Guðni Th. Jóhannesson var endurkjörinn forseti Íslands með 92,2 prósent atkvæða. Í frétt RÚV segir að lokatölur úr síðasta kjördæminu, Suðvesturkjördæmi, hafi borist á áttunda tímanum í morgun.
Guðmundur Franklín Jónsson, sem bauð sig fram gegn Guðna, hlaut 7,8 prósent atkvæða.
[adspot]
Kjörsókn var 66,9 prósent. Hún var mest í Suðvesturkjördæmi eða 68 prósent.
[links] Kjörsókn á landsvísu var 66,9 prósent, en í Suðvesturkjördæmi var hún 68 prósent. Á vef RÚV kemur fram að 168.821 atkvæði hafi verið greitt í kosningunum. 150.913 kusu Guðna en 12.797 Guðmundur Franklín.
Þetta er í fullu samræmi við kosningaspá Kjarnans og Dr. Baldurs Héðinssonar, sem birt var á föstudag. Samkvæmt henni var Guðni líklegur til að fá 92,03 prósent atkvæða og Guðmundur Franklín 7,7 prósent. Spáin var gerð út frá fyrirliggjandi könnunum um fylgi forsetaframbjóðanda.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir