Kvenkyns forstjórar (forstýrur) á íslenskum kauphallar markaði geta aðeins stofnað bridge klúbb með því að bjóða kvenkyns stjórnar formönnum á markaðnum í klúbbinn. Þessi hópur forystu kvenna hefur myndast á frekar skömmum tíma, eða á um 2,5 árum.
Þrjár konur eru í dag forstjórar hjá skráðu félagi á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands:
- Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka.
- Margrét Tryggvadóttir, forstjóri NOVA.
- Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festar.
Þá eru tvær konur stjórnarformenn meðal fyrirtækja á Aðalmarkaði:
- Liv Bergþórsdóttir, stjórnarformaður Iceland Seafood International.
- Petrea I. Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar.
[links]Birna Einarsdóttir hefur verið bankastjóri Íslandsbanka frá 2008 og var bankinn skráður á markað í júní 2021. Margrét Tryggvadóttir tók við sem forstjóri NOVA (eða skemmtanastjóri eins og hún kallar sig) á árinu 2018, og voru hlutabréf NOVA tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í júní 2022. Þá var Ásta Fjeldsted ráðin forstjóri Festar 7. september sl. Hvað varðar stjórnarformenn, þá tók Liv Bergþórsdóttir við stjórnarformennsku Iceland Seafood í mars 2020, en félagið var skráð á Aðalmarkað í október 2019. Þá var Petrea I. Guðmundsdóttir kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi félagsins 31. ágúst sl.
[adspot]Mynd 1 sýnir hlutföll kvenna í áhrifastöðum meðal fyrirtækja sem skráð hafa verið á Aðalmarkað Kauphallar Íslands hverju sinni frá árinu 2006. Félögum fækkaði töluvert við hrun íslenska fjármálakerfisins 2008, og voru aðeins fjögur til fimm félög skráð á Aðalmarkað á árinu 2009-2011. Á árinu 2013 voru félögin orðin 14, og eru í dag 22 félög skráð á Aðalmarkað íslensku kauphallarinnar.

Frá því lög um 40% kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja tóku gildi á Íslandi á árinu 2013, hefur meðaltals hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum aukist frá því að vera 18,5% í 26,67% í september 2022. Hlutfall kvenkyns stjórnarformanna jókst eftir hrun (ljósblá lína á grafi) og var hlutfallið hæst 6/16 á árinu 2016, eða 37,5%. Hefur hlutfallið minnkað með hverju árinu frá þeim tíma, en hækkaði aftur í lok ágúst sl. og eru þær nú tvær. Þá hefur að meðaltali hallað á hlut kvenna í framkvæmdastjórnum á s.l. ári, þrátt fyrir að kvenkyns forstjórum hafi fjölgað á árinu 2022, eða frá því að vera ein í þrjár.
Mynd 1 sýnir hvernig vísitala GemmaQ, sem reiknar og sýnir kynjajafnvægi í áhrifastöðum á kauphallar mörkuðum um heim, breytist eftir hlutfalli kvenna í áhrifastöðum. Myndin sýnir þróun GemmaQ á skalanum 0-5 á tímabilinu í stað hefðbundins 0-10 GemmaQ skala, eins og hann birtist á Keldunni og Kodiak fyrir íslenskan markað.

Mynd 2 sýnir þróun vísitölu GemmaQ (appelsínugul lína) frá árinu 2007 til 2022. Einkunnir eru gefnar á skalanum 0-10, þar sem 10 er hæsta einkunnin, miðað við hlutfall kvenna í framkvæmdastjórn og stjórn félagsins. Vísitalan tekur til greina bæði kyn forstjóra og stjórnarformanns - sem reiknast jafnframt inn í einkunn félags þegar kona gegnir stöðunni, og breytist þannig eftir hlutfalli kvenna í fyrrnefndum áhrifastöðum. GemmaQ byggir á rauntíma upplýsingum og horfir til kynvitundar fólks, en eins og er (svo vitað sé) þá eru aðeins einstaklingar sem skilgreina sig sem karl eða kona í fyrrnefndum áhrifastöðum.
Vísitala GemmaQ fyrir íslenska markaðinn er í dag 7,11 og hefur vaxið frá því að vera 3,0 frá árinu 2007. Vísitalan hækkaði á árinu 2010 þegar Alþingi samþykkti lög um kynjakvóta á stjórnir - sem tóku gildi 2013, og urðu kynjahlutföllin jafnari með tímanum. Sum þjóðríki hafa brugðið til þess ráðs að innleiða einnig kynjakvóta á framkvæmdastjórnir fyrirtækja til að knýja fram hraðar breytingar. Önnur þjóðríki treysta á að markaðurinn muni leiðrétta sig með því að færa fjármagnið í átt að fyrirtækjum sem hafa jafnrétti og fjölbreytileika að leiðarljósi. Ef fram heldur sem horfir á íslenskum markaði þá næst kynjajafnvægi meðal framkvæmdastjórna á skráðum markaði á árinu 2042.
Það er eftir tuttugu ár.
[box]Ef við viljum ná kynjajafnvægi á kauphallar markaði áður en nýfædd börn dagsins í dag útskrifast úr menntaskóla, þá þurfum við að spyrja okkur:
- Hvað getum við gert til að fjölga forystu konum á íslenskum kauphallar markaði sem fyrst?
- Hvernig stækkum við hópinn frá því að vera rétt tæplega bridge klúbbur í dag?
Kynjakvótar eða lagabreytingar eru ekki endilega svarið.
Almenningur, fjárfestar og þátttakendur á markaði geta haft áhrif með peningaveskinu og fótum sínum. Við getum fært fjármagn okkar og viðskipti í átt að jafnréttissinnuðum fyrirtækjum. Þá geta stofnanafjárfestar eins og lífeyrissjóðir líka sett sér skýr viðmið og markmið um að jafna kynjahlutföllin á markaði og haft bein áhrif með því að fjárfesta með kynjagleraugum.
Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri GemmaQ.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir