Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Bæjarlistinn mynda meirihluta á Akureyri

Bæj­ar­list­inn, Sjálf­stæði­flokkur og Mið­flokkur mynda minnsta mögu­lega meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar með sex full­trúa af ell­efu. Stefnt er að því að Ást­hildur Sturlu­dóttir verði áfram bæj­ar­stjóri

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Bæjarlistans og Miðflokksins hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta á Akureyri. Samkomulagið náðist í sumarbústað.Mynd: Aðsend
Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Bæj­ar­list­ans og Mið­flokks­ins hafa náð sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta á Akureyri. Sam­komu­lagið náð­ist í sum­ar­bú­stað.Mynd: Aðsend

Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Bæj­ar­list­ans á Akureyri hafa kom­ist að sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta á Akureyri. Mál­efna­samn­ingur flokk­anna verður kynntur 1. júní, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá flokk­unum.

Heimir Örn Árnason, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akureyri, segir í sam­tali við Vísi að stefnt sé að því að Ást­hildur Sturlu­dóttir verði áfram bæj­ar­stjóri Akur­eyrar. Hún var ráðin bæj­ar­stjóri eftir kosn­ing­arnar 2018.

Sjö flokkar náðu kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 14. maí síð­ast­lið­inn og fljótt varð ljóst að flóknar meiri­hluta­við­ræður voru fram undan. Bæj­ar­listi Akur­eyrar, L-list­inn, fékk 18,7 pró­sent atkvæða og bætti við sig einum bæj­ar­full­trúa og fékk þrjá. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 18 pró­sent atkvæða og hélt sínum tveimur bæj­ar­full­trúum. Fram­sókn­ar­flokkur fékk 17 pró­sent atkvæða og tvo full­trúa kjörna. Sam­fylk­ingin hélt sínum bæj­ar­full­trúa og Mið­flokk­ur­inn og Vinstri græn eru með einn bæj­ar­full­trúa. Þá fékk Flokkur fólks­ins, sem var að bjóða fram í fyrsta skipti á Akureyri, einn mann kjör­inn.

Bæj­ar­list­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin mynd­uðu meiri­hluta eftir kosn­ing­arnar 2018 en í sept­em­ber 2020 til­kynntu full­trúar í bæj­ar­stjórn að ákveðið hefði verið að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­ar­stjórn það sem eftir lifir kjör­tíma­bils. Mark­miðið með því var mynda breiða sam­stöðu vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far heims­far­ald­urs og í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins. Fyrir kosn­ing­arnar í vor lá fyrir að ekki var áfram­hald­andi vilji fyrir breiðu meiri­hluta­sam­starfi.

Allt er þegar þrennt er

Meiri­hluta­við­ræðum hefur verið slitið í tvígang. Fyrst ræddu full­trúar Bæj­ar­list­ans, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar myndun meiri­hluta en upp úr slitn­aði þegar full­trúar Bæj­ar­list­ans sök­uðu full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um að hafa rofið heið­urs­manna­sam­komu­lag með því að ræða við full­trúa ann­arra flokka.

Við tóku við­ræður milli B-,D-,S- og M-lista en Sam­fylk­ingin sleit þeim við­ræðum í gær og sagði Hilda Jana Gísla­dóttir, odd­viti flokks­ins í sam­tali við RÚV að óyf­ir­stíg­an­legur mál­efna­á­grein­ingur væri á milli flokk­anna, til að mynda í vel­ferð­ar­málum, umhverfis- og lofts­lags­málum og skipu­lags­málum.

En allt er þegar þrennt er. Sjálf­stæð­is­flokkur, Mið­flokkur og Bæj­ar­list­inn hafa sex bæj­ar­full­trúa og mynda því minnsta mögu­lega meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar sem sam­anstendur af ell­efu full­trúum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár