Forsetaframboð Guðmundar Franklíns kostaði tæpar fimm milljónir

Guðni Th. Jóhann­es­son, sem fékk 92,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu for­seta­kosn­ingum, eyddi um þriðj­ungi af því sem mót­fram­bjóð­andi hans eyddi í kosn­inga­bar­átt­una.

Guðmundur Franklín Jónsson.
Guð­mundur Franklín Jónsson. Mynd: Úr safni.

For­seta­fram­boð Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar kost­aði alls 4.650 þús­und krónur. Þar af greiddi fram­bjóð­and­inn 1.647 þús­und krónur sjálfur í fram­lög, ein­stak­lingar lögðu honum til 1.813 þús­und krónur og lög­að­ilar 1.190 þús­und krónur. Þorri kostn­aðar vegna fram­boðs­ins var vegna aug­lýs­inga og kynn­ing­ar­kostn­aðar, alls 3,5 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í upp­gjöri sem Guð­mundur Franklín skil­aði inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar og var birt í vik­unni. Sitjandi for­seti, Guðni Th. Jóhann­es­son, eyddi ein­ungis um þriðj­ungi af því sem Guð­mundur Franklín eyddi, eða alls 1.516 þús­und krónum. Framboð hans keypti engar aug­lýs­ingar. Framlög til Guðna Th. frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum námu 2.129 þús­und krónur og því kom fram­boðið út í hagn­aði, sam­kvæmt upp­gjöri sem það skil­aði til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

[adspot]For­seta­kosn­ing­arnar fóru fram í lok júní síð­ast­lið­inn og voru Guðni Th. og Guð­mundur Franklín einu tveir sem voru í fram­boði. Guðni, sem var fyrst kjör­inn for­seti sum­arið 2016, fékk 92,2 pró­sent atkvæða en Guð­mundur Franklín fékk 7,8 pró­sent. Kjör­sókn var 66,9 pró­sent.

Þeir lög­að­ilar sem gáfu mest til Guð­mundar Franklín voru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Hólmi ehf. (300 þús­und krónur), Erik the red Seafood ehf. (200 þús­und krónur), Góa-Lind sæl­gæt­is­gerð ehf. (200 þús­und krónur), KFC ehf. (200 þús­und krónur) og Bak­ara­meist­ar­inn ehf. (200 þús­und krónur).

Einungis einn lög­að­ili gaf 200 þús­und krónur eða yfir til fram­boðs Guðna Th. Það var félagið KBK Eignir ehf. sem gaf 200 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár