Eggert Þór segir skilið við Festi í sumar

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, sem verið hefur for­stjóri N1 og síðar Festi frá árinu 2015, segir skilið við fyr­ir­tækið í sumar og hefur kom­ist að sam­komu­lagi við stjórn um starfs­lok. Hann segir rétt að Festi finni sér nýjan for­stjóra á þessum tíma­punkti.

Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son hættir sem for­stjóri Festi hf. í sumar. Mynd: Festi

Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festi hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá 1. ágúst næst­kom­andi og gert hefur verið sam­komu­lag um starfs­lok hans, sam­kvæmt til­kynn­ingu Festi til Kaup­hallar.

Í til­kynn­ingu um starfs­lok for­stjór­ans segir að Festi, sem í dag rekur N1, Krónuna, Elko, Bakkann og fast­eigna­fé­lag Festi, standi nú á tíma­mótum eftir upp­bygg­ingu und­an­far­innar ára og að Eggert telji að á þessum tíma­mótum sé æski­legt að leitað verði til nýs ein­stak­lings til að leiða starf­sem­ina.

[adspot]

Eggert Þór hóf störf hjá N1 árið 2011 sem fjár­mála­stjóri og varð for­stjóri félags­ins árið 2015. N1 keypti svo gamla Festi, þ.e. ELKO, Krónuna, Festi fast­eignir og Bakkann vöru­hótel árið 2018 og tók nýja móð­ur­fé­lagið upp nafnið Festi. Haft er eftir Eggert í til­kynn­ingu að það hafi verið „stefnu­mót­andi og mik­il­væg kaup til að und­ir­búa félagið að orku­skiptum og þeim breyt­ingum sem eru að verða í okkar sam­fé­lagi.“

„Ég hef verið láns­samur að vinna með frá­bæru sam­starfs­fólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dótt­ur­fé­lög af því sem þau er í dag. Ég mun sakna þess að vinna með þessu fólki en er einnig spenntur fyrir því sem fram­tíðin ber í skauti sér,“ er einnig haft eftir Eggerti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár