Hafa uppgötvað fjórða lekann í Eystrasalti

Gasleiðsl­urnar Nord Stream 1 og 2 í Eystra­salti leka á fjórum stöðum. Fjórði lek­inn upp­götv­að­ist á þriðju­dag en sænska strand­gæslan stað­festi til­vist hans í morgun.

Gríðarlegt uppstreymi í Eystrasalti yfir einu gati á gasleiðslunni.
Gríð­ar­legt upp­streymi í Eystra­salti yfir einu gati á gasleiðsl­unni. Mynd: EPA

Fjögur göt eru á Nord Stream 1 og 2 gasleiðsl­unum en ekki þrjú líkt og greint hafði verið frá. Sænska strand­gæslan hefur stað­fest við fjöl­miðla að fjórða gatið sé á Nord Stream 2, nýrri leiðsl­unni í Eystra­salti og sé stað­sett um það bil mitt á milli gatanna tveggja á Nord Stream 1. Afton­bla­det hefur eftir jarð­skjálfta­fræð­ingi að ekki sé úti­lokað að önnur spreng­ing hafi orðið á svæð­inu.

[adspot]

Á mánu­dag upp­götv­uð­ust þrjú göt á leiðsl­unum tveimur sem liggja milli Rúss­lands og Þýska­lands. Eitt á Nord Stream 2, suð­austan við Borg­und­ar­hólm í danskri efna­hags­lög­sögu, og tvö á Nord Stream 1 nokkuð norð­austar á svæð­inu, annað þeirra innan sænskrar lög­sögu, segir í frétt Afton­bla­det í morgun. Metangas, sem var í leiðsl­unum, lekur í miklu magni út um götin.

Tveir skjálftar mæld­ust á svæð­inu í byrjun vik­unnar og er talið að þeir séu til marks um að spreng­ing hafi orðið. Annar skjálft­inn varð kl. 2.03 aðfara­nótt mánu­dags, á sömu slóðum og göt urðu á Nord Stream 2. Skjálft­inn mæld­ist 1,8 stig. Seinni spreng­ingin sem fram kom á skjálfta­mælum varð á sömu slóðum og götin tvö mynd­uð­ust á Nord Stream 1. Hún varð kl. 7.04 á mánu­dags­morg­un­inn og mæld­ist skjálft­inn 2,3 stig. Það þýðir að spreng­ingin var fimm sinnum kraft­meiri en sú fyrri.

[links]Sjórinn ólgar undan metangas­inu sem streymir upp og talið er að götin á leiðsl­unum sem liggja á um 80 metra dýpi á hafs­botni séu tugir metrar í þver­mál. Sænska strand­gæslan stað­festir við Afton­bla­det að fjórði svelg­ur­inn sem sjá­ist sé um 200 metrar í þver­mál.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um Nord Stream 1 og 2 í frétta­skýr­ingu í gær. Hana er hægt að lesa hér. Í henni er rak­inn aðdrag­andi þess að gasleiðsl­urnar miklu voru lagðar í Eystra­saltið og farið yfir kenn­ingar um að skemmd­ar­verk hafi verið unnin á þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár