Guðmundur Árni óskar eftir viðræðum um myndun nýs meirihluta með Framsókn

Sam­fylk­ingin bætti við sig um níu pró­sentu­stigum af fylgi í Hafn­ar­firði og er nú með jafn marga bæj­ar­full­trúa og Sjálf­stæð­is­flokkur, sem tap­aði einum. Framsókn er samt með öll tromp á hendi og getur valið með hvorum flokknum mynd­aður verður meiri­hluti.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, hefur haft sam­band við Valdimar Víðisson, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu, og óskað eftir við­ræðum um myndun nýs meiri­hluta flokk­anna tveggja þar.

Frá þessu greinir Guð­mundur Árni í stöðu­upp­færslu sem hann setti á Facebook í gær, en Sam­fylk­ingin jók fylgi sitt í Hafn­ar­firði veru­lega í kosn­ing­unum á laug­ar­dag, fékk 29 pró­sent atkvæða í stað 20,1 pró­sent árið 2018 og fjóra bæj­ar­full­trúa í stað þeirra tveggja sem flokk­ur­inn hafði áður. Framsókn bætti líka við sig fylgi og manni, fékk 13,7 pró­sent atkvæða í stað átta pró­senta árið 2018 og tvo menn í ell­efu manna bæj­ar­stjórn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem myndar núver­andi meiri­hluta með Framsókn, tap­aði hins vegar þremur pró­sentu­stigum af fylgi og fékk 30,7 pró­sent atkvæða. Hann er enn stærsti flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði en nú með jafn­marga full­trúa og Sam­fylk­ingin í stað þeirra fimm sem hann hafði áður. Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er núver­andi bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firði.

[adspot]Fyrir liggur að Framsókn er í lyk­il­stöðu Í Hafn­ar­firði eins og víða ann­ars­staðar. Flokk­ur­inn er í þeirri gam­al­kunnu stöðu að geta valið að vinna til hægri með Sjálf­stæð­is­flokki eða á miðju eða til vinstri með öðrum. Í flestum til­vikum er hrein­lega ekki mögu­leiki á stjórn­ar­mynstrum nema með aðkomu Fram­sóknar. Þannig er málum háttað í Hafn­ar­firði. Oddviti Fram­sóknar sagði á kosn­inga­nótt of snemmt að segja til um það hvort núver­andi meiri­hluti flokks­ins með Sjálf­stæð­is­flokki myndi halda áfram.

Í stöðu­upp­færslu sinni í gær­kvöldi segir Guð­mundur Árni að fólkið hafi talað í kosn­ing­unum. „Í Hafn­ar­firði stimpl­uðum við jafn­að­ar­menn okkur ræki­lega inn og fengum fjóra bæj­ar­full­trúa kjörna - tvö­föld­uðum tölu þeirra eins og mark­miðið var. [...] Ég hef haft sam­band við odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins og óskað eftir við­ræðum um myndun nýs meiri­hluta XS og XB í Hafn­ar­firði. En það eru flokk­arnir sem sigr­uðu og voru kall­aðir til verka, á meðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði umtals­verðu fylgi. Við sjáum hvað setur. Það væri gott fyrir Hafn­firð­inga að fá félags­hyggju­meiri­hluta í Fjörðinn. Við jafn­að­ar­menn erum nú sem fyrr til­búnir í verkin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár