Trump ætlar út með hvelli – vill náða hundrað til viðbótar

Á síð­asta heila dag Donalds Trump í Hvíta hús­inu á morgun er hann sagður stefna á að náða um 100 manns, m.a. hvít­flibba­glæpa­menn og þekkta rapp­ara. Hvort hann veiti sér og sínum fyr­ir­fram náðun er enn óvíst.

Enn er óvíst hvort að Trump lætur verða af því að veita sjálfum sér fyrirfram náðun.
Enn er óvíst hvort að Trump lætur verða af því að veita sjálfum sér fyr­ir­fram náðun. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti und­ir­býr nú að náða eða milda dóma yfir hund­rað ein­stak­linga. For­seta­tíð hans lýkur innan fárra daga. Fréttir af ákvörð­un­inni birt­ust í fjöl­miðlum vest­an­hafs í nótt en talið er að síðar í dag eða á morgun muni fyr­ir­ætl­anir for­set­ans form­lega verða kynntar.

Samkvæmt heim­ildum Washington Post átti Trump í gær fundi með sínum nán­ustu ráð­gjöfum, m.a. tengda­syni sínum Jared Kushner og dóttur sinni Ivönku Trump. Á fund­inum var farið yfir langan óska­lista um náð­anir. Þá herma heim­ildir blaðs­ins einnig að und­an­farna viku hafi Trump verið upp­tek­inn af vanga­veltum um hvort hann geti náðað full­orðin börn sín, aðra helstu ráð­gjafa – og sjálfan sig – fyr­ir­fram og þannig tryggt sig og sína gegn því að verða ákærð og dæmd í fram­tíð­inni. Aðgerðin kall­ast „preemptive pardon“ á ensku.

[adspot]

Ekki er enn ljóst hvort að Trump mun fara þá leið, sem er enda mjög umdeild. Hann hefur slegið þessu fram oftar en einu sinni en sumir ráð­gjafar hans hafa varað hann við því að nota vald til náð­ana sjálfum sér í hag.

CNN og Washington Post segja í sínum fréttum af áform­uðum náð­unum for­set­ans að lög­menn fjölda dæmdra manna hafi síð­ustu vikur þrýst á for­set­ann að náða skjól­stæð­inga sína. Þessi þrýst­ingur var fyr­ir­séður því Trump hefur sagt að vald til náð­unar, sem for­set­inn einn hefur, séu fríð­indi sem séu honum að skapi. Meðal þeirra sem CNN hefur heim­ildir fyrir að verði náð­aðir er fjöldi hvít­flibba­glæpa­manna og nokkrir þekktir rapp­arar.

Hefur þegar náðað 94

Það er óhætt að segja að nokkur ringul­reið hafi ein­kennt starf­semi Hvíta húss­ins að und­an­förnu. Mis­vísandi skila­boð hafa komið þaðan varð­andi ýmsa hluti, m.a. náð­anir. Í síð­ustu viku var lög­mönnum sem sótt höfðu náðun umbjóð­enda sinna stíft sagt að ganga yrði frá slíku fyrir helg­ina. En svo reynd­ist ekki vera og for­set­inn er sagður hafa tekið annan snún­ing á mál­inu í gær, sunnu­dag.

Trump hefur þegar náðað 94 ein­stak­linga. Í vik­unni fyrir jól náð­aði hann á einu bretti 49 – aðal­lega vini og póli­tíska stuðn­ings­menn. Nokkrir nánir sam­starfs­menn hans fengu náð­un­ar­stimp­il­inn, m.a. fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóri hans, Paul Manaford og vinur hans til ára­tuga Roger Stone. Þá náð­aði hann einnig Michael T. Flynn sem var þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi hans um hríð. Charles Kushner, faðir tengda­sonar hans, hlaut einnig náðun sem og þrír fyrr­ver­andi þing­menn repúblik­ana og fjórir verk­takar Banda­ríkja­hers sem áttu þátt í drápum á óvopn­uðum borg­urum í Íraks­stríð­inu.

Í ítar­legri frétta­skýr­ingu Washington Post segir að um 14 þús­und beiðnir um náðun og mildun refs­ingar hafi borist for­set­anum. Trump hefur, eins og svo oft áður, farið sínar leiðir í mála­flokknum. Hann hefur farið sér hægar en aðrir for­setar, beðið fram á síð­ustu stundu og svo hefur hann ekki leitað ráð­gjafar hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu eins og hefð er fyrir. Þess í stað hefur hann leitað til vina og vanda­manna um hverja skuli náða.

Þetta hefur orðið til þess að margir þeir sem óskað hafa eftir náðun hafa ekki farið með mál sín í gegnum dóms­mála­ráðu­neytið sem hefur þýtt að form­legar leiðir ráðu­neyt­is­ins, sem m.a. getur falið í sér að fólk gang­ist við glæpum sínum og sýni iðrun, hafa verið snið­gengnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár