Guðni Th. býður sig fram að nýju í komandi forsetakosningum

Forseti Íslands, sem lýkur sínu fyrsta kjör­tíma­bili síðar á þessu ári, mun sækj­ast eftir því að sitja áfram í emb­ætt­inu í fjögur ár til við­bótar.

Eliiza Reid og Guðni Th. Jóhannesson.
Eliiza Reid og Guðni Th. Jóhann­es­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son ætlar að bjóða sig fram á ný til emb­ættis for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hann í nýársávarpi sínu sem hann flutti í beinni útsend­ingu í dag.

[links]„Í þessum efnum er ákvörðun aldrei sjálf­sögð. Hana hlýtur maður að taka að vel athug­uðu máli, í ljósi feng­innar reynslu, í sam­ráði við sína nán­ustu. Þegar fyrri for­setar stóðu í svip­uðum sporum í fyrsta sinn var til­kynn­ing um fram­boð gefin þegar nær dró fyr­ir­hug­uðum kjör­degi en flest er breyt­ingum háð í heimi hér. Þeir, sem sinna þessu emb­ætti, móta það eftir eigin óskum og tíð­ar­anda, með hlið­sjón af venju og hefð, og innan þess ramma sem stjórn­skipun leyfir. Stjórn­ar­skrár­nefnd situr nú að störfum, eins og svo oft áður. Nefnd­ar­menn hafa hreyft þeirri hug­mynd að tak­marka hversu lengi hver megi vera á for­seta­stóli. Þá hafa þeir rætt aðrar breyt­ingar á ákvæðum stjórn­ar­skrár um völd og verk­svið þjóð­höfð­ingj­ans. Þessu ber að fagna,“ sagði Guðni í ávarpi sínu.

Guðni var kjör­inn for­seti sum­arið 2016 og tók við emb­ætt­inu í ágúst sama ár. Hann hefur mælst nær for­dæma­laust vin­sæll for­seti á sama tíma og van­traust til stjórn­mála hefur mælst mikið.

Í ávarp­inu sagði Guðni að þegar hann hafi verið að leggja drög að því hafi hann verið spurður hvað hann ótt­að­ist mest um fram­tíð Íslands. „Eftir stutta umhugsun kvaðst ég helst ótt­ast að ágrein­ingur og ill­deilur yfir­gnæfi ein­ingu um grunn­gildi okkar, og sömu­leiðis að almenn von­gleði og dugur víki smám saman fyrir svart­sýni og doða. Og hvað þarf til að svo fari ekki? Hver eru grunn­gildin? Á hverju getur vonin byggt? Ekki á lygi og svör verða seint ein­hlít en sé okkur ókleift að sam­ein­ast um það sem hér fer á eftir er illt í efni: Við þurfum að verja og efla það sam­fé­lag sem veitir öllum jöfn tæki­færi til að sýna hvað í þeim býr en knýr fólk um leið til að leggja fram sinn sann­gjarna skerf í almanna­þágu. Enginn má sker­ast úr leik og allra síst með belli­brögðum. Við þurfum sam­fé­lag þar sem þeir njóta aðstoðar sem á henni þurfa að halda, þar sem eng­inn í nauðum þarf að ganga með betlistaf. Við þurfum sam­fé­lag víð­sýni, umburð­ar­lyndis og rétt­lætis, sam­fé­lag fjöl­breytni, frelsis og friðar.“

Forsetinn sem varð til í beinni útsendingu

Í nýársávarp­inu sínu á fyrsta degi árs­ins 2016 til­kynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann yrði ekki í fram­boði í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fóru sum­arið 2016.

Miklar bolla­legg­ingar hófust um hverjir myndu bjóða sig fram. Nöfn eins og Jón Gnarr, Katrín Jak­obs­dóttir, Andri Snær Magnason og Össur Skarp­héð­ins­son voru hávær í umræð­unni.

[adspot]Í byrjun apríl 2016 breytt­ust hins vegar for­sendur for­seta­kosn­ing­anna algjör­lega þegar Panama­skjölin voru opin­beruð, fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar leiddu til afsagnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og sú rík­is­stjórn sem tók við lof­aði þing­kosn­ingum um haustið.

Öll þessi atburða­rás átti sér stað nán­ast í beinni útsend­ingu á RÚV. Þann 4. apríl, fyrir þremur árum síðan, hafði staðið til að halda stuttan auka­frétta­tíma til að fara yfir þá sögu­lega atburði sem voru að eiga sér stað. Þann dag flakk­aði Sig­mundur Davíð um höf­uð­borg­ar­svæðið með tösku sem inni­hélt skjal með ósk um þing­rofs­heim­ild. Hann fór meðal ann­ars til fundar við Ólaf Ragnar og bar upp þá ósk, sem for­set­inn hafn­aði. Ólafur Ragnar hélt svo blaða­manna­fund í kjöl­farið þar sem hann útskýrði hvað hefði átt sér stað.

Í setti hjá RÚV var Guðni Th. Jóhann­es­son í hlut­verki sér­fræð­ings og hann ílengd­ist í gegnum mara­þonútsend­ing­una, leiddi þjóð­ina í gegnum fárán­leika atburð­ana sem voru að eiga sér stað og sló í gegn.

Í kjöl­farið fór áskor­unum að rigna yfir Guðna um að bjóða sig fram til for­seta.

Hættur við að hætta við

Ólafur Ragnar hafði hins vegar runnið á blóð­lykt­ina og ákvað að hætta við að hætta við að bjóða sig aftur fram 18. apríl. Hann taldi þjóð­ina þurfa á sér að halda „í þessu umróti óvissu og mót­mæla.“

Í fyrstu skoð­ana­könnun sem gerð var eftir þetta mæld­ist Ólafur Ragnar með 53 pró­sent stuðn­ing. En þrýst­ingur á Guðna um fram­boð hélt áfram. Í könnun sem birt var í byrjun maí var eng­inn mark­tækur munur á stuðn­ingi við hann og Ólaf Ragnar. 51 pró­sent sögð­ust vilja Guðna, sem hafði ekki til­kynnt um fram­boð, sem for­seta en tæp 49 pró­sent Ólaf Ragnar.

Ólafur Ragnar rataði svo í vand­ræði í byrjun maí þegar Kjarninn greindi frá beinum tengslum eig­in­konu hans, Dorritar Moussaieff, við aflands­fé­lög. Ólafur hafði áður neitað því afdrátt­ar­laust á CNN að fjöl­skylda hans hefði nokkur tengsl við slík.

Þann 5. maí til­kynnti Guðni svo um fram­boð sitt.

Davíð mætir

Þremur dögum síðar æst­ust leikar enn frekar þegar Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og þáver­andi og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, ákvað að bjóða sig líka fram.

Daginn eftir það til­kynnti Ólafur Ragnar að hann væri hættur við að hætta við að hætta. Opinbera skýr­ingin var að Guðni og Davíð væru nægi­lega fram­bæri­legir fram­bjóð­endur til að hann gæti stigið af svið­inu. Þeim væri treystandi.

[adspot]Ljóst varð strax að Guðni hafði kosn­inga­bar­átt­una í hendi sér. Hann mæld­ist strax með feiki­lega yfir­burði í könn­unum og með lang­mest fylgi þeirra níu sem enn voru í fram­boði eftir að fram­boðs­frestur rann út.

Hann þótti reka nokkuð lit­lausa og örugga kosn­inga­bar­áttu sem ein­kennd­ist af því að reyna að gera ekki mis­tök á meðan að Davíð lagð­ist í drullu­kast og reyndi eftir fremsta megni að draga Guðna, sem hann taldi sinn helsta and­stæð­ing, þangað niður til sín. Á víg­völl sem Davíð þekkir vel.

Á end­anum vann Guðni nokkuð öruggan sigur og varð við það sjötti for­seti Íslands. Hann fékk 39,1 pró­sent atkvæða. Davíð varð fjórði á eftir Guðna, Höllu Tóm­as­dóttur og Andra Snæ Magna­syni með 13,7 pró­sent atkvæða þrátt fyrir að hafa rekið dýr­ustu kosn­inga­bar­átt­una. Á end­anum kost­aði hvert atkvæði sem Davíð fékk hann 1.103 krónur.

„Minn sigur var varn­ar­sigur í ljósi þró­un­ar­innar,“ sagði Guðni hóg­vær í útvarps­við­tali skömmu eftir kosn­ing­arnar.

Samstöðuforsetinn

Guðni Th. Jóhann­es­son tók svo form­lega við emb­ætti for­seta Íslands 1. ágúst 2016 við hátíð­lega athöfn í Alþing­is­hús­inu. Hann hóf ræðu sína á því að þakka fyrir traustið sem honum hafi verið sýnt með kjör­inu í emb­ættið og sagð­ist taka við því með auð­mýkt í hjarta. „Ég mun og vil þiggja ráð og leið­sögn frá ykkur öll­um, fólk­inu í land­in­u.“

Hann lauk ræðu sinni á því að segja að hann vildi að þjóðin stæði „saman um fjölbreytni og frelsi, sam­hjálp og jafnrétti, virð­ingu fyrir lögum og rétti. Stöndum saman um þessi grunn­gildi góðs samfélags, vongóð og full sjálfs­trausts. Megi sú verða gæfa okkar um alla framtíð.“

Nokkrum vikum síðar náð­ist mynd af honum fyrir utan Dominos-pizzastað þar sem hann var að sækja Megaviku-til­boð fyrir fjöl­skyld­una. Hann flutti erindi á Hinsegin dögum fyrstur íslenskra for­seta. Hann hafn­aði launa­hækkun sem honum var skammtað í októ­ber 2016. Hann lét mynda sig með buff frá Alzheimer-sam­tök­unum. Hann sýndi æðru­leysi og þol­in­mæði við for­dæma­lausa erf­ið­leika við að mynda rík­is­stjórn eftir þing­kosn­ing­arnar 2016.

Og þetta voru ein­ungis fyrstu mán­uð­irnir í starfi.

Mikil ánægja samkvæmt könnunum

Und­an­farin ár, áður en Guðni tók við emb­ætt­inu, höfðu á bil­inu 15-30 pró­­sent lands­manna sagst vera óánægð með störf Ólafs Ragn­­ars Gríms­­sonar sem for­­seta, en ánægjan með störf hans mæld­ist á bil­inu 45-64 pró­­sent. Mest mæld­ist ánægjan með Ólaf Ragnar í febr­úar 2013, þegar nýbúið var að kveða upp dóm í Icesave-mál­inu, og í síð­ustu mæl­ing­unni sem fram­kvæmd var áður en Ólafur Ragnar lét af emb­ætti sum­arið 2016.

Ánægja með störf Guðna er hins vegar miklu meiri. Í fyrstu könnun MMR um ánægju með for­set­ann sem fram­kvæmd var eftir að hann tók við sögð­ust 68,6 pró­sent vera ánægð með Guðna.

Þegar stuðn­ingur við Guðna var kann­aður í des­em­ber 2016 kom í ljós að 80 pró­sent aðspurðra voru ánægðir með störf hans. Þegar ein­ungis var skoðað þá sem tóku afstöðu þá var stuðn­ingur við hann 96 pró­sent.

Þannig hefur stuðn­ing­ur­inn verið nær sleitu­laust síðan. Í mæl­ingu MMR, sem birt var 9. apríl síð­ast­lið­inn, sagð­ist 81,6 pró­sent þjóð­ar­innar vera ánægð með störf for­seta síns. um 93,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu voru sáttir með hann.

Fréttin byggir að hluta til á frétta­skýr­ingu sem birt­ist í Kjarn­anum í apríl 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár