Dómsmálaráðherra frestar frumvarpi sínu um útlendingamál til haustsins

Jón Gunn­ars­son hefur ákveðið að fresta frum­varpi sínu um útlend­inga­mál til haust­þings. Hann féllst ekki á þær breyt­ingar sem þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar kröfð­ust að gerðar yrðu á mál­inu í upp­hafi vik­unnar – og þeir ekki á gagn­til­lögur hans.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ákveðið hefur verið að fresta frek­ari umræðu um útlend­inga­mála­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra til haust­þings, en dóms­mála­ráð­herr­ann segir við RÚV að hann hafi ákveðið að fresta frum­varp­inu til þess að liðka fyrir samn­ingum um þing­lok.

Eins og Kjarninn sagði frá í upp­hafi viku lögðu þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Flokkur fólks­ins, fram ítar­legar breyt­ing­ar­til­lögur við frum­varp ráð­herra eftir að ráð­herra óskaði eftir því að fá efn­is­legar athuga­semdir sem liðkað gætu fyrir samn­ingum um frum­varpið, en sam­kvæmt frétt RÚV kom ráð­herr­ann með til­lögur á móti sem þing­flokk­arnir þrír sættu sig ekki við.[links]

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar sagði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi fyrir hádegi að rík­is­stjórnin hefði slegið á útrétta sátt­ar­hönd stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þriggja í mál­inu.

Tillögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna voru lagðar fram í kjöl­far þess að Jón leit­aði eftir sam­tali við and­stöðu­flokka á þingi um að koma frum­varp­inu í gegn og ná þannig sam­komu­lagi um þing­lok, en útlend­inga­frum­varp ráð­herr­ans hefur verið einn helsti þrösk­uld­ur­inn fyrir því að samn­ingar náist um þing­lokin, sem hafa verið áætluð sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins á morgun.

Frumvarp Jóns er einnig umdeilt innan þing­liðs rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, en þing­flokkur Vinstri grænna afgreiddi það með fyr­ir­vara og eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarnans um til­lögur stjórn­ar­and­stöð­unnar á dög­unum nefndu við­mæl­endur að það hefði meðal ann­ars verið þrýst­ingur á Jón innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks um að breyta frum­varp­inu þannig að það næði í gegn.

[adspot]

Á mánu­dag lágu fyrir þær til­lögur sem Sam­fylk­ing­in, Við­reisn og Flokkur fólks­ins sögðu að Jón þyrfti að taka til­lit til ef það ætti að verða hægt að koma frum­varp­inu í gegn og ljúka þing­störf­um. Píratar stóðu ekki að þeim til­lögum, sökum þess að þeir voru ein­fald­lega á móti þeirri aðferða­fræði að semja við Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra um nið­ur­stöðu máls­ins.

Breyt­inga­til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna voru í sex liðum og vildu flokk­arnir einnig fá til­lögur sínar og Pírata, sem vörð­uðu þann hóp flótta­fólks sem hefur ílengst hér vegna COVID-19 tak­mark­ana, felldar inn í frum­varpið.

Þær til­lög­ur, sem settar voru fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í upp­hafi mán­að­ar­ins, fólu í sér að sá dráttur sem orðið hefur á brott­flutn­ingi fólks­ins, sem kom til vegna heims­far­ald­urs, verði ekki sagður á ábyrgð umsækj­enda sjálfra. Þannig njóti þeir sömu rétt­inda og aðrir í sömu stöðu, þannig að þeir flótta­menn sem hafa dvalið hér í 12 og 18 mán­uði eftir að nið­ur­staða er komin í mál þeirra fái hér ann­ars vegar efn­is­með­ferð og hins vegar dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár