Vilja auðvelda aðflutning sérfræðinga utan EES til Íslands strax með lagabreytingu

Mörg þús­und sér­fræð­inga vantar erlendis frá til starfa í íslenskum vaxta­fyr­ir­tækjum. Samtök atvinnu­lífs­ins kalla eftir laga­breyt­ingum til að mæta þessu. „Ísland hefur ekki mörg ár til stefnu til að bíða eftir græn­bók, hvít­bók og víð­tæku sam­ráði.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, lagði fram tillöguna um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, lagði fram til­lög­una um fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) segja að breyta þurfi lögum til þess að auð­velda aðflutn­ing sér­fræð­inga frá ríkjum utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES) og vinna að öðru leyti með virkum hætti að því að afnema hindr­anir í reglu­verki til þess að gera umhverfið meira aðlað­andi fyrir erlenda sér­fræð­inga. „Ísland hefur ekki mörg ár til stefnu til að bíða eftir græn­bók, hvít­bók og víð­tæku sam­ráði, sem hugs­an­lega leiða síðar meir til laga­breyt­inga, heldur þarf að bregð­ast hratt við.“

Þetta kemur fram í umsögn SA um til­lögu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu rík­is­stjórn­ar­innar um fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda fyrir árin 2022 til 2025 sem skilað var inn til þings­ins í gær. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra er flutn­ings­maður til­lög­unnar.

Fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 17,1 prósent íbúa

Fram­kvæmda­á­ætlun um mál­efni inn­flytj­enda er ætlað að kynna aðgerðir sem end­ur­spegla þau meg­in­markið laga um mál­efni inn­flytj­enda að stuðla að sam­fé­lagi þar sem öll geta verið virkir þátt­tak­endur óháð þjóð­erni og upp­runa.

Við mótun fram­kvæmda­á­ætl­unar var leitað til fjölda aðila sem hafa þekk­ingu á mál­efnum inn­flytj­enda. Alls var óskað eftir til­lögum frá 106 aðilum og bár­ust svör frá 23. Unnið var úr inn­sendum hug­myndum og til­lögum og í kjöl­farið var fundað með fjölda fag- og hags­muna­að­ilum hjá sam­tökum, sveit­ar­fé­lögum og stofn­unum og fengnar umsagnir og frek­ari ábend­ingar. Líkt og fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda fyrir árin 2016 til 2019, bygg­ist fram­kvæmda­á­ætl­unin á fimm stoðum, þ.e. sam­fé­lagi, fjöl­skyldu, menntun, atvinnu­mark­aði og fólki á flótta.

[adspot]Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að 1. jan­úar 2021 hafi 57.126 inn­flytj­endur búið á Íslandi, eða 15,5 pró­sent mann­fjöld­ans. Árið 2012 voru þeir átta pró­sent mann­fjöld­ans. Inn­flytj­endum af annarri kyn­slóð hefur einnig fjölg­aði mikið en þeir voru 6.117 árið 2021. Sam­an­lagt er fyrsta og önnur kyn­slóð inn­flytj­enda 17,1 pró­sent af mann­fjöld­anum og hefur það hlut­fall aldrei verið hærra.

Í nið­ur­stöðum félags­vísa Hagstofu Íslands frá 2019 kemur fram að það sem meðal ann­ars ein­kennir inn­flytj­endur á Íslandi er að flestir eru á vinnu­aldri, hafa dvalið hér í stuttan tíma og eru að meiri hluta karl­menn. „Flestir inn­flytj­endur á Íslandi koma frá löndum þar sem heilsa, menntun og fjár­hagur er góður. Almennt eru færri inn­flytj­endur en inn­lendir með mjög háar heild­ar­tekjur og þrátt fyrir að hafa gott aðgengi að íslenskum vinnu­mark­aði eru inn­flytj­endur lík­legri en inn­lendir til þess að vinna störf þar sem menntun þeirra nýt­ist ekki.“

Tekur ekki á skorti á sérhæfðu starfsfólki

Ein þeirra aðgerða sem til­tekin er í fram­kvæmda­á­ætl­un­inni er end­ur­skoðun laga um atvinnu­rétt­indi útlend­inga. Sú end­ur­skoðun á að eiga sér stað í ár, 2022. Markmið breyt­ing­anna er að rýmka ákvæð er varða útgáfu dval­ar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátt­töku og að skil­virkni verði aukin með ein­földun ferla. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir:„Umsókn­ar­ferli um dvalar- og atvinnu­leyfi fyrir ein­stak­linga sem sinna störfum sem krefj­ast sér­fræði­þekk­ingar verði ein­faldað. Tryggt verði að fólk sem fær dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við landið fái sam­hliða óbundið atvinnu­leyfi.“

[adspot]Í umsögn sinni segir SA að sam­tökin taki undir þörf fyrir skýra og heild­stæða stefnu sem eflir fólk af erlendum upp­runa til þátt­töku í sam­fé­lag­inu. „Enn brýnna er þó að móta stefnu sem stuðlar að aðflutn­ingi lang­skóla­geng­inna sér­fræð­inga og sér­hæfðs starfs­fólk sem atvinnu­lífið, bæði einka­geiri og opin­beri geiri, þarfn­ast nú og á allra næstu árum.“

Fyr­ir­liggj­andi þings­á­lykt­un­ar­til­laga taki ekki á ríkj­andi skorti á sér­hæfðu og lang­skóla­gengnu starfs­fólki. „Starfs­fólki sem öll þróuð ríki kepp­ast nú um að laða til sín. Þannig þarf að móta fram­sækna stefnu í inn­flytj­enda­málum til að auka nýsköpun, manna laus störf bæði í einka- og opin­bera geir­anum og auka þar með útflutn­ings­tekjur og vöxt, bæta opin­bera þjón­ustu og styrkja vel­ferð­ar­kerfið. Slík stefna þarf að standa vörð um og styrkja alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni Íslands.“

Vantar níu þúsund í hugverkaiðnað

Að mati SA þarf strax að ráð­ast í aðgerðir til að mæta þessum brýna vanda. Útlend­inga­lögin heim­ili frjálst flæði fólks innan EES en inn­flutn­ingur frá öðrum heims­álfum en Evrópu sé háður miklum tak­mörk­unum.

Samtökin vilja að lögum verði breytt til þess að auð­velda aðflutn­ing sér­fræð­inga frá ríkjum utan EES og vinna að öðru leyti með virkum hætti að því að afnema hindr­anir í reglu­verki til þess að gera umhverfið meira aðlað­andi fyrir erlenda sér­fræð­inga. „auð­velda aðflutn­ing sér­fræð­inga frá ríkjum utan EES og vinna að öðru leyti með virkum hætti að því að afnema hindr­anir í reglu­verki til þess að gera umhverfið meira aðlað­andi fyrir erlenda sér­fræð­inga.“

Samtök iðn­að­ar­ins, sem til­heyra SA, birtu grein­ingu fyrr í þessum mán­uði þar sem þau sögðu að níu þús­und sér­fræð­inga þurfi til vaxta í hug­verka­iðn­aði á næstu fimm árum. Það mat er byggt á nið­ur­stöðum könn­unar meðal stjórn­enda fyr­ir­tækja í hug­verka­iðn­aði innan sam­tak­anna. Um er að ræða um 1.800 manns að með­al­tali á ári. Í könn­un­inni kom fram að í kringum 80 pró­sent fyr­ir­tækj­anna sem voru undir í henni vanti í dag starfs­fólk til að við­halda starf­semi sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár