Ásta tekur við sem forstjóri Festi

Ásta Sigríður Fjeld­sted er nýr for­stjóri Festi, sem er eitt stærsta versl­unar- og þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins. Frá þessu var greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar í dag. Ásta sinnir starfi fram­kvæmda­stjóra Krón­unnar einnig þar til ráðið hefur verið í starfið

Ásta S. Fjeldsted hefur tekið við sem forstjóri Festi.
Ásta S. Fjeld­sted hefur tekið við sem for­stjóri Festi.

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur tekið við starfi for­stjóra Festi, sam­kvæt til­kynn­ingu Festi til Kaup­hall­ar­innar. Ásta hefur starfað sem for­stjóri Krón­unnar frá árinu 2020 og mun fyrst um sinn gegna því starfi áfram sam­hliða nýju starfi.

Magnús Kr. Ingason stígur niður sem for­stjóri Festi og sinnir starfi fjár­mála­stjóra áfram, en Magnús tók tíma­bundið við for­stjóra­starf­inu í sumar eftir að stjórn Festi ákvað að segja Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni upp störfum. Í fyrstu var til­kynnt um að Eggert hefði óskað sjálfur eftir starfs­lokum en síðar kom í ljós að stjórn tók ákvörðun um að segja honum upp. Í kjöl­farið var stokkað upp í stjórn Festi.

Stolt af því að fá öfluga konu til að leiða félagið

„Það er mik­ill styrkur að fá Ástu S. Fjeld­sted til að leiða það öfl­uga teymi sem hjá fyr­ir­tæk­inu starfar og móta með okkur fram­tíð­ar­stefnu þess. Framundan eru spenn­andi tímar og mikil sókn­ar­tæki­færi. Ásta hefur bæði reynslu af rekstri í smá­sölu­geir­anum eftir árin hjá Krónunni en jafn­framt alþjóð­lega reynslu í stefn­mótun og umbóta­verk­efnum fyrir stór­fyr­ir­tæki í öðrum geirum. Við erum stolt af því að fá jafn öfl­uga konu til að leiða fyr­ir­tækið,“ segir Guðjón Reyn­is­son stjórn­ar­maður í Festi í til­kynn­ingu félags­ins.

„Efst í huga mér er þakk­læti fyrir traustið, en Festi ásamt rekstr­ar­fé­lögum þess (N1 ehf., ELKO ehf., Krónan ehf., Festi fast­eignir ehf., Bakkinn vöru­hótel ehf. og N1 Rafmagn ehf.) starfar á afar spenn­andi og síkvikum mörk­uðum, sem hafa raun­veru­leg áhrif á lífs­kjör almenn­ings á Íslandi. Ábyrgð okkar sem þar störfum er því mikil og ljóst að veg­ferð félags­ins þarf að vera í stöðugri þróun. Það eru for­rétt­indi að fá að vinna áfram með öllu því öfl­uga fólki, sem starfar innan Festi og rekstr­ar­fé­lag­anna,“ segir Ásta S. Fjeld­sted nýráð­inn for­stjóri Festi í til­kynn­ingu félags­ins.

Ásta Sigríður hefur gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra Krón­unnar frá árinu 2020. Áður var hún fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands frá 2017. Ásta Sigríður starf­aði fram til þess hjá þremur alþjóð­legum fyr­ir­tækjum í meira en ára­tug: Fyrir ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrif­stofum þess í Tókýó og Kaup­manna­höfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri grein­inga- og umbreyt­inga­verk­efni. Áður starf­aði hún hjá IBM í Danmörku og stoð­tækja­fram­leið­and­anum Össuri hf., bæði í Frakk­landi og á Íslandi. Ásta Sigríður er véla­verk­fræð­ingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækni­há­skól­anum í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár