Vítalía um fráfarandi forstjóra Festi: „Ég á Eggerti mikið að þakka“

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi, var einn fárra sem hafði sam­band við Vítalíu Lazareva eftir að hún sak­aði valda­menn í við­skipta­líf­inu um kyn­ferð­is­brot. Eggert Þór mun láta af störfum hjá Festi í sumar.

Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar. Vítalía Lazareva, sem greindi frá meintu kynferðisofbeldi í byrjun janúar, m.a. af hendi Þórðar Más Jóhannssonar stjórnarformanns Festi, segist eiga Eggerti mikið að þakka.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son hættir sem for­stjóri Festi hf. í sumar. Vítalía Lazareva, sem greindi frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi í byrjun jan­úar, m.a. af hendi Þórðar Más Jóhanns­sonar stjórn­ar­for­manns Festi, seg­ist eiga Eggerti mikið að þakka. Mynd: Aðsend

„Ég á Eggerti mikið að þakka og ég vona að hann viti það,“ segir Vítalía Lazareva í færslu á Twitter. Í færsl­unni birtir hún hlekk á umfjöllun Mannlífs þar sem ýjað er að því að nokkuð óvænt tíð­indi um starfs­lok Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar, for­stjóra Festi, teng­ist frá­sögn Vítalíu af kyn­ferð­is­of­beldi í jan­úar þar sem hún sagði sig hafa orðið af hendi þriggja manna. Einn þeirra, Þórður Már Jóhann­es­son, var stjórn­ar­for­maður Festi.

Kjarn­inn fjall­aði um málið í byrjun jan­úar en Vítalía steig fram og greindi frá meintu ofbeldi í við­tali hjá Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konum þann 4. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Hún nafn­greindi ekki menn­ina í við­tal­inu en í kjöl­farið voru þeir nafn­greindir í fjöl­miðlum. Auk Þórðar var um ræða Ara Edwald, for­stjóra Ísey skyr, og Hreggvið Jónsson, stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Veritas. Í dag hafa allir þrír stigið til hliðar úr ábyrgð­ar­stöðum.

Einn fárra sem hlustaði

Í færslu sinni á Twitter dag segir Vítalía að Eggert Þór hafi verið einn fárra sem tal­aði við hana án þess að þekkja hana eftir að hún greindi frá kyn­ferð­is­of­beld­inu. Hann hafi hlustað og gefið henni tæki­færi til að segja hennar hlið þegar Þórður „var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórn­inni.“ Vítalía seg­ist eiga Eggerti mikið að þakka og vonar hún að hann viti það.

Kjarninn hóf að spyrj­ast fyrir um ásak­an­irnar í októ­ber í fyrra eftir að Vítalía birti frá­sögn á Instagram af kyn­ferð­is­of­beldi. Þar sagði hún þrjá menn hafa beitt sig ofbeldi í heitum potti og í sum­ar­bú­stað. Í frá­sögn­inni fer hún yfir aðdrag­anda þess að hún end­aði með þeim þennan dag og í lok hennar nefnir hún þá alla á nafn. Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­þjálf­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við, og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgengi­legur á Twitt­er-­síðu Vítal­íu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­miklir í sam­fé­lag­inu og allir fjöl­skyldu­menn“.

Almannatengill ráðlagði mönnunum að þegja málið af sér

Skjá­skot af frá­sögn hennar fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­miðl­um, þrátt haft hafi verið sam­band við menn­ina fjóra, meðal ann­ars frá blaða­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að það hafi verið gert að ráði almanna­teng­ils sem hafi sagt mönn­unum að segja að þetta væri kjafta­saga. Best væri að þegja málið af sér.

Kjarn­inn leit­aði svara hjá stjórn Festi strax í nóv­em­ber og spurði hvort vit­neskja væri innan stjórnar varð­andi þetta mál og hvort stjórnin hyggð­ist bregð­ast við með ein­hverjum hætti. Eftir margar ítrek­anir svar­aði Guð­jón Reyn­is­son vara­for­maður stjórnar þann 17. des­em­ber. Í svari hans sagði: „Það er rétt að umfjöll­unin sem spurt er um hefur verið til skoð­un­­ar, en við getum ekki tjáð okkur að svo stödd­u.“ Vísar hann þarna í umfjöllun Stund­ar­innar frá 17. nóv­em­ber.

Ásakanir á hendur Þórði Má ítrekað ræddar í stjórn Festi

Stjórn Festi hélt stjórn­ar­fund fimmtu­dag­inn eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum og greindi stjórnin frá því sam­dæg­urs að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­­­ar­­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur. „Stjórn féllst á erind­ið. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum upp á nýtt. Guð­jón Reyn­is­­son var kjör­inn nýr for­­maður stjórnar og Mar­grét Guð­­munds­dóttir vara­­for­­mað­­ur,“ sagði í til­­kynn­ingu frá Festi.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að ásak­anir á hendur Þórði Má hafi ítrekað verið ræddar í stjórn Festi en hann vildi ekki stíga til hliðar sem stjórn­ar­for­maður þrátt fyrir þrýst­ing þar um. Auk þess voru hlut­hafar í félag­inu í sam­bandi við stjórn­ar­menn og þrýst á aðgerð­ir, en án árang­urs.

Í til­kynn­ingu eftir stjórn­ar­fund félags­ins 6. jan­úar, tveimur dögum eftir að Vítalía greindi frá kyn­ferð­is­of­beld­inu í hlað­varp­inu Eigin Konum, greindi stjórnin frá því að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­ar­for­maður.

„Stjórn Festi for­dæmir allt ofbeldi“

Viku seinna barst Kaup­höll­inni til­kynn­ing frá Festi þar sem fram kom að fyr­ir­tækið ætl­aði að end­ur­skoða starfs­reglur. Í til­kynn­ing­unni sagði að þung­bært hefði verið að heyra um reynslu Vítalíu. „Skýr skila­boð hafa komið frá sam­fé­lag­inu um að fyr­ir­tæki sem tengj­ast slíkum málum bregð­ist fyrr við og taki á málum með skýr­ari og ákveðn­ari hætti. Stjórn Festi for­dæmir allt ofbeldi og telur mik­il­vægt að hlustað sé á þolend­ur. Það er skylda okkar að breyt­ast með sam­fé­lag­inu og í sam­ein­ingu eigum við að búa til örugg­ara umhverfi fyrir okkur öll,“ sagði meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

[links]Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag greindi Festi frá því í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar að Eggert Þór hafi sagt starfi sínu lausu frá 1. ágúst næst­kom­andi og að gert hafi verið sam­komu­lag um starfs­lok hans.

Egg­ert Þór hóf störf hjá N1 árið 2011 sem fjár­mála­stjóri og varð for­stjóri félags­ins árið 2015. N1 keypti svo gamla Festi, þ.e. ELKO, Krón­una, Festi fast­eignir og Bakk­ann vöru­hótel árið 2018 og tók nýja móð­ur­fé­lagið upp nafnið Festi. Haft er eftir Egg­ert í til­kynn­ingu að það hafi verið „stefnu­mót­andi og mik­il­væg kaup til að und­ir­búa félagið að orku­skiptum og þeim breyt­ingum sem eru að verða í okkar sam­fé­lag­i.“

„Ég hef verið láns­samur að vinna með frá­bæru sam­starfs­fólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dótt­ur­fé­lög af því sem þau er í dag. Ég mun sakna þess að vinna með þessu fólki en er einnig spenntur fyrir því sem fram­tíðin ber í skauti sér,“ er einnig haft eftir Egg­erti.

„Þetta er spill­ing og ekk­ert annað,“ segir Vítalía í færslu sinni. Sem fyrr segir deilir hún frétt Mannlífs þar sem gefið er í skyn að starfs­lok Eggerts teng­ist frá­sögn Vítalíu af kyn­ferð­is­of­beld­inu.

Vítalía hefur lagt fram kæru á hendur Þórði, Hregg­viði og Ara. „Ég ætla ekki skilja málin eftir í lausu lofti og þetta er stórt og mik­il­vægt skref í rétta átt fyrir mig. Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­in­u,“ sagði hún í sam­tali við Kjarn­ann eftir að hún lagði fram kæruna í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár