Stjórnarmenn geta fokið fyrir háttsemi sem telst „ámælisverð að almannaáliti“

Festi ætlar að inn­leiða reglur til að takast á við mál æðstu stjórn­anda sem gætu valdið félag­inu rekstr­ar­á­æ­hættu með því að orð­spor þeirra bíði hnekki. Það getur til að mynda gerst við opin­bera umfjöllun.

Eggert Kristófersson, forstjóri Festi.
Eggert Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi. Mynd: Aðsend

Stjórn Festi hefur lagt til að nýrri máls­grein verði bætt við sam­þykktir félags­ins sem er ætlað að auka getu félags­ins til að takast á við mál sem varða „orð­spor æðstu stjórn­enda og rekstr­ar­á­hættu sem getur tengst því að orð­spor þeirra bíði hnekki“.

Í grein­ar­gerð sem fylgir með til­lög­unni segir að verði breyt­ingin sam­þykkt áformi stjórn að breyta starfs­reglum stjórnar, setja stjórn sér­stakar siða­reglur og setja nýjar reglur um mat á hæfi stjórn­ar­manna og for­stjóra, orð­spors­á­hættu og hags­muna­á­rekstra sem saman er ætlað að mynda heild­stæða umgjörð um með­ferð slíkra mála.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem til­lögur sem lagðar verða fyrir kom­andi aðal­fund Festi, sem fram fer í næstu viku.

Í drögum að reglum um mat á hæfi, orð­spors­á­hættu og hags­muna­á­rekstrum stjórn­ar­manna Festi, sem birt hafa verið á heima­síðu félags­ins, segir að stjórn­ar­menn telj­ist vera með gott orð­spor ef engin hald­bær gögn eða ástæður benda til ann­ars. „Ef hald­bær gögn eða ástæður svo sem opin­ber umfjöllun, form­leg kvörtun til reglu­varðar félags­ins eða annað gefa til­efni til skoð­unar á orð­spori, skal meta orð­spor og hvort orð­spor valdi van­hæfi ef það leiðir til þess að hags­munir félags­ins og við­kom­andi fara ekki saman.“

[adspot]Við matið er litið til þess hvort stjórn­ar­maður sé sak­aður um meinta refsi­verða hátt­semi eða hafi verið dæmdur fyrir slíka. En þá á líka að líta til þess hvort hann sé sak­aður um hátt­semi sem telst ekki refsi­verð en sé „ámæl­is­verð að almanna­á­liti“. Í reglu­drög­unum segir að við það mat eigi að taka „til­lit til alvar­leika, áhrifa á opin­bera umræðu og áhrif á orð­spor félags­ins, hvort það leiði til hags­muna­á­rekst­urs sem valdi van­hæfi stjórn­ar­manns án þess að tekin sé efn­is­leg afstaða til meintrar atburða­rásar og hvort hún telj­ist skýr og sönnuð. Við matið skal þó ávallt höfð hlið­sjón af kring­um­stæðum öllum og litið til alvar­leika og eðlis, við­bragða stjórn­ar­manns, sátta- og úrbóta­vilja.“

Stjórnarformaður Festi sakaður um kynferðisofbeldi

Stutt er síðan að Festi þurfti að takast á við ásak­anir á hendur þáver­andi stjórn­ar­for­manni félags­ins, Þórði Má Jóhann­essyni, vegna meints kyn­ferð­is­brots hans og tveggja ann­arra manna gagn­vart konu haustið 2020. Konan, Vítalía Lazareva, hafði birt frá­sögn á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram í októ­ber í fyrra og lýsti þar ofbeldi sem hún sagði menn­ina hafa beitt sig í heitum potti og í sum­ar­bú­stað, aðdrag­anda þess að hún hefði endað með þeim þennan dag og í lok hennar nefndi hún þá alla þrjá með nafni. Auk Þórðar var þar um að ræða Ara Edwald, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Íseyjar útflutn­ings, og Hreggvið Jónsson, þáver­andi stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Veritas. Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­þjálf­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Í byrjun jan­úar fór Vitalía svo í við­tal hjá Eddu Falak í hlað­varpi hennar Eigin konum og greindi hún frá reynslu sinni. Hún nafn­greindi menn­ina þó ekki í við­tal­inu.

Eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum sendi Hregg­viður frá sér yfir­lýs­ingu, dag­sett 6. jan­úar, um að hann myndi stíga til hliðar sem stjórn­ar­for­maður Veritas. Þar sagði meðal ann­ars: „„Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­miðl­um. Það er afar þung­bært að heyra um hennar reynslu.“

Í kjöl­farið flýtti stjórn Festi fundi sem átti að fara fram þann dag vegna máls­ins og greindi svo frá því að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­­­ar­­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur. Heim­ildir Kjarnans herma að þá hefðu aðrir stjórn­ar­menn, stórir hlut­hafar og stjórn­endur félags­ins allir reynt að þrýsta beint eða óbeint á að Þórður Már myndi hætta í nokkurn tíma, en án árang­urs. Lög og sam­þykktir félags­ins voru ein­fald­lega með þeim hætti að honum var í sjálfs­vald sett milli aðal­funda hvort hann hætti eða ekki.

Ari var fyrst settur í tíma­bundið leyfi frá störfum hjá Ísey og end­an­lega rek­inn þann 9. jan­úar.

Fleiri að skoða að innleiða sambærilegar reglur

Eggert Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að til­urð regln­anna sé bein afleið­ing af því sem átti sér stað í stjórn félags­ins í byrjun árs. Stjórnin til­kynnti til Kaup­hallar Íslands þann 13. jan­úar að hún myndi end­ur­skoða starfs­reglur sínar vegna máls Vitalíu og Eggert segir að fljót­lega í kjöl­farið hafi sú vinna farið í að móta þá til­lögu sem nú verða lagðar fyrir aðal­fund.

[links]Samkvæmt til­lög­unni eiga allir stjórn­ar­menn að und­ir­gang­ast regl­urnar skrif­lega og ef upp kemur orð­spors­á­hætta þeim tengd þá fer hún í sama fag­lega ferli innan Festi og mál starfs­manna þar. Slíkt ferli skilar nið­ur­stöðu sem gæti til að mynda verið sú að við­kom­andi stjórn­ar­maður ætti að segja af sér. Það þarf hann þó ekki að gera sam­kvæmt gild­andi lögum en breyt­ing­arnar sem gerðar verða á starfs­reglum Festi leiða þá til þess að reglu­vörður félags­ins mun senda til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands um hver nið­ur­staðan var. Það yrði því opin­bert að við­kom­andi stjórn­ar­maður sæti áfram þrátt fyrir að ferli félags­ins hefði skilað þeirri nið­ur­stöðu að hann ætti ekki að gera það. Hug­myndin er að stjórn­ar­maður gæti vart setið áfram eftir að slíkar upp­lýs­ingar yrðu gerðar opin­berar.

„Það versla um 70 þús­und manns við okkur í viku. Það á að gera auknar kröfur til þeirra sem sem eru í for­svari fyrir okkur,“ segir Eggert. Á meðal dótt­ur­fé­laga Festi er N1, Krónan og ELKO.

Verði til­lagan um nýjar reglur sam­þykkt mun Festi verða fyrsta skráða félag lands­ins til að inn­leiða svona reglur. Eggert segir að full­trúar nokk­urra ann­arra félaga á mark­aði hafi haft sam­band og leitað eftir sam­tali um regl­urnar vegna þess að þau hafi áhuga á að inn­leiða sam­bæri­legt fyr­ir­komu­lag hjá sér. „Ég held að þetta verði algengar reglur hjá skráðum félögum í nán­ustu fram­tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár