Alls 34 prósent vilja sjá Dag áfram sem borgarstjóra – 16 prósent nefna Hildi

Þeim fjölgar milli kann­ana sem vilja sjá núver­andi borg­ar­stjóra áfram í emb­ætt­inu, en fækkar sem vilja sjá odd­vita stærsta minni­hluta­flokks­ins taka við því.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Flestir Reyk­vík­ingar sem taka afstöðu til þess hver eigi að vera næsti borg­ar­stjóri nefnd Dag B. Egg­erts­son, núver­andi borg­ar­stjóra og odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar. Alls telja 34 pró­sent að hann eigi áfram að sitja í emb­ætt­inu.

Þetta kemur fram í könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið sem gerð var 5. til 9. maí en nið­ur­stöður hennar voru birtar í dag. Það er hærra hlut­fall en nefndi Dag í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var 28. apríl, en þá naut Dagur stuðn­ings 30 pró­sent aðspurðra í borg­ar­stjóra­stól­inn.

Dagur nýtur mest stuðn­ings í mið­borg­inni, þar sem 59 pró­sent aðspurðra vilja hann áfram sem borg­ar­stjóra, en hann leiðir í flestum hverfum borg­ar­innar. Frávikin eru að Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins, leiðir í Breið­holt­inu með 25 pró­senta fylgi og Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, í Graf­ar­vogi með 24 pró­sent. Fleiri vilja sjá Dag sem borg­ar­stjóra en ætla sér að kjósa Sam­fylk­ing­una.

[adspot]Færri nefna Hildi þó heilt yfir sem æski­legan næsta borg­ar­stjóra nú en í lok apríl. Þá sögðu 19 pró­sent að þeir vilji fá hana í emb­ættið en nú nefna 16 pró­sent Hildi. Það er svipað hlut­fall og vill sjá Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem borg­ar­stjóra en hann nýtur stuðn­ings 15 pró­sent aðspurðra sem taka afstöðu. Aðrir sem mæl­ast með yfir tíu pró­sent stuðn­ing í starf borg­ar­stjóra eru Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata (ell­efu pró­sent), og Sanna Magda­lena Mörtu­döttir (tíu pró­sent).

Könnunin var net­könnun gerð 5. til 9. maí. Úr­tak var 1.750 ein­stak­lingar og svar­hlut­fallið 50,4 pró­sent.

Meirihlutinn bætir við sig samkvæmt nýjustu kosningaspá

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings heldur meiri­hlut­inn í Reykja­vík velli og Sam­fylk­ingin verður stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík á ný eftir kosn­ing­arnar sem fara fram næst­kom­andi laug­ar­dag. Fylgi hennar mælist 24,8 pró­sent sem myndi skila sex borg­ar­full­trúum.

[links]Píratar mæl­ast með 16,3 pró­sent fylgi sem myndi skila þeim fjórum borg­ar­full­trúum. Viðreisn fengi 7,4 pró­sent fylgi og héldi sínum tveimur full­trúum og Vinstri græn 6,1 pró­sent, sem skilar Líf Magneu­dóttur, odd­vita flokks­ins, að óbreyttu einni í borg­ar­stjórn. Meiri­hlut­inn virð­ist því, sam­kvæmt gerðum könn­unum, ætla að bæta við sig fylgi frá kosn­ing­unum 2018 og fá 13 borg­ar­full­trúa, sem er einum fleiri en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk 30,8 pró­sent atkvæða fyrir fjórum árum, stefnir í afhroð en fylgi hans mælist 18,8 pró­sent. Það myndi skila fimm borg­ar­full­trúum í stað þeirra átta sem flokk­ur­inn hefur í dag. Verði þetta nið­ur­staðan mun Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sína verstu nið­ur­stöðu í höf­uð­borg­inni í sögu flokks­ins.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá flokkur sem bætir mestu við sig. Hann mælist með 12,4 pró­sent fylgi og næði inn þremur borg­ar­full­trúum að óbreyttu, en flokk­ur­inn hefur engan sem stendur. Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins myndu halda sitt­hvorum borg­ar­full­trú­anum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár