Guðni með 91 prósent fylgi en stuðningsmenn Trump á Íslandi styðja Guðmund Franklín

Guð­mundur Franklín Jónsson nýtur meiri stuðn­ings hjá stuðn­ings­mönnum Donald Trump á Íslandi en sitj­andi for­seti, Guðni Th. Jóhann­es­son.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um 91 pró­sent þeirra lands­manna sem taka afstöðu ætla að kjósa Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, í for­seta­kosn­ing­unum síðar í þessum mán­uði, sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­unar sem EMC rann­sóknir fram­kvæmdu dag­anna 3. til 8. júní. Um níu pró­sent ætla að kjósa Guðmund Franklín Jónsson.

Guðni nýtur yfir­gnæf­andi stuðn­ings kjós­enda nær allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi. Þeir sem skera sig þar úr eru kjós­endur Flokks flokks­ins, þar sem 18,3 pró­sent segj­ast ætla að kjósa Guðmund Franklín, og kjós­endur Mið­flokks­ins, en 39,9 pró­sent þeirra styðja hann.

EMC rann­sóknir spurðu líka hvern við­kom­andi myndu kjósa í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum ef þeir gætu kosið þar í nóv­em­ber næst­kom­andi. Þar kom í ljós að 94,2 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Joe Biden, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins, ætla sér að setja x við Guðna. Af þeim sem myndu kjósa Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna og fram­bjóð­anda Repúblíkana­flokks­ins, ætl­aði hins vegar 52,7 pró­sent að kjósa Guðmund Franklín.

[adspot]Guðni er með mest fylgi í ald­urs­hópnum 18-34 ára, þar sem 96,1 pró­sent aðspurðra sagð­ist ætla að kjósa hann, en minnst hjá 55 ára og eldri, þar sem fylgið var þó 86,3 pró­sent. Fylgi for­set­ans er nán­ast það sama á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á lands­byggð­inni og aðeins meira, en vart mæl­an­lega, hjá þeim sem eru með fram­halds- eða háskóla­próf en þeim sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun.

Tölu­verður munur er þó á afstöðu kynj­anna til for­seta­fram­bjóð­end­anna. Guð­mundur Franklín myndi fá 15,7 pró­sent atkvæða ef ein­ungis karlar mættu kjósa en hann er vart með mæl­an­legt fylgi hjá konum, þar sem 97,2 pró­sent þeirra segj­ast styðja Guðna.

Fjöldi svar­enda var 825. Könnunin var fram­kvæmd á Netinu og send á þátt­tak­endur í svar­enda­hópi EMC Rann­sókna. Um kvóta­könnun var að ræða þar sem tryggt var að svar­endur end­ur­spegla lands­menn með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu með hlut­falli í svar­enda­hópum og vigtun. Nið­ur­stöður eru greindar eftir lýð­fræði (kyni, aldri og búsetu) og menntun. Alls tóku 89 pró­sent þeirra sem svör­uðu könn­un­inni afstöðu.

Nið­ur­staða EMC er nán­ast hin sama og í könnun Gallup sem gerð var dag­ana 29. maí til 3. júní 2020. Þar mæld­ist Guðni með 90,4 pró­sent fylgi og Guð­mundur Franklín með 9,6 pró­sent. Í þeirri könnun voru kjós­endur Mið­flokks­ins líka lang­lík­leg­astir til að kjósa Guðmund Franklín, en ríf­lega 45 pró­sent þeirra sögð­ust ætla að gera það.

Kjós­endur Mið­flokks­ins eru líka allra íslenskra kjós­enda lík­leg­astir til að styðja Donald Trump. Í könnun sem EMC birti í byrjun júní kom fram að ein­ungis fjögur pró­sent Íslend­inga myndi kjósa Trump ef þeir hefðu kosn­inga­rétt í Banda­ríkj­unum. Af kjós­endum Mið­flokks­ins sögð­ust hins vegar 29 pró­sent styðja sitj­andi Banda­ríkja­for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár