Kosningaspá: 99,9 prósent líkur á því að Guðni Th. verði áfram forseti Íslands

Nið­ur­stöður Kosn­inga­spár­innar sýna að Guðni Th. Jóhann­es­son muni sigra í for­seta­kosn­ing­unum á morgun með yfir­burðum. 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar, byggðar á síð­ustu könn­unum, sýndu að líkur Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar á sigri eru 0,1 pró­sent.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, er lík­legur til að fá 92,3 pró­sent greiddra atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fara á morgun, laug­ar­dag. Guð­mundur Franklín Jónsson, eini mót­fram­bjóð­andi hans, myndi sam­kvæmt þessu frá 7,7 pró­sent greiddra atkvæða.

Þetta er nið­ur­staða kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar sem gerð er úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda.

Vægi kannana í kosningaspánni er eftirfarandi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 11. - 18. júní (35,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun EMC rann­sókna 3. - 8. júní (23,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Zenter 15. - 18. júní (41,0 pró­sent)

Líkur Guðna á því að ná kjöri eru, sam­kvæmt mód­eli kosn­inga­spár­innar, 99,9 pró­sent en líkur Guð­mundar Frank­líns 0,1 pró­sent. Spá um hversu lík­legir fram­bjóð­endur eru til að ná kjöri á laug­ar­dag­inn byggir á 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingum.

Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal skoð­ana­kann­ana lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Síðustu kannananir alla jafna nálægt úrslitum

Baldur hefur einnig tekið saman gögn yfir skoð­ana­kann­anir og úrslit for­seta­kosn­inga sem fram fóru árin 1996, 2004, 2012 og 2016 með það fyrir augun að kanna hversu nærri kann­anir sem birtar voru í vik­unni fyrir kosn­ingar eru raun­veru­legum úrslitum.

[adspot]Í sam­an­tekt­inni eru tekin saman með­al­frá­vik allra fram­bjóð­enda sem fá meira en fimm pró­sent í kosn­ingum í öllum könn­unum sem gerðar voru á skoð­un­ar­tíma­bil­inu. Sú aðferð­ar­fræði sýnir hversu mikil hreyf­ing var á fylgi fram­bjóð­enda síð­ustu dag­ana áður en að við­kom­andi kosn­ingar fóru fram.

Síðan voru teknar saman upp­lýs­ingar um hvaða fram­bjóð­andi var með hæst með­al­frá­vik, til að sjá hvort að könn­un­ar­að­ilar voru að van- eða ofmeta ein­hvern fram­bjóð­anda. að lokum var tekið saman hvert var hæsta ein­staka frá­vik yfir allar kann­anir og alla fram­bjóð­endur til að sjá hvert var hæsta frá­vikið í þeim kosn­ingum.

Nið­ur­stöð­urnar eru eft­ir­far­andi:

1996

  • Með­al­frá­vik fram­bjóð­enda með meira en 5 - 1,9 pró­sent
  • Hæsta með­al­frá­vik eins fram­bjóð­anda Ólafur Ragnar Grímsson 2,2 pró­sent
  • Hæsta ein­staka frá­vik Guðrún Agn­ars­dóttir 6,3 pró­sent

2004

  • Með­al­frá­vik fram­bjóð­enda með meira en 5 - 4,1 pró­sent
  • Hæsta með­al­frá­vik eins fram­bjóð­anda Ólafur Ragnar Grímsson 4,5 pró­sent
  • Hæsta ein­staka frá­vik Ólafur Ragnar Grímsson 5,2 pró­sent

2012

  • Með­al­frá­vik fram­bjóð­enda með meira en 5 - 1,8 pró­sent
  • Hæsta með­al­frá­vik eins fram­bjóð­anda Ólafur Ragnar Grímsson 4,1 pró­sent
  • Hæsta ein­staka frá­vik Ólafur Ragnar Grímsson 4,3 pró­sent

2016

  • Með­al­frá­vik fram­bjóð­enda með meira en 5 - 4,3 pró­sent
  • Hæsta með­al­frá­vik eins fram­bjóð­anda Halla Tóm­as­dóttir 9,7 pró­sent
  • Hæsta ein­staka frá­vik Halla Tóm­as­dóttir 11,6 pró­sent

Nið­ur­stöð­urnar benda til að síð­ustu kann­anir fyrir for­seta­kosn­ingar séu alla jafna nærri kosn­inga­úr­slitum. Frávikin eru tvö til fimm pró­sent að með­al­tali. Frávik ein­stakra fram­bjóð­enda hefur verið meira, sér­stak­lega ef fylgi er á hreyf­ingu síð­ustu daga fyrir kosn­ingar. Slíkt frá­vik hefur þó ekki verið í yfir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu þar sem að engin kann­anir sem könn­un­ar­fyr­ir­tækin hafa gert hafa sýnt neitt frá­vik um að Guð­mundur Franklín hafi unnið á gagn­vart sitj­andi for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár