Guðmundur Franklín býður sig fram til forseta og ætlar að stöðva orkupakka

Guð­mundur Franklín Jónsson vill verða næsti for­seti Íslands. Hann ætlar að berj­ast gegn orku­pökkum og spill­ingu. Guð­mundur Franklín bauð sig líka fram 2016 en dró þá fram­boð sitt til baka.

Hér sést Guðmundur Franklín Jónsson flytja ræðu sína fyrr í dag.
Hér sést Guð­mundur Franklín Jónsson flytja ræðu sína fyrr í dag. Mynd: Skjáskot

Guð­mundur Franklín Jónsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Í ræðu sem hann flutti í gegnum Facebook í morgun kom fram að það væri gert eftir nokkra íhugun og mikla hvatn­ingu. Framboð hans muni í meg­in­þáttum snú­ast um að efla for­seta­emb­ættið, nýta mál­skots­rétt­inn og leggja hans af mörkum til að berj­ast gegn spill­ingu. Hann bauð sig líka fram til for­seta árið 2016 en dró þá fram­boð sitt til baka nokkrum vikum síðar og lýsti yfir stuðn­ingi við Ólaf Ragnar Grímsson, sem hætti stutt­lega við að hætta við að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Ólafur Ragnar dró svo fram­boð sitt til baka og var ekki í fram­boði þá um sum­arið.

Guð­mundur Frank­lín stofn­aði og var for­maður í stjórn­mála­flokknum Hægri græn­um, sem bauð fram í þing­kosn­ing­um 2013, en var nokkuð frá því að ná inn á þing. Flokk­ur­inn var lagður niður 2016 og rann inn í Íslensku þjóð­fylk­ing­una. Guð­mundur Franklín gaf kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar 2016 en hlaut ekki braut­ar­gengi. Í fyrra tók hann virkan þátt í bar­áttu­hópnum Orkan okkar, sem lagð­ist gegn sam­þykkt hins svo­kall­aða þriðja orku­pakka.

Hann hefur starfað sem hót­el­stjóri á Hotel Klippen í Gudhjem á Borg­und­ar­hólmi í Danmörku frá árinu 2013 og því ekki búið á Íslandi árum saman.

Ætlar að berjast gegn næstu orkupökkum

Í ræð­unni í dag sagði Guð­mundur Franklín að hann teldi það mik­inn mis­skiln­ing að hlut­verk for­seta Íslands ætti að ein­skorð­ast við að brosa framan í erlenda erind­reka og flytja ávarp við hátíð­leg til­efni. „Embættið á alls ekki að vera til skrauts heldur á for­set­inn að vinna með virkum hætti í þágu þjóð­ar­innar og leita allra leiða við að þjón­usta hana og styðja. Þjóðin er hér algert lyk­il­at­riði en hvorki Alþingi né aðrir emb­ætt­is­menn eiga nokkurn tím­ann að vera teknir fram fyrir hag hennar enda eru þeir einnig í þjón­ustu­hlut­verki gagn­vart henni. Það þarf að breyta hugs­un­ar­hætt­inum á Íslandi því allt of lengi hefur það við­geng­ist að spill­ingin fái að grass­era og ráða­menn standi aðgerða­lausir hjá.“

Hann sagði að þjóðin hefði ítrekað þurft að kyngja því að stórar upp­hæðir væru hafðar út úr þjóð­ar­bú­inu. „Okkur hefur svo liðið eins og við getum ekk­ert gert, sama hvað við kjósum þá endi þetta alltaf eins. Þessu skulum við breyta. Við þurfum ekki að sætta okkur við þetta. Það er til fólk sem styður ekki spill­ingu og mun ekki sætta sig við hana. Það er til fólk sem er til­búið til að breyta þessu og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koll­varpa þessum illu öflum. Ég er einn af þeim. Ég get ekki horft upp á þetta lengur og ég segi hér með spill­ing­unni stríð á hendur.“

[adspot]Í nið­ur­lagi ræð­unnar sagði Guð­mundur Franklín að hann heiti því að ef hann verði for­seti þá muni orku­pakki fjögur og fimm ekki fara í gegn hjá for­set­anum heldur fái þjóðin að kjósa um þá. „Eins heiti ég því að ESB verði aldrei sam­þykkt án und­an­geng­innar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Ég ætla mér að berj­ast fyrir þjóð­ina og hætta ekki fyrr en þjóðin fær að eiga sínar auð­lindir og sinn auð sjálf. Ég ætla að tryggja að hún sé vel upp­lýst í öllum málum og fái að taka sem mestan þátt í mál­efnum sem hana varðar. Mitt fram­boð er gegn spill­ingu, með auknu gagn­sæi, með beinu lýð­ræði og fyrir þjóð­ina. Þetta er það sem ég stend fyrir sem for­seta­fram­bjóð­andi og sem mann­eskja.“

Tveir þegar í framboði

Guð­mundur Franklín er þriðji ein­stak­ling­ur­inn sem til­kynnt hefur um for­seta­fram­boð.

Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti í nýársávarpi sínu sem hann flutti í beinni útsend­ingu á fyrsta degi árs­ins að hann ætli að sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Guðni var kjör­inn for­seti sum­arið 2016 og tók við emb­ætt­inu í ágúst sama ár. Hann hefur mælst nær for­dæma­laust vin­sæll for­seti á sama tíma og van­traust til stjórn­mála hefur mælst mik­ið.

Axel Pétur Axelsson hefur einnig til­kynnt um fram­boð. Í sam­tali við Frétta­blaðið fyrr í apríl sagði hann að það „fyrsta sem ég mun gera ef ég verð for­seti er að reka alla rík­is­stjórn­ina eins og hún leggur sig.“ Þess ber að geta að á Íslandi er þing­ræði og for­seti hefur því ekki valdi til að reka rík­is­stjórn.

Þurfa 1.500 meðmælendur

Alþingi sam­þykkti í síð­ustu viku bráða­birgða­á­kvæði í lögum um fram­boð og kjör for­seta Íslands sem gerir fram­bjóð­endum til emb­ætt­is­ins heim­ilt að safna raf­rænum með­mælum, í ljósi þess ástands sem ríkir vegna COVID-19. Hver fram­bjóð­andi þarf að safna að minnsta kosti 1.500 með­mæl­endum frá kosn­inga­bærum mönnum. Ákvæðið fellur úr gildi í byrjun næsta árs.

Takist nýjum fram­bjóð­endum að fá 1.500 með­mæl­endur þá mun verða kosið til for­seta 27. júní næst­kom­andi. Með­mæl­endur þurfa að vera sam­kvæmt ákveð­inni skipt­ingu milli lands­fjórð­unga, og skila þarf und­ir­skriftum inn til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, ásamt sam­þykki for­seta­efnis og vott­orðum yfir­kjör­stjórna um að við­kom­andi sé kosn­ing­ar­bær. Að hámarki má safna þrjú þús­und með­mæl­endum.

Áætlað er að for­seta­kosn­ingar muni kosta rík­is­sjóð allt að 400 millj­ónir króna vegna fram­kvæmdar þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár