Guðni Th: „Minn sigur var varnarsigur“

Nýr for­seti Íslands fer til Frakk­lands í fyrra­málið. Hann segir sigur sinn í for­seta­kjör­inu hafa verið varn­ar­sigur í ljósi þró­un­ar­innar.

Guðni Th. Jóhann­es­son, verð­andi for­seti Íslands, fer til Frakk­lands í fyrra­málið og verður við­staddur leik Íslands og Englands á Evr­ópu­mót­inu í fót­bolta. Frá þessu greindi hann í við­tali við Hallgrím Thor­steins­son á Rás 2 í morgun.

Í við­tal­inu ræddi Guðni um kosn­inga­bar­átt­una sem er að baki og það sem framundan er. Hann við­ur­kenndi að kannski hefði hann fallið í þá gryfju í kosn­inga­bar­átt­unni að halda að sig­ur­inn væri í höfn, og að vissu marki með­vitað en þó meira ómeð­vitað hugsað að hann yrði næsti for­seti. Hann hafi samt aldrei verið far­inn að skipu­leggja sig þannig, og haft varnagla þar á. „Ekkert er víst fyrr en klukkan tíu á kjör­degi þegar kjör­stöðum er lokað.“

Hann við­ur­kenndi einnig að hafa brugðið við fyrstu tölur, sem voru úr Suð­ur­kjör­dæmi og sýndu lít­inn mun á fylgi hans og Höllu Tóm­as­dóttur. „Ég vissi að Halla hafði sótt mikið á enda átti hún mikið fylgi inni,“ sagði Guðni og sagð­ist óska Höllu og öllum hinum fram­bjóð­end­unum alls hins besta.

Hann hafi hins vegar róast við orð Davíðs Odds­sonar þegar frek­ari tölur höfðu borist. „Það var hann sem tók af skarið, sem álits­gjafi, um það að sig­ur­inn væri í höfn. Þá hvarf þessi kvíði sem kvikn­aði þegar fyrstu tölur bár­ust.“

Hall­grímur hafði orð á því hversu miklu afslapp­aðri og vina­legri fram­bjóð­end­urnir hafi verið í sjón­varps­sal þegar kosn­ing­unum var lokið. Guðni segir það að hluta til hafa verið af því að línur voru farnar að skýr­ast. „Davíð vissi sem var að hann myndi ekki hafa sigur, Andri Snær örugg­lega líka, og Halla, hennar sigur fólst í hinu mikla fylgi sem sveifl­að­ist til hennar. Minn sigur var varn­ar­sigur í ljósi þró­un­ar­innar.“ Það hafi verið mikil rússi­ban­areið að fylgj­ast með skoð­ana­könn­unum.

Guðni sagði jafn­framt að í langri kosn­inga­bar­áttu geti það reynst snúið að selja hug­myndir hans um for­seta­emb­ættið æ ofan í æ. Forseta sem ætti ekki að vera með neinum í liði og standa utan við og ofan við ýmis deilu­mál í sam­fé­lag­inu.

Hann sagði jafn­framt að hann vænti þess að mál­efni for­set­ans og stjórn­ar­skrár­innar verði rædd í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga. Hann væri fylgj­andi ákvæði um beint lýð­ræði, því for­seti verði að fylgja sinni sann­fær­ingu fyrst og fremst og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur ekki að vera honum háðar ein­göngu. Það væri ekki Íslandi til fram­dráttar að búið væri að ræða um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni frá 2009, og ein­hverjum áföngum hafi verið náð en málið ekki klárað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár