Markaðsvirði veðsettra hlutabréfa lækkaði um 86 milljarða á hálfu ári

Virði þeirra hluta­bréfa sem veð­sett eru fyrir lánum hefur lækkað um 29,4 pró­sent síðan í lok mars. Um er að ræða lang­skörp­ustu lækkun á sex mán­aða tíma­bili frá því að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn var end­ur­reistur eftir hrun.

Mark­aðsvirði þeirra hluta­bréfa í Kaup­höll Íslands sem veð­sett eru með beinum hætti hefur lækkað um 86,3 millj­arða króna frá því í lok mars­mán­aðar. Þá var það 293,7 millj­arðar króna og hafði aldrei verið hærra frá því að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn var end­ur­reistur eftir banka­hrun.

Í lok sept­em­ber var það hins vegar komið niður í 207,4 millj­arða króna. Virði veð­settra bréfa hafði því lækkað um 29,4 pró­sent á hálfu ári. Um er að ræða lang­skörp­ustu lækkun á sex mán­aða tíma­bili frá því að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn var end­ur­reistur eftir hrun.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina.

Nasdaq Iceland birtir árs­fjórð­ungs­lega upp­lýs­ingar um heild­ar­veð­setn­ingu á þeim hluta­bréfum sem skráð eru á mörk­uðum Nasdaq Iceland og eru jafn­framt raf­rænt skráðir hjá Nasdaq verð­bréfa­mið­stöð. Nánar til­tekið er um að ræða upp­lýs­ingar um með­al­veð­setn­ingu allra félaga á hluta­bréfa­mörk­uðum Nasdaq Iceland, Aðal­mark­aði og Nasdaq First North, reiknað út frá vægi hvers og eins félags.

Upp­lýs­ingar um veð­setn­ingu geta veitt ákveðnar vís­bend­ingar um umfang skuld­setn­ingar á hluta­bréfa­mark­aði, það er hversu mikið fjár­festar hafa fengið að láni til að kaupa í skráðum félög­um. Gögnin sýna hins vegar ein­ungis beina veð­setn­ingu, en taka ekki til­lit til þess að lán­veit­andi geti verið með veð í öllum eignum lán­tak­anda, þar með talið hluta­bréf­um, né inni­halda þau upp­lýs­ingar um óbeinar veð­tökur með gerð fram­virkra samn­inga.

[adspot]Í ljósi þess að umtals­verðir hlutir í skráðum félögum eru skráðir á fjár­mála­fyr­ir­tæki vegna þess að gerðir hafa verið fram­virkir samn­ingar við við­skipta­vini sem eru í reynd þeir sem taka áhættu af við­skipt­un­um, liggur fyrir að veð­setn­ing hluta­bréfa er í heild mun meiri en tölur Nasdaq Iceland gefa til kynna. Þá ber að taka til­lit til þess að líf­eyr­is­sjóðir eiga beint um þriðj­ung allra hluta­bréfa skráðra félaga og umtals­vert til við­bótar óbeint í gegnum verð­bréfa­sjóði. Bein eign líf­eyr­is­sjóða er með öllu óskuld­sett.

Mikil veð­­­setn­ing á árunum fyrir hrun

Veð­­­setn­ing hluta­bréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal ann­­­ars til mikla kerf­is­lega áhættu hér­­­­­lend­­­is. Stór fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­fé­lög, sem áttu meðal ann­­­ars stóra hluti í bönk­­­um, fengu þá lán­aðar háar fjár­­­hæðir með veði í bréf­um, til að kaupa önnur hluta­bréf. Þegar eitt­hvað súrn­aði varð keðju­verkun vegna kross­­­eign­­­ar­halds.

Auk þess lán­uðu íslenskir bankar fyrir hluta­bréfa­­­kaupum í sjálfum sér með veði í bréf­unum sjálf­­­um. Með því var öll áhættan hjá bönk­­­unum sjálfum ef illa færi. Til­­­­­gang­­­ur­inn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðli­­­leg eft­ir­­­spurn var eft­ir, og þar með til að hafa áhrif á eðli­­­lega verð­­­mynd­un. Hæst­i­­­réttur Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönk­­­unum þremur að þetta atferli hafi falið í sér mark­aðs­mis­­­­not­k­un.

Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með laga­breyt­ingum á und­an­­­förnum árum.

Bólu­merki

Hluta­bréfa­verð hækk­aði skarpt á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði af fullum krafti. Á árinu 2020 hækk­­aði úrvals­­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem mælir þróun á virði bréfa þeirra tíu félaga sem eru með mestan selj­an­leika hverju sinni, um 20,5 pró­­sent og heild­­ar­­vísi­tala hluta­bréfa um 24,3 pró­­sent.

[links]Í fyrra gekk enn bet­­ur. Bréf í öllum félögum á aðal­­­mark­aði, og öllu nema einu á First North, hækk­­uðu. Alls hækk­­aði úrvals­­vísi­talan um 33 pró­­sent og heild­­ar­­vísi­tala hluta­bréfa um 40,2 pró­­sent. Þau tvö félög sem hækk­­uðu mest í virði, Arion banki og Eim­­skip, tvö­­­föld­uðu mark­aðsvirði sitt.

Sam­hliða þessu jókst mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa mik­ið. Frá mars­mán­uði 2020 og fram til síð­ustu ára­móta jókst það um rúm­lega 107 millj­arða króna, eða 65 pró­sent, og var 273 millj­arðar króna. Vert er að taka fram að nýsk­rán­ingar áttu sér stað í milli­tíð­inni sem útskýrir hluta hækk­un­ar­inn­ar.

Hækk­unin var drifin áfram af ódýru lánsfé og auknum sparn­aði lands­manna, en ekki und­ir­liggj­andi frammi­stöðu félag­anna á mark­aði. Því bar hún öll merki bólu. Margir bjugg­ust því við leið­rétt­ingu á virði skráðra hluta­bréfa.

Mikil lækkun það sem af er ári

Á þessu tíma­bili lækk­aði hlut­fall beinnar veð­töku mikið og var 10,67 pró­sent í lok árs í fyrra. Það hafði ekki verið lægra síðan á miðju ári 2017.

Það sem af er þessu ári hefur úrvals­vísi­talan hins vegar lækkað hratt, eða um næstum 30 pró­sent.

Í síð­asta mán­uði einum saman lækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands um 8,9 pró­sent í sept­em­ber. Öll félög á Aðal­mark­aði nema tvö lækk­uðu í verð­i.

Þetta var annar mán­uð­ur­inn í röð sem vísi­talan lækkað umtals­vert, eftir skamm­vinnar hækk­anir í sum­ar. Alls hefur þeirra þeirra 29 félaga sem skráð eru á Aðal­markað og First North-­mark­að­inn lækkað um 254 millj­arða króna á tveimur mán­uð­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár