skráð á First North markaðinn í júní. Hér sést Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, hringja inn fyrstu viðskipti með bréfin.
Þrjú félög voru skráð á markað í sumar. Þeirra stærst er Alvotech, sem var skráð á First North mark­að­inn í júní. Hér sést Róbert Wessman, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður félags­ins, hringja inn fyrstu við­skipti með bréfin. Mynd: Aðsend

Þrátt fyrir að Ísland hafi verið fært upp í flokk nýmark­aðs­ríkja hjá vísi­tölu­fyr­ir­tæk­inu FTSE Russel í síð­asta mán­uði, sem von­ast var til að greiða myndi fyrir inn­flæði erlends fjár­magns inn í íslenskt efna­hags­líf og styðja við fjár­mögn­un­ar­mögu­leika skráðra fyr­ir­tækja, lækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands um 8,9 pró­sent í sept­em­ber. Öll félög á Aðal­mark­aði nema tvö lækk­uðu í verði.

Þetta var annar mán­uð­ur­inn í röð sem vísi­talan lækkað umtals­vert, eftir skamm­vinnar hækk­anir í sumar. Alls hefur þeirra þeirra 29 félaga sem skráð eru á Aðal­markað og First North-mark­að­inn lækkað um 254 millj­arða króna á tveimur mán­uðum.

Miklar sveiflur það sem af er ári

Heild­ar­mark­aðsvirði hluta­bréfa skráðra félaga í Kaup­höll Íslands lækk­aði umtals­vert á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins. Frá ára­mótum og út maí­mánuð lækk­aði virði þeirra um 358 millj­arða króna, niður í 2.198 millj­arða króna. Í maí­mán­uði einum saman lækk­aði það um 243 millj­arða króna, eða um tíu pró­sent. Sú lækkun sem varð á úrvals­vísi­töl­unni, sem mælir gengi þeirra tíu skráðu félaga sem eru með mesta selj­an­leika hverju sinni, í þeim mán­uði, var mesta lækkun sem orðið hefur innan mán­aðar á vísi­töl­unni síðan í maí 2010, eða í tólf ár.

Í júní voru þrjú félög skráð í Kaup­höll­ina. Ölgerðin og Nova voru skráð á Aðal­markað og Alvotech á First North mark­að­inn sam­hliða skrán­ingu í Banda­ríkj­un­um.

[adspot]Í kjöl­farið hækk­aði úrvals­vísi­talan tvo mán­uði í röð og í lok júlí var sam­an­lagt virði þeirra 29 félaga, að við­bættu virði þeirra þriggja sem bætt­ust við í sumar, alls 2.620 millj­arðar króna.

Síðustu tvo mán­uði hefur vísi­talan hins vegar lækkað skarpt á ný, um 5,5 pró­sent í ágúst og um 8,9 pró­sent í síð­asta mán­uði. Heild­ar­virði skráðra félaga var 2.366 millj­arðar króna í lok síð­ustu viku og hafði þá, líkt og áður sagði, lækkað um 254 millj­arða króna á tveimur mán­uðum.

Ef sam­an­lagt mark­aðsvirði Ölgerð­ar­innar, Nova og sér­stak­lega Alvotech, sem alls er 301,8 millj­arðar króna, er dregið frá er sam­an­lagt virði þeirra 26 félaga sem voru skráð um síð­ustu ára­mót lækkað um 491,8 millj­arða króna. Þar munar lang­mest um fallandi gengi Marel, stærsta félags­ins í íslensku Kaup­höll­inni, en gengi þess hefur lækkað um 49,5 pró­sent það sem af er ári eða um 343,6 millj­arða króna.

Leiðrétting að eiga sér stað

Á árinu 2020 hækk­­aði úrvals­­vísi­talan um 20,5 pró­­sent og heild­­ar­­vísi­tala hluta­bréfa um 24,3 pró­­sent. Mark­aðsvirði þeirra 23 félaga sem skráð voru á mark­að­ina tvo á því ári hækk­­aði um 312 millj­­arða króna á því ári, eða um 24 pró­­sent. Í fyrra gekk enn bet­­ur. Bréf í öllum félögum á aðal­­­mark­aði, og öllu nema einu á First North, hækk­­uðu. Alls hækk­­aði úrvals­­vísi­talan um 33 pró­­sent og heild­­ar­­vísi­tala hluta­bréfa um 40,2 pró­­sent. Þau tvö félög sem hækk­­uðu mest í virði, Arion banki og Eim­­skip, tvö­­­föld­uðu mark­aðsvirði sitt.

Þetta leiddi meðal ann­ars til þess að fjár­magnstekjur stórjuk­ust. Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­­­arð króna í fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur í fyrra. Þar af var efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­­­skyld­­­­­­ur, með tæp­­­­­­lega 147 millj­­­­­­arða króna í fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­­asta ári. Heild­­­­­­ar­fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­­­uðu um 57 pró­­­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­­­arðar króna á árinu 2021.

[adspot]Þær hækk­anir áttu rætur sínar að rekja í aðgerðum stjórn­valda og Seðla­banka Íslands, sem liðk­uðu mjög fyrir flæði fjár­magns inn á eign­ar­mark­aði á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Seðla­bank­inn lækk­aði til að mynda stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent og afnam um tíma hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka, sem jók útlána­getu banka um mörg hund­ruð millj­arða króna. Það svig­rúm nýttu þeir að mestu til að lána í hús­næð­is­kaup, og sam­hliða blása upp hús­næð­is­bólu, en líka til að lána fyrir hluta­bréfa­kaupum.

Í ár hefur úrvals­vísi­talan hins vegar lækkað um 28,3 pró­sent það sem af er ári.

Það er því eiga sér stað leið­rétt­ing á þeim miklu hækk­unum sem urðu á hluta­bréfum, jafnt hér inn­an­lands sem erlendis, á árunum 2020 og 2021.

Fjárfestar leysa út peninga úr sjóðum

Þessi þróun hefur haft áhrif víða. Breyttar aðstæður í efna­hags­líf­inu hafa meðal ann­ars leitt til þess að ýmsir fjár­festar hafa dregið fé sitt úr úr inn­lendum verð­bréfa­sjóðum, bæði þeim sem fjár­festa í skulda­bréfum og hluta­bréfum. Alls hafa fjár­festar keypt hlut­deild­ar­skír­teini í slíkum sjóðum fyrir 321 millj­arða króna á fyrstu átta mán­uðum árs­ins en leyst út 412 millj­arða króna. Inn­lausnir eru því 91 millj­arði króna meiri en sala á hlut­deild­ar­skír­teinum.

Þegar horft er ein­vörð­ungu á hluta­bréfa­sjóði þá hafa þeir flestir skilað afar nei­kvæðri afkomu það sem af er ári. Þeir sem eiga í sjóð­unum þurfa samt sem áður að greiða þókn­anir til þeirra, sem í flestum til­fellum eru hlut­falls­lega hærri en gengur og ger­ist alþjóð­lega. Ýmsir við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði segja að þessi staða sé að valda kergju víða sem gæti valdið því að fleiri losi sig út úr sjóð­unum í nán­ustu fram­tíð.

Þegar eig­endur hlut­deild­ar­skír­teina í öllum sjóðum, jafnt skulda­bréfa- og hluta­bréfa­sjóðum, eru skoð­aðir þá kemur í ljós að það eru tveir hópar eig­enda sem hafa bætt við sig hlut­deild­ar­skír­teinum og hluta­bréfum í verð­bréfa­sjóðum umfram aðra hópa. Þar ber fyrst að nefna fjár­mála­fyr­ir­tæki sem áttu 539,6 millj­arða króna í íslenskum verð­bréfa­sjóðum í lok ágúst. Það er 24,6 millj­örðum krónum meira en þeir áttu í lok jan­úar, en bankar eru eig­endur stærstu sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækja lands­ins. Líf­eyr­is­sjóðir hafa hlut­falls­lega bætt mestu við sig og áttu hlut­deild­ars­kirteini í íslenskum sjóðum fyrir 293,6 millj­arða króna í lok ágúst. Það er 26,8 millj­örðum krónum meira en þeir áttu í jan­úar.

Á sama tíma hafa atvinnu­fyr­ir­tæki og heim­ili lands­ins minnkað eignir sínar í sjóð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár