Ekkert hefur gefið tilefni til sérstakrar skoðunar á fjármálum Reykjavíkurborgar

Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórnar spurði að því á þingi hvort fjár­mál Reykja­vík­ur­borgar hefðu verið tekin til sér­stakrar skoð­unar. Svarið sem barst er að lyk­il­tölur í rekstri borg­ar­innar hafi ekki gefið til­efni til þess.

Kjartan Magnússon er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi til borgarstjórnar.
Kjartan Magn­ús­son er vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórnar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Hvorki eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga né inn­við­a­ráðu­neytið hafa tekið fjár­mál Reykja­vík­ur­borgar til sér­stakrar skoð­unar. Ástæðan fyrir því er sú að lyk­il­tölur úr rekstri borg­ar­innar hafa ekki gefið til­efni til þess.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjartans Magn­ús­sonar vara­þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­bjóð­anda flokks­ins til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík.

Spurn­ingar Kjartans til inn­við­a­ráð­herra voru lagðar fram er hann tók sæti á þingi á meðan á próf­kjörs­bar­áttu sjálf­stæð­is­manna í borg­inni stóð, en Kjartan, sem var borg­ar­full­trúi frá 1999 til 2018, hafn­aði í 3. sæti í próf­kjöri flokks­ins.

Í jóm­frú­ar­ræðu sinni á Alþingi í byrjun febr­úar gerði hann fjár­hags­stöðu Reykja­vík­ur­borgar að umtals­efni, sagði hana grafal­var­lega og velti því upp hvort Reykja­vík­ur­borg væri komin í gjör­gæslu hjá ráðu­neyti sveit­ar­stjórn­ar­mála, sam­kvæmt frétt mbl.is.

Sagðist hann ætla að leggja fram form­lega fyr­ir­spurn um málið til ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála, sem nú hefur svarað. Kjartan óskaði eftir svörum við því hvort fjár­mál borg­ar­innar hefðu verið tekin til sér­stakrar skoð­unar og ef svo væri ekki, þá hvers vegna ekki.

Jákvæð afkoma flest ár og skuldir innan viðmiða

Í svari inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins segir sem áður segir að ekki hafi verið til­efni til þess að skoða fjár­mál borg­ar­innar sér­stak­lega. Svo er útskýrt af hverju það hafi ekki verið gert.

Sett er upp tafla með lyk­il­tölum úr rekstri Reykja­vík­ur­borgar á árunum 2015-2020 þar sem sjá má að skulda­við­mið bæði sam­stæðu borg­ar­innar (A- og B-hluta) og A-hlut­ans, þess hluta borg­ar­sjóðs sem rek­inn er fyrir skatt­tekjur, var undir 150 pró­sentum öll þessi ár.

[adspot]

Auk þess er rakið í svari ráð­herra að sam­stæða Reykja­vík­ur­borgar hafi upp­fyllt við­mið um jafn­vægi í rekstri, svo­kall­aða jafn­væg­is­reglu, sem sýni rekstr­ar­nið­ur­stöðu á þriggja ára tíma­bili og ein­ungis verið með nei­kvæða afkomu árið 2020. Skulda­við­mið sam­stæðu borg­ar­innar var 143 pró­sent árið 2020, en má alla jafna vera 150 pró­sent að hámarki, sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum.[links]

Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur þeim lögum þó verið breytt og skulda­við­mið sveit­ar­fé­laga má vera 200 pró­sent fram til loka árs 2025. Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn lagði fram fjár­hags­á­ætlun síð­asta haust, þar sem gert var ráð fyrir því að skulda­við­mið sam­stæð­unnar yrði á bil­inu 150 til 156 pró­sent á árunum 2022 til 2025, en lækk­aði svo aftur undir 150 pró­sentin.

Varðandi A-hluta borg­ar­sjóðs segir í svar­inu frá ráð­herra að skulda­við­miðið hafi verið undir 150 pró­senta hámark­inu öll árin. Skulda­við­mið A-hluta borg­ar­innar var 56 pró­sent árið 2020.

Jafn­væg­is­reglan fór þó í mínus í borg­inni fyrir árin 2015, 2016 og 2017, eftir að hækkun líf­eyr­is­skuld­bind­inga vegna Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar að fjár­hæð 14,6 millj­arða króna var gjald­færð árið 2015.

„Þetta er stærsta skýr­ingin á nei­kvæðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu um 13,6 millj­arða kr. á árinu 2015, sem hefur þau áhrif að jafn­væg­is­reglan er í mínus fyrir árin 2015, 2016 og 2017. Að öðru leyti er ekk­ert í lyk­il­töl­unum fyrir árin 2015–2020 sem hefur kallað á sér­staka skoðun á fjár­málum Reykja­vík­ur­borgar,“ segir í svari inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjartans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár