Hvað gerðist eiginlega í Eystrasalti?

Allur vafi hefur nú verið tek­inn af því hvort að rúss­neskt gas muni streyma til Evrópu í vetur. Spreng­ingar sem mæld­ust á jarð­skjálfta­mælum og gerðu risa­stór göt á leiðsl­urnar í Eystra­salti hafa veitt þeim vanga­veltum náð­ar­höggið.

Gas streymir upp á yfirborðið í Eystrasalti út úr leiðslunum á hafsbotni.
Gas streymir upp á yfir­borðið í Eystra­salti út úr leiðsl­unum á hafs­botni. Mynd: EPA

Við­vör­un­ar­bjöllur hafa hringt um alla Evrópu eftir að þrjár spreng­ingar urðu í gasleiðslum í Eystra­salti. Þær höfðu kannski ryk­fallið á síð­ustu árum, þessar ímynd­uðu bjöllur, en þær hafa þó aldrei verið aftengdar með öllu enda leiðsl­urnar Nord Stream 1 og 2, sem leka nú gasi út í sjó­inn og and­rúms­loftið, verið áhyggju­efni margra lengi.

Og spreng­ing­arnar eru ekki taldar vera slys heldur skemmd­ar­verk. Á því eru ráða­menn ríkja við Eystra­saltið og fleiri að minnsta kosti á einu máli um. Stríð geisar jú í Úkraínu, stríð sem á upp­tök sín í inn­rás Rússa þar í land. Vest­ur­veldin hafa staðið með Úkra­ínu­mönnum, útvegað þeim vopn en baðað Rússa í við­skipta­bönnum.

[adspot]

Rúss­neska gasið er hins vegar trompið sem Pútín for­seti hefur veifað – án þess er von á jök­ulköldum vetri í Evrópu. Leið­togar ríkja álf­unnar kepp­ast um að reyna að aðlag­ast breyttum veru­leika, finna nýjar leiðir til orku­öfl­unar.

Eitt slíkt verk­efni, gasleiðsla frá Noregi, í gegnum Danmörk og til Póllands, var form­lega vígt af ráða­mönnum ríkj­anna þriggja í gær. Á sama degi og spreng­ingar urðu í Nord Stream.

Gæti tekið vikur að komast að götunum

Varn­ar­mála­ráð­herra Dana, Morten Bødskov, sagði í morgun að það gæti tekið nokkrar vikur að koma köf­urum niður að göt­unum á leiðsl­unum. Þær liggja á 80 metra dýpi. Svo mikið gas streymir út um þau að ekki er óhætt að fara á vett­vang fyrr. „Þetta var mjög stór spreng­ing sem átti sér stað og þetta mun taka tíma.“ Hann segir að Danir hafi engar ábend­ingar fengið um yfir­vof­andi skemmd­ar­verk en að banda­ríska leyni­þjón­ustan CIA hefði varað þýsk stjórn­völd við að hætta gæti verið á slíku.

En í ljósi þeirrar tor­tryggni sem ríkt hefur gagn­vart Rússum lengi er áhuga­vert að velta fyrir sér sögu Nord Stream-gasleiðsl­anna.

Nord Stream 1 og 2 eru leiðslur sem flytja gas frá Rúss­landi til Evrópu. Í raun er um fjórar leiðslur að ræða sem allar liggja um hafs­botn Eystra­salts­ins. Þær liggja um 1.200 kíló­metra leið, frá nágrenni St. Pét­urs­borgar í Rúss­landi til Þýska­lands. Leiðsl­urnar eru sam­settar úr hund­ruðum þús­unda röra sem hvert og eitt er 12 metrar á lengd og 1,2 metrar í þver­mál.

Svo miklar eru leiðsl­urnar að um þær geta flætt 110 millj­arða rúmmetra af gasi til Evrópu á hverju ári.

Ekki var enn búið að taka hina nýju leiðslu Nord Stream 2 í gagnið. Gas fór aðeins um Nord Stream 1. Og nú er sú leiðsla einnig orðin gas­laus.

Upphaf við­ræðna um flutn­ing gass frá Rúss­landi til Evrópu má rekja til tíunda ára­tugar síð­ustu aldar. Þá var kalda stríðið talið að baki. Rússland bjó yfir gríð­ar­legum gaslindum og Evr­ópu­ríki þurftu gas í meira mæli en þau gátu sjálf unnið.

Það var þó ekki fyrr en árið 2005 að samn­ingar um Nord Stream voru í höfn. Rúss­neska gas­fyr­ir­tækið Gazprom, sem er í rík­i­s­eigu, varð stærsti eig­andi gasleiðsl­unnar en þýsk einka­fyr­ir­tæki komu einnig að samn­ing­unum.

Sex árum síðar eða árið 2011 var gas farið að flæða frá Rúss­landi suð­vestur á bóg­inn í gegnum Nord Stream 1.

Nord Stream 2

Ekki leið á löngu þar til Gazprom viðr­aði áform um aðra leiðslu, Nord Stream 2, en þegar rúss­nesk stjórn­völd inn­lim­uðu Krím­skaga í Úkraínu árið 2014 ákváðu Evr­ópu­ríki og önnur vest­ur­veldi að setja við­skipta­hömlur á Rússland í refs­ing­ar­skyni. Evrópa var orðin mjög háð rúss­neska gas­inu, og því ljóst þá þegar að Rússar hefðu dýr­mætt tromp uppi í erminni. Og að Nord Stream 2 myndi aðeins styrkja samn­ings­stöðu þeirra. Pólsk stjórn­völd voru meðal þeirra sem vöktu athygli á þessu og vildu að var­lega yrði farið í frek­ari samn­inga um gas­kaup.

Engu að síður var gengið til samn­inga og Gazprom hóf að leggja leiðsl­una. Þrátt fyrir að efa­semdir um aukið sam­starf við Rússa að þessu leyti hafi verið vakn­aðar hjá ráða­mönnum fleiri Evr­ópu­ríkja en Póllands. Stjórn­völd í Þýska­landi voru hins vegar áfram um að verk­efnið hlyti braut­ar­gengi.

Með spreng­ing­unum í gasleiðsl­unni í Eystra­salti í gær fengu Danir hvella áminn­ingu um hversu nálægt stríðs­rekstur Rússa er í raun og veru. Nord Stream 2 liggur mjög nálægt Borg­und­ar­hólmi. Nú hefur verið rifjað upp að nokkrir danskir stjórn­mála­menn höfðu á sínum tíma lagst gegn því að rúss­neskt gas kæmi svo nálægt dönskum ströndum – myndi streyma um leiðslur á hafs­botni innan danskrar lög­sögu. Áformin voru hins vegar að lokum sam­þykkt á sínum tíma.

Síðasta rörið var skrúfað í Nord Stream 2 í fyrra. Þá var spenna í sam­skiptum Rússa og Úkraínu orðin áþreif­an­leg að nýju og tvær grímur farnar að renna á leið­toga á Vest­ur­löndum. Verið getur að þessi staða hafi verið ástæða þess að þýsk yfir­völd hik­uðu við að ljúka mati á umhverf­is­á­hrifum svo að gas gæti farið að flæða um leiðsl­una. Líkt og rakið er í fréttum danska rík­is­út­varps­ins ákváðu Þjóð­verjar svo að hafna því að leiðslan, sem var til­búin, yrði tekin í notkun að svo stöddu. Neitunin kom aðeins tveimur dögum áður en Rússar hófu inn­rás sína í Úkraínu og var hluti af við­skipta­þving­unum sem vest­ur­veldin ákváðu að beita Rússa vegna stríðs­rekstr­ar­ins.

Smám saman skrúfað fyrir

En Evrópa gat ekki verið án rúss­neska gass­ins. Það er það ódýrasta á mark­aðnum og inn­viðir allir voru til staðar. Nord Stream 1 var því ekki lokað – gasið hélt áfram að streyma um þá leiðslu þrátt fyrir athafnir Rússa í Úkraínu. Það er nefni­lega ekki ein­falt mál að finna stað­gengil þessa elds­neytis. Um 40 pró­sent af öllu gasi sem notað er í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins er unnið úr rúss­neskri jörðu.

Rússnesk stjórn­völd vissu af þessu leyni­vopni sínu. Að Evrópa myndi engj­ast um ef ekk­ert kæmi gasið. Og þess vegna skrúf­uðu þau nokkrum sinnum fyrir það í sumar. Minnkuðu fyrst flæðið niður í 60 pró­sent. Sögðu það gert vegna við­halds á gasleiðsl­unni löngu. Svo fór flæðið niður í 40 pró­sent. Þá 20 pró­sent. Og loks í síð­asta mán­uði, rétt áður en fyrstu haust­lægð­irnar skullu á, var skrúfað alveg fyrir.

Gazprom og rúss­nesk stjórn­völd hafa alfarið hafnað því að vera að nota gasið í því skyni að þvinga vest­ur­veldin til að aflétta við­skipta­bönnum. Þau hafa sagt að íhluti hafi vantað. Að ekki hafi tek­ist að ljúka hinu reglu­bundna við­haldi sem komið hefði verði að í sumar vegna þess að það vant­aði vara­hluti. Og að það vant­aði vara­hluti vegna við­skipta­þving­ana Vest­ur­landa.

Stjórn­völd í flestum Evr­ópu­ríkjum hafa blásið á þessar útskýr­ingar. Til­gang­ur­inn sé að valda skelf­ingu.

Og segja má að það hafi tek­ist. Orku­krísan sem nú geisar í álf­unni er risa­vaxið verk­efni. Orkuverð hefur hækkað svo mikið að ótt­ast er að fátækt auk­ist í álf­unni. Að fólk slig­ist undan raf­magns­reikn­ingum. Að verk­smiðjur þurfi að draga úr fram­leiðslu á nauð­synja- og neyslu­vörum.

Allt sprakk svo í loft upp í gær. Í bók­staf­legri merk­ingu. Tvö göt urðu á gasleiðsl­unum skammt undan Krist­jáns­eyju í Eystra­salti. Þótt Nord Stream 1 hafi verið lokuð var leiðslan full af jarð­gasi. Gasið getur valdið trufl­unum fyrir skip, það getur verið erfitt að sigla í gegnum svelg­inn sem það veldur. Auk þess er það heilsu­far­sógn. Bæði sigl­inga­leiðum og flug­leiðum yfir svæðið hefur því verið breytt vegna lek­ans.

[adspot]

Jarð­vís­inda­stofn­anir við Eystra­salt segja að spreng­ingar hafi vissu­lega orðið. Þær hafi komið fram á jarð­skjálfta­mælum.

Spreng­ing­arnar á leiðsl­unni voru vilja­verk, sagði Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur í gær­kvöldi. „Þetta var ekki óhapp.“

„Skemmd­ar­verk,“ var orðið sem for­sæt­is­ráð­herra Póllands not­aði. Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, sagði slíkt hið sama.

„Þetta er ekki lítil sprunga þetta er risa­stórt gat,“ sagði danski orku­mála­ráð­herr­ann.

Rússnesk stjórn­völd segja að ekki sé hægt að úti­loka skemmd­ar­verk. Þau segj­ast hins vegar ekki bera neina ábyrgð á slíku.

Gas, gas, gas

Evrópa vill ekki aðeins verða óháð rúss­nesku gasi. Hún vill verða óháð gasi almennt. Ef ná á mark­miðum sem sett hafa verið fram í lofts­lags­málum, svo að koma megi í veg fyrir ham­fara­hlýnun á jörð­inni, þarf að draga veru­lega úr og að lokum að hætta að nota gas og önnur jarð­efna­elds­neyti.

Það er því þyngra en tárum taki að gas streymi nú út úr gasleiðslum Eystra­salts­ins, í hafið og loks að stórum hluta út í and­rúms­loftið. Þetta mun hafa áhrif á umhverfið en hversu mikil er ekki gott að segja til um, jafn­vel ómögu­legt, því eng­inn veit á þess­ari stundu nákvæm­lega hversu mikið gas er að leka út. „Það eru margir óvissu­þættir en ef þessar gasleiðslur halda áfram að leka þá gætu áhrifin á umhverfið orðið gríð­ar­leg og jafn­vel for­dæma­laus,“ hefur Reuters eftir David McCabe, sér­fræð­ingi í lofts­lagi. Einn óvissu­þátt­ur­inn er sá hversu mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum sem er að finna í gas­inu örverur í Eystra­salt­inu munu binda. Gasið er að uppi­stöðu metan­gas, sem á eftir koltví­oxíði er mesti skað­valdur lofts­lags­ins og drif­kraftur lofts­lags­breyt­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár