Macron ætlar að sameina sundrað Frakkland

Nýend­ur­kjör­inn Frakk­lands­for­seti heitir að sam­eina sundrað Frakk­land. Nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna gefa þó til kynna að öfga­væð­ing franskra stjórn­mála sé komin til að vera.

Emmanuel Macron var endurkjörinn forseti Frakklands í gær.
Emmanuel Macron var end­ur­kjör­inn for­seti Frakk­lands í gær. Mynd: EPA

Emmanuel Macron, sitj­andi Frakk­lands­for­seti, hafði betur gegn Marine Le Pen, leið­toga öfga­hægri­flokks­ins Rassem­lem­ent National, í síð­ari umferð for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi sem fram fóru í gær. Macron sigr­aði Le Pen, rétt eins og í kosn­ing­unum fyrir fimm árum, en mun­ur­inn var hins vegar mun naum­ari nú en þá. Macron hafði betur með 58,55 pró­sentum gegn 41,45 pró­sentum, en í síð­ustu for­seta­kosn­ingum fékk hann stuðn­ing rúm­lega 66 pró­sent kjós­enda.

Úrslitin eru áhuga­verð og sögu­leg að ýmsu leyti. Þetta er í fyrsta sinn sem sitj­andi for­seti fimmta lýð­veld­is­ins er í raun og veru end­ur­kjör­inn. Sitjandi for­setar hafa vissu­lega setið meira en eitt kjör­tíma­bil en í til­felli François Mitt­er­and 1988 og Jacques Chirac 2002 voru flokkar þeirra í stjórn­ar­and­stöðu þegar for­seta­kosn­ing­arnar fóru fram. Þá var Charles de Gaulle, fyrsti for­seti fimmta lýð­velds­ins, í raun ekki kjör­inn af almenn­ingi þegar hann tók fyrst við emb­ætti.

[adspot]Macron er því fyrst for­set­inn í nútíma­sögu Frakk­lands, þar sem flokkur for­seta hefur verið við stjórn­völ­inn allt fyrra kjör­tíma­bil, sem nær end­ur­kjöri.

Öfgavæðing stjórnmálanna virðist komin til að vera

Macron fagn­aði sigri við glitr­andi Eiffel-turn­inn þar sem hann sagði Frakka hafa kosið „sjálf­stæð­ara Frakk­land og sterk­ari Evrópu“ og hét hann að sam­eina sundrað Frakk­land. En nið­ur­stöður kosn­ing­anna sýna að stuðn­ingur við öfga­öfl í Frakk­landi hafa aldrei verið meiri. Le Pen stóð keik eftir að úrslitin voru ljós og sagði tapið í raun vera glæstan sigur fyrir sig og flokk­inn.

Blaða­maður New York Times full­yrðir að með nið­ur­stöðu kosn­ing­anna hafi lýð­veldi heims­ins kom­ist hjá nýrri, stærð­ar­innar krísu. Sigur Macron merkir að eitt af valda­mestu ríkjum Vestur-Evrópu verður ekki stjórnað af öfga­hægri þjóð­ern­is­sinna sem á sterk tengsl við Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta og vill fjar­lægj­ast NATO.

[links]Sigurinn er virð­ing­ar­vottur við hæfi­leika Macron sem stjórn­mála­manns og stefnu­mót­anda. Í kosn­inga­bar­átt­unni, ekki síst eftir að ljóst varð að Le Pen myndi mæta Macron í síð­ari umferð­inni á kostnað Jean-Luc Mélenchon, for­manns vinstri­flokks­ins Óbugaðs Frakk­lands (f. La France insoumise), mátti greina ákveðið stef hjá kjós­endum að þeir væri í raun að velja á milli tveggja slæmra kosta. „Valið stendur á milli svarta­dauða og kól­eru,“ líkt og einn kjós­and­inn orð­aði það.

Margt hefur breyst í frönskum stjórn­málum á síð­ast­liðnum árum. Flokkur Macron, La République en Marche, sem var í raun stofn­aður í kringum for­seta­fram­boð hans fyrir fimm árum, ætl­aði sér að umbylta frönskum stjórn­málum og end­ur­vekja trú almenn­ings á þeim.

Það hefur að vissu leyti tek­ist, sér­stak­lega ef litið er á gömlu stór­flokk­ana tvo, sós­í­alista og repúblikan­a, en fram­bjóð­endur þeirra hlutu sam­an­lagt tæp 8 pró­sent atkvæða í fyrri umferð for­seta­kosn­ing­anna. Á sama tíma hefur stuðn­ingur við öfga­öfl af hægri og vinstri væng stjórn­mál­anna aldrei veirð meiri, en fram­bjóð­endur þeirra hlutu sam­an­lagt 58 pró­sent atkvæða í fyrra umferð for­seta­kosn­ing­anna. Öfga­væð­ing stjórn­mál­anna virð­ist því komin til að vera.

Kjósendur Mélenchon fylgdu fyrirmælum hans

En hvert er Macron að sækja stuðn­ing sinn?

Franska könn­unar- og rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Ifob spurði kjós­endur á kjör­dag hvort og þá hvernig þeir breyttu atkvæði sínu milli umferða í for­seta­kjör­inu. 45 pró­sent svar­enda sem kusu Mélenchon í fyrr umferð­inni greiddu ekki atkvæði í seinni umferð­inni. Á sama tíma greiddu 42 pró­sent þeirra sem kusu Mélenchon í fyrri umferð­inni Macron atkvæði í sinni umferð­inni. Mélenchon bað stuðn­ings­menn sína um að greiða Le Pen ekki atkvæði sitt en á sama tíma var hann ekki til­bú­inn að lýsa yfir stuðn­ingi við Macron. Segja má að stuðn­ings­menn Mélenchol hafi fylgt fyr­ir­mælum hans að mestu.

Við fyrstu yfir­ferð úrslit­anna kemur í ljós að Macron bætti nær hvergi við sig fylgi á lands­vísu á meðan Le Pen bætti við sig nær alls staðar, skilj­an­lega, en einna helst í stórum hluta dreif­býl­is­svæða í Suður-Frakk­landi.

Kosn­inga­þátt­taka hefur aðeins einu sinni verið minni eftir að núver­andi kosn­inga­fyr­ir­komu­lag var tekið upp og ekki verið lak­ari í tvo ára­tugi. Kjós­endur í nágrenni Parísar mættu helst ekki á kjör­stað að þessu sinni, en þar er einmitt að finna kjós­endur sem greiddu Mélenchon atkvæði í fyrri umferð­inni.

Emmanuel Macron verður for­seti Frakk­lands næstu fimm árin en að þessu seinna kjör­tíma­bili loknu mun hann segja skilið við for­seta­stól­inn, lögum sam­kvæmt. Talið er að Macron muni hefja þetta síð­ara kjör­tíma­bil sitt með því að hlusta á kjós­endur fremur en að taka áhrufa­miklar ákvarð­anir, að minnsta kosti fram yfir þing­kosn­ingar sem fram fara í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár