Skuldaviðmið Reykjavíkurborgar verður yfir 150 prósent frá 2022 og fram til ársins 2026

Skulda­við­mið, hlut­fall heild­ar­skulda af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­laga, má vera 200 pró­sent út árið 2025. Reykja­vík­ur­borg ætlar að nýta sér þetta svig­rúm skarpt á næstu árum og fara með skulda­við­miðið úr 79 pró­sent 2019 í 156 pró­sent 2023.

Skulda­við­mið sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar er áætlað á bil­inu 150 til 156 pró­sent á árunum 2022 til 2025. Fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar gerir svo ráð fyrir að við­miðið fari undir 150 pró­sent árið 2026.

Ef ein­ungis er horft á A-hluta borg­ar­innar, þann sem rek­inn er fyrir skattfé, þá er skulda­við­mið hans 70 pró­sent í ár og mun fara upp í 92 pró­sent á árunum 2024 og 2025. Árið 2026 á það svo að lækka niður í 89 pró­sent.

Þetta kemur fram í fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar sem gildir til árs­ins 2026 og lögð var fram í borg­ar­ráði í lok síð­asta mán­aðar.

Hækkað tímabundið vegna kórónuveirufaraldurs

Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum ber sveit­ar­stjórn að sjá til þess að rekstri, fjár­fest­ingum og ráð­stöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveit­ar­fé­lagið muni til fram­tíðar geta sinnt skyldu­bundnum verk­efnum sínum.

Til að full­nægja þess­ari skyldu er sveit­ar­fé­lögum gert að fylgja ákveðnum fjár­mála­reglum. Þær fela í fyrsta lagi í sér svo­kallað jafn­vægis­við­mið, sem segir að sam­an­lögð heild­ar­út­gjöld sam­stæðu til rekstrar á hverju þriggja ára tíma­bili megi ekki verða hærri en nemur sam­an­lögðum reglu­legum tekjum. Í öðrum lagi er svo­kallað skulda­við­mið, sem í felst að heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar sam­stæðu séu ekki hærri en 150 pró­sent af reglu­legum tekjum.

[adspot]Síðara við­miðið var hækkað tíma­bundið upp í 200 pró­sent með lögum sem Alþingi setti í fyrra til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Sú heim­ild er sem stendur í gildi til loka árs 2025.

Skulda­við­mið sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar er að hækka nokkuð skarpt á skömmum tíma. Það var til að mynda 79 pró­sent árið 2019 og á að vera 102 pró­sent í lok þessa árs. Vert er þó að taka fram að stærsta ástæða þess að við­miðið hækkar svona skarpt er að skuldir Orku­veitu Reykja­víkur telja með frá árinu 2022, en hún er næst stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins. Aul þess ætlar borgin sér að vaxa út úr þeirri stöðu sem nú er uppi með því að ráð­ast í sókn­ar­á­ætlun í fjár­fest­ingum. Á meðal þess sem gert verður er að fjár­festa 25-30 millj­örðum króna í við­haldi á skóla- og frí­stunda­hús­næði, fjár­magna betur grunn­sókna borg­ar­innar og bæta við fjár­munum sem renna til vel­ferð­ar­sviðs til að „mæta áskor­unum og auk­inni þjón­ustu“.

Þrátt fyrir aukna skuld­setn­ingu sam­stæðu borg­ar­innar er stefnt á að reka sam­stæðu borg­ar­innar í alls 8,6 millj­arða króna afgangi strax á næsta ári og alls 66,2 millj­arða króna afgangi á árunum 2023 til 2026.

Ekkert sveitarfélag að teygja sig jafn hátt og Reykjavík

Ekkert annað sveit­ar­fé­lag á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ætlar að ráð­ast í sam­bæri­lega skuld­setn­ingu og Reykja­vík vegna efna­hags­að­stæðna. Skulda­við­mið sam­stæðu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar er til að mynda áætlað 97 pró­sent í lok næsta árs en það hefur farið lækk­andi og var 101 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

[links]Í Garðabæ var skulda­við­miðið 73,8 pró­sent í lok síð­asta árs en áætl­anir sveit­ar­fé­lags­ins gera ráð fyrir að það verði búið að vaxa upp í 94,3 pró­sent þegar árið 2022 verður á enda runnið. Í Kópavogi verður skulda­hlut­fallið í lok yfir­stand­andi árs 113,5 pró­sent en áætl­anir gera ráð fyrir að það lækki niður í 105,9 pró­sent á næsta ári.

Á Sel­tjarn­ar­nesi hafa skuldir verið að aukast og skulda­við­mið sam­stæðu sveit­ar­fé­lags­ins er áætlað 86 pró­sent í lok yfir­stand­andi árs. Það mun hins vegar hækka á næstu árum sam­kvæmt áætl­unum og fara í 113,1 pró­sent í árs­lok 2024. Skulda­við­mið A-hluta sveit­ar­fé­lags­ins fer úr 79 pró­sent 2021 í 102 pró­sent 2024 sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins.

Samkvæmt síð­ustu birtu fjár­hags­á­ætlun Mos­fells­bæjar, sem er að verða árs­gömul, þá var stefnt að því að skulda­við­mið Mos­fells­bæjar yrði 111,9 pró­sent í lok árs 2021 en færi síðan lækk­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár