Stjórn Festi ætlar að endurskoða starfsreglur

Markmið end­ur­skoð­unar starfs­reglna stjórnar Festi er m.a. að gera vinnu­lag skýr­ara ef fram koma upp­lýs­ingar sem benda til mögu­legs van­hæfis stjórn­ar­manna og hefur stjórn ákveðið að hefja þá vinnu strax, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Festi til Kaup­hallar.

Festi rekur meðal annars Elko, Krónuna og N1.
Festi rekur meðal ann­ars Elko, Krónuna og N1. Mynd: Samsett

Það er mat stjórnar Festi að þörf sé að end­ur­skoða starfs­reglur stjórnar, að því er fram kemur í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins til Kaup­hallar í dag. Þórður Már Jóhann­es­son óskaði eftir því í síð­ustu viku að láta af störfum sem stjórn­ar­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­ar­for­mað­ur eftir að kona steig fram í við­tali og greindi frá meintu kyn­ferð­is­broti Þórðar Más.

„Í síð­ustu viku birt­ist við­tal í fjöl­miðlum við unga konu sem lýsti meintu kyn­ferð­is­broti gegn sér og var þung­bært að heyra um hennar reynslu. Skýr skila­boð hafa komið frá sam­fé­lag­inu um að fyr­ir­tæki sem tengj­ast slíkum málum bregð­ist fyrr við og taki á málum með skýr­ari og ákveðn­ari hætti.

Umrætt mál var litið mjög alvar­legum augum af stjórn Festi frá því hún heyrði af því fyrst og var það tekið til skoð­unar á vett­vangi hennar í sam­ræmi við þau lög, sam­þykktir og reglur sem henni ber að starfa eftir. Frá upp­hafi var ljóst að innan þessa ramma hafði stjórn lítið rými til að bregð­ast við. Þegar málið varð opin­bert með afger­andi hætti með áður­nefndu við­tali í byrjun jan­úar sagði fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður af sér,“ segir í til­kynn­ingu Festi til Kaup­hallar.

„Að feng­inni þess­ari reynslu er það mat stjórnar Festi að þörf sé á að end­ur­skoða starfs­reglur stjórnar. Markmið þeirrar end­ur­skoð­unar er að bæta reglur og gera vinnu­lag skýr­ara ef fram koma upp­lýs­ingar sem benda til mögu­legs van­hæfis stjórn­ar­manna og hefur stjórn ákveðið að hefja þá vinnu strax. Festi er með skýrar reglur fyrir alla stjórn­endur og starfs­menn félags­ins og dótt­ur­fé­laga sem verða lagðar til grund­vallar við end­ur­skoðun á starfs­reglum stjórnar. Það er mark­mið og vilji stjórnar Festi að vera ætíð til fyr­ir­myndar um góða stjórn­ar­hætti og mun nið­ur­staða end­ur­skoð­unar á starfs­reglum stjórnar verða kynntar á aðal­fundi 22. mars n.k.

Stjórn Festi for­dæmir allt ofbeldi og telur mik­il­vægt að hlustað sé á þolendur. Það er skylda okkar að breyt­ast með sam­fé­lag­inu og í sam­ein­ingu eigum við að búa til örugg­ara umhverfi fyrir okkur öll,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Gekk erfiðlega að fá svör frá stjórn Festi

[links]Málið komst í hámæli í síð­ustu viku þegar Vítalía Laz­areva fór í við­tal hjá Eddu Falak í hlað­varpi hennar Eigin konum og greindi hún frá reynslu sinni af Þórði Má í sum­ar­bú­staða­ferð árið 2020. Hún nafn­greindi hann ekki í við­tal­inu en hún hafði áður gert það í skiltum á Instagram síð­asta haust.

Kjarninn leit­aði svara hjá stjórn Festi strax í nóv­em­ber og spurði hvort vit­neskja væri innan stjórnar varð­andi þetta mál og hvort stjórnin hygð­ist bregð­ast við með ein­hverjum hætti. Eftir margar ítrek­anir svar­aði Guðjón Reyn­is­son vara­for­maður stjórnar þann 17. des­em­ber. Í svari hans sagði: „Það er rétt að umfjöll­unin sem spurt er um hefur verið til skoð­un­ar, en við getum ekki tjáð okkur að svo stödd­u.“ Vísar hann þarna í umfjöllun Stund­ar­innar frá 17. nóv­em­ber.

Stjórn Festi hélt stjórn­ar­fund á fimmtu­dag­inn eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum og greindi stjórnin frá því sam­dæg­urs að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­ar­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­ar­for­mað­ur. „Stjórn féllst á erind­ið. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum upp á nýtt. Guð­jón Reyn­is­son var kjör­inn nýr for­maður stjórnar og Mar­grét Guð­munds­dóttir vara­for­mað­ur,“ sagði í til­kynn­ingu frá Festi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár