Markaðsvirði Alvotech jókst um 68 milljarða króna á tveimur dögum

Í des­em­ber var til­kynnt um for­stjóra­skipti hjá Alvotech og að lyf félags­ins væri komið í sölu í 16 Evr­ópu­löndum og Kanada. Alvotech, sem tap­aði 28 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, var svo fært á Aðal­mark­að­inn í vik­unni.

Róbert Wessman, verðandi forstjóri og stjórnarformaður Alvotech, og Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Róbert Wessman, verð­andi for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alvotech, og Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands. Mynd: Aðsend

Mark­aðsvirði Alvotech jókst um 68 millj­arða króna á tveimur dögum í lok lið­innar viku, eftir að hluta­bréf félags­ins voru færð af First North mark­aðnum yfir á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Í lok dags 7. des­em­ber var mark­aðsvirði Alvotech um 285 millj­arðar króna en við lok við­skipta á föstu­dag var það komið í 353 millj­arða króna.

Um er að ræða næstum 24 pró­sent hækkun á mark­aðsvirði félags­ins á 48 tímum, en það var fyrst skráð á First North mark­að­inn í sumar og hafði fallið skarpt í verði á þeim mán­uðum sem liðnir voru frá skrán­ingu. Þrátt fyrir hina miklu hækkun á síð­ustu dögum er mark­aðsvirði Alvotech enn undir því gengið sem var á bréfum þess þegar þau voru fyrst tekin til við­skipta á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði síð­ari hluta júní­mán­aðar. Þar munar þó ein­ungis 3,9 pró­sentum eins og er.

[adspot]Alvotech er líka skráð á markað í Banda­ríkj­unum og er eina íslenska félagið sem nokkru sinni hefur verið skráð bæði þar og hér.

Mikið tap en vænta hagnaðar á næsta ári

Alvotech er líf­tækni­fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að þróun og fram­leiðslu líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja fyrir sjúk­linga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leið­andi fyr­ir­tæki á sviði líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja.

Félagið setti á þessu ári á markað sam­heita­lyfið Hukyndra sem fram­leitt er í lyfja­verk­smiðju félags­ins í Vatns­mýr­inni. Um er að ræða fyrsta lyf Alvotech á mark­aði. Þann 7. des­em­ber var til­kynnt um að lyfið væri komið í sölu í 16 Evr­ópu­löndum og í Kanada.

Skömmu áður, 1. des­em­ber, var greint frá því að Mark Levick, for­stjóri félags­ins, hefði ákveðið að biðj­ast lausnar og að Róbert Wessman, starf­andi stjórn­ar­for­maður og stofn­andi Alvotech, muni taka við for­stjóra­starf­inu. Róbert verður því bæði stjórn­ar­for­maður og for­stjóri.

Alvogen tap­aði 28 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Tekjur félags­ins juk­ust hins vegar mikið, úr 291 millj­ónum króna á sama tíma­bili í fyrra í 8,7 millj­arða króna. Róbert Wessmann sagði við Frétta­vakt­ina á Hring­braut í vik­unni að áætl­anir geri ráð fyrir að hagn­aður verið af rekstr­inum eftir mitt næsta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár