Dorrit átti hlut í aflandsfélögum og tengist svissneskum bankareikningum

For­seta­frúin Dorrit Moussaieff hefur tengst minnst fimm banka­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­skyldu sína og að minnsta kosti tveim aflands­fé­lögum, sam­kvæmt gögnum sem upp­ljóstr­arar létu Le Monde, Südd­eutshe Zeitung og ICIJ í té.

Dorrit Moussaieff, eig­in­kona Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta Íslands, hefur tengst minnst fimm banka­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­skyldu sína og að minnsta kosti tveim aflands­fé­lögum. Þetta kemur fram í gögnum sem upp­ljóstr­arar létu Le Monde, Südd­eutshe Zeitung og ICJ fá og kall­ast Swiss Leaks og Panama Papers. Greint frá þessu í frétt á heima­síðu Reykja­vik Media í dag. Auk þess birt­ist fréttin víða ann­ars­staðar í heims­press­unni, meðal ann­ars á vef The Guardian og á vef Suddeutche Zeitung.

Í fréttum miðl­anna segir m.a. að Moussaieff-fjöl­skyldan, þar á meðal systur Dorritar, þæ Tamara og Sharon, hafi átt reikn­inga með allt að 80 milljón dala inn­stæðum í HSBC bank­anum í Sviss á árunum 2006 og 2007. Þar kemur þó sér­stak­lega fram að Dorrit virð­ist ekki sjálf koma að flestum reikn­ing­unum. Auk þess sýni upp­lýs­ing­arnar að Dorrit hafi átt hlut á móti fjöl­skyldu sinni í Jaywick Properties Inc, sem skráð er til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og félag­inu Moussaieff Sharon Trust. Sér­stak­lega er tekið fram að gögnin sýni ekki fram á að for­seta­frúin hafi gert neitt ólög­legt.

Á vef Reykja­vik Media segir að Dorrit hafi ekki viljað svara spurn­ingum um hvort hún tengd­ist félög­unum þegar eftir því var leitað. Við­skipti sín hefðu alltaf verið í sam­ræmi við lög og að þau væru einka­mál.

Lögmenn Dorritar sögðu við fjöl­miðl­ana sem unnu að frétt­inni að hún og Ólafur Ragnar hafi alltaf verið með aðskildan fjár­hag og hafi þar af leið­andi ekk­ert vitað um fjár­hags­stöðu hvors ann­ars. Einnig var haft sam­band við Örnólf Thorsson for­seta­rit­ara sem sagði að Ólafur Ragnar hafi ekk­ert vitað um aflands­fé­lögin og að hann hefði aldrei heyrt um þau. Hann hafi aldrei nokkurn tím­ann haft upp­lýs­ingar um fjár­mál eig­in­konu sinnar eða ann­arra fjöl­skyldu­með­lima hennar.

Neitaði að eitthvað ætti eftir að koma í ljós um sig eða fjölskyldu sína

Kjarninn greindi frá því i síð­ustu viku að félag í eigu fjöl­skyldu Dor­rit­ar átti félag ­skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið, sem heitir Lasca Fin­ance Limited, er að finna í gögnum frá­ panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca. Árið 2005 seld­i ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Moussai­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­senta hlut sinn í Lasca F­in­ance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussai­eff og „Mr­s." Moussai­eff. Þetta sýndu gögn sem Kjarninn og Reykja­vík Grapevine eru með undir höndum.

Nokkrum dögum áður, nánar til­tekið föstu­dag­inn 22. apríl, hafði Ólafur Ragnar farið í við­tal til frétta­kon­unar Christ­i­ane Aman­po­ur, á banda­rísku ­sjón­varps­stöð­inni CNN. Aman­pour spurði Ólaf Ragnar um Panama­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lög­um: „Átt þú ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eig­in­kona þín ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­skyld­u þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­ar­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, ­nei. Það verður ekki þannig.”

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til emb­ættis for­seta Íslands vegna Lasca Fin­ance í síð­ustu viku. Í svari þess seg­ir: „Hvorki for­seti né Dor­rit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dor­ritar er lát­inn og móðir henn­ar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félag­i."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár