Virði Alvotech aukist 142 milljarða á 16 dögum – Félagið orðið verðmætast í Kauphöllinni

Í kjöl­far þess að Alvotech var skráð á First North mark­að­inn í sumar hríð­féll virði félags­ins. Eftir að félagið færði sig yfir á Aðal­mark­að­inn hefur það hins vegar tekið nán­ast for­dæma­laust stökk upp á við. Virðið jókst um 50 pró­sent á 16 dögum.

Róbert Wessman er forstjóri Alvogen og Alvotech.
Róbert Wessman er for­stjóri Alvogen og Alvotech. Mynd: Aðsend

Mark­aðsvirði Alvotech hefur auk­ist um 142 millj­arða króna á rétt rúmum tveimur vikum, eftir að hluta­bréf félags­ins voru færð af First North mark­aðnum yfir á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Í lok dags 7. des­em­ber var mark­aðsvirði Alvotech um 285 millj­arðar króna en við lok við­skipta í gær var það komið í 427 millj­arða króna. Það þýðir að mark­aðsvirði Alvotech hefur auk­ist um 50 pró­sent á 16 dögum.

Það gerir Alvotech að verð­mætasta fyr­ir­tæk­inu í Kauphöll Íslands, en á þessum dögum tók það fram úr Marel sem haldið hefur þeirri stöðu um ára­bil. Mark­aðsvirði Marel, sem hefur lækkað um tæp­lega 45 pró­sent það sem af er árinu 2022, var 370 millj­arðar króna á föstu­dag.

Alvotech var fyrst skráð á First North mark­að­inn í sumar og hafði fallið skarpt í verði á þeim mán­uðum sem liðnir voru frá skrán­ingu. Þær miklu breyt­ingar sem orðið hafa á síð­ustu dögum hafa gert það að verkum aðgengi bréf­anna er nú komið 16,4 pró­sent yfir skrán­ing­ar­gengi.

Alvotech er líka skráð á markað í Banda­ríkj­unum og er eina íslenska félagið sem nokkru sinni hefur verið skráð bæði þar og hér.

Eru að koma lyfjum á markað

Alvotech er líf­tækni­fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að þróun og fram­leiðslu líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja fyrir sjúk­linga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leið­andi fyr­ir­tæki á sviði líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja.

Félagið setti á þessu ári á markað sam­heita­lyfið Hukyndra sem fram­leitt er í lyfja­verk­smiðju félags­ins í Vatns­­­mýr­inni. Um er að ræða fyrsta lyf Alvotech á mark­aði. Þann 7. des­em­ber var til­kynnt um að lyfið væri komið í sölu í 16 Evr­ópu­löndum og í Kanada.

[adspot]Fyrir rúmri viku síðan var greint frá því að Alvotech hefði gengið frá fjár­mögnun að fjár­hæð um 8,5 millj­arðar króna, miðað við núver­andi gengi Banda­ríkja­dals, í formi víkj­andi skulda­bréfa með breytirétti í almenn hluta­bréf í Alvotech. Eigendur skulda­bréf­anna hafa rétt til þess að breyta upp­runa­legum höf­uð­stól auk áfall­inna vaxta og ávöxt­unar að hluta eða öllu leyti í almenn hluta­bréf í Alvotech á föstu gengi, sem er tíu Banda­ríkja­dalir á hlut. Það er lægra verð en gengi bréf­anna var í Kaup­höll­inni í New York við lok við­skipta á fimmtu­dag. Breytirétt­inn má nýta að hluta eða öllu leyti þann 31. des­em­ber 2023 eða 30. júní 2024.

Á fimmtu­dag, 22. des­em­ber, var svo greint frá því að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefði lokið skoðun á umsókn um mark­aðs­leyfi fyrir AVT02, sem er líf­tækni­lyfja­hlið­stæða gigtar- og húð­sjúk­dóma­lyfs­ins Humira, og stað­fest að fram­lögð gögn sýni að kröfur um útskipti­leika séu upp­fylltar. Humira er sölu­hæsta lyf heims og selst fyrir tæp­lega 2.900 millj­arða króna á ári, en um 85 pró­sent söl­unnar er í Banda­ríkj­unum.

Veiting mark­aðs­leyfis í Banda­ríkj­unum er nú háð full­nægj­andi nið­ur­stöðu kom­andi end­ur­út­tektar á fram­leiðslu­að­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík sem áætlað er að fari fram á fyrsta fjórð­ungi 2023. Umsókn­ina um mark­aðs­leyfi á að afgreiða í síð­asta lagi 13. apríl næst­kom­andi.

Í kjöl­far þess­ara tíð­inda hækk­uðu hluta­bréf í Alvotech um 30 pró­sent á einum degi.

Hafa tapað miklu en tekjur að aukast

Þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Mark Levick, for­stjóri félags­ins, hefði ákveðið að biðj­ast lausnar og að Róbert Wessman, starf­andi stjórn­ar­for­maður og stofn­andi Alvotech, muni taka við for­stjóra­starf­inu á nýju ári. Róbert verður því bæði stjórn­ar­for­maður og for­stjóri.

Alvogen tap­aði 28 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Tekjur félags­ins juk­ust hins vegar mik­ið, úr 291 millj­ónum króna á sama tíma­bili í fyrra í 8,7 millj­arða króna. Róbert Wessman sagði við Frétta­vakt­ina á Hring­braut fyrr í þessum mán­uði að áætl­anir geri ráð fyrir að hagn­aður verið af rekstr­inum eftir mitt næsta ár.

Flókið er að átta sig á end­an­legum eig­enda­hópi Alvotech eins og stendur. Listi yfir hlut­hafa er ekki aðgengi­legur á heima­síðu félags­ins né í gögnum sem Kauphöll Íslands birtir. Fyrir liggur þó að við skrán­ingu á First North mark­að­inn í sumar var fjár­fest­inga­fé­lagið Aztiq, sem er að stórum hluta í eigu Róberts , með rúm­lega 40 pró­senta hlut. Þar á eftir kom Alvogen, syst­ur­fé­lag Alvotech, með um 30 pró­sent, en Róbert á um þriðj­ung í því félagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár