Leggur fram kæru á hendur Þórði Má, Ara Edwald, Hreggviði – „Mikilvægt skref í rétta átt fyrir mig“

Vítalía Lazareva, sem greindi í við­tali frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi í byrjun jan­úar, hefur lagt fram kæru á hendur mönn­unum þremur. „Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­in­u.“

Þórður Már Jóhannesson, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson
Þórður Már Jóhann­es­son, Ari Edwald og Hregg­viður Jónsson Mynd: Samsett mynd

Vítalía Lazareva hefur lagt fram kærur á hendur Ara Edwald, Hregg­viði Jónssyni og Þórði Má Jóhann­essyni. Frá þessu greinir hún á sam­fé­lags­miðlum og stað­festir við Kjarnann að um sé að ræða þessa þrjá menn.

„Ég ætla ekki skilja málin eftir í lausu lofti og þetta er stórt og mik­il­vægt skref í rétta átt fyrir mig. Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­inu,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann.

Hún skrifar jafn­framt í opinni færslu á Instagram að það hafi tekið tíma „að safna sér saman í næstu skref“ en í dag sé hún til­búin.

[adspot]

Valdamiklir menn falla

Kjarninn fjall­aði um málið í byrjun jan­úar en Vítalía steig fram og greindi frá meintu ofbeldi í við­tali hjá Eddu Falak í Eigin konum þann 4. jan­úar síð­ast­lið­inn.

[links]Aðdrag­and­inn var sá að seint í októ­ber birti Vítalía frá­sögn á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram. Frá­sögnin var af kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna. Í frá­sögn­inni lýsti konan því ofbeldi sem hún sagði menn­ina hafa beitt sig í heitum potti og í sum­ar­bú­stað, aðdrag­anda þess að hún hefði endað með þeim þennan dag og í lok hennar nefndi hún þá alla þrjá með nafni, þá Ara Edwald, þáver­andi for­stjóra Ísey Skyr, Hreggvið Jónsson, þáver­andi stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Veritas, og Þórð Má Jóhann­es­son, þáver­andi stjórn­ar­for­mann Festi.

Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­þjálf­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgengi­legur á Twitt­er-­síðu Vítal­íu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­miklir í sam­fé­lag­inu og allir fjöl­skyldu­menn“.

Vildu engu svara

Skjá­skot af frá­sögn kon­unnar fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­miðl­um, þrátt haft hafi verið sam­band við menn­ina fjóra, meðal ann­ars frá blaða­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Málið tók á sig nýja mynd þegar Vítalía steig fram hjá Eddu og greindi frá meintu ofbeldi.

Allir þrír stigu til hliðar úr ábyrgð­ar­stöðum eftir að fjöl­miðlaum­fjöllun um málið birt­ist. Eini sem hefur tjáð sig opin­ber­lega er Hregg­viður Jónsson en hann sagði í yfir­lýs­ingu sinni: „Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­mið­l­­um. Það er afar þung­­bært að heyra um hennar reynslu.“

Hregg­viður sagð­ist jafn­framt líta þetta mál alvar­­legum augum og þrátt fyrir að hann hefði „ekki gerst brot­­legur við lög“ þá myndi hann stíga til hliðar úr stjórn Ver­itas og stjórnum tengdra fyr­ir­tækja „til að raska ekki þeirra mik­il­vægu starf­­sem­i“.

Hægt er að lesa ítar­lega umfjöllun Kjarnans um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár