Tæpur þriðjungur Miðflokksmanna myndi kjósa Trump

Pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands segir að hátt hlut­fall Mið­flokks­manna sem styður Trump fylgi ákveðnu mynstri við­horfa sem hafi mikið fylgi meðal kjós­enda lýð­flokka Vestur-Evrópu.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Fjögur pró­sent Íslend­inga myndu kjósa Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum, ef þeir hefðu kosn­inga­rétt. Stuðn­ings­menn Mið­flokks­ins eru lík­leg­astir til að kjósa Trump og næst þeim koma stuðn­ings­menn Sós­í­alista­flokks­ins. Um 96 pró­sent Íslend­inga myndu kjósa Joe Biden. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu skoð­ana­könn­unar sem fyr­ir­tækið EMC rann­sóknir gerði í maí síð­ast­liðnum. RÚV greinir frá.

Í frétt RÚV segir að ef aðeins sé litið til þeirra sem taka afstöðu seg­ist tvö pró­sent kvenna og sex pró­sent karla myndu kjósa Trump. Aðrir myndu kjósa Biden. Stuðn­ingur við Trump sé minnstur meðal kjós­enda undir 35 ára aldri, eitt pró­sent, en mestur meðal fólks yfir 55 ára aldri, sex pró­sent. Biden njóti hund­rað pró­senta stuðn­ings hjá fylg­is­mönnum Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þá kemur fram að tvö pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna og þrjú pró­sent Pírata lýsi stuðn­ingi við Trump. Það sama geri sjö pró­sent þeirra sem kjósa Flokk fólks­ins og átta pró­sent Sjálf­stæð­is­manna. Fjórtán pró­sent stuðn­ings­manna Sós­í­alista og 29 pró­sent Mið­flokks­manna myndu kjósa Trump, sam­kvæmt könn­un­inni, ef þeir hefðu kosn­inga­rétt.

Flestir hægri menn í Vestur-Evrópu eiga hugmyndalega samleið með Demókrötum

Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla, gerði könn­un­ina að umtals­efni á Facebook í gær. „Allar kann­anir meðal almenn­ings sem ég hef séð um stuðn­ing Íslend­inga við Demókrata og Repúblik­ana í gegnum tíð­ina hafa sýnt nán­ast algert fylg­is­leysi Repúblik­ana hér, þó fáeinir hægri­menn séu hallir undir hug­mynda­fræði Repúblik­ana í seinni tíð. Sá hópur er býsna hávær, en ekki stór.“

Hann segir að hægri og vinstri í Vestur-Evrópu merki ekki efn­is­lega það sama og hægri og vinstri í Banda­ríkj­unum. Flestir hægri menn – nema helst harðir nýfrjáls­hyggju­menn og lýð­hyggju­menn – í Vestur-Evrópu eigi hug­mynda­lega sam­leið með Demókrötum um flest. Flestir hefð­bundnir evr­ópskir hægri­menn styðji til að mynda bland­aða hag­stjórn, opin­bert heil­brið­is­kerfi, mennta­kerfi og vel­ferð­ar­kerfi – þó vinstri og hægri menn í Evrópu deili um útfærslur og útgjöld rík­is­ins á þessum sviðum.

Þess vegna telur hann það ekki koma á óvart að 92 pró­sent íslenskra Sjálf­stæð­is­manna styðji Biden og Demókrata. Það sé í venju­legum takti.

„Athygl­is­vert – og nýtt – er að 29 pró­sent kjós­enda Mið­flokks styðja Trump. Nú eru þeir svar­endur sem styðja Miðflokk í þessarri könnun svo fáir að skekkju­mörk um þessa afstöðu þeirra eru stór – og talan klár­lega ekki nákvæm. En hún fylgir samt mynstri við­horfa sem hafa mikið fylgi meðal kjós­enda lýð­flokka Vestur-Evrópu – og kjós­enda Mið­flokks­ins,“ skrifar Ólafur.

Þá segir hann að óvænt sé að 14 pró­sent Sós­í­alista styðji Trump í könn­un­inni. En svar­endur úr þeim flokki eru svo fáir að talan sé lík­lega alveg merk­ing­ar­laus, að hans mati. 700 þátt­tak­endur svör­uðu könn­un­inni.

Ólafur bendir á að stærðin á fylg­is­hópi Trumps í öllum öðrum íslenskum flokkun sé lítil, að minnsta kosti hjá kjós­endum þeirra. En svar­endur úr hverjum flokki séu það fáir að skekkju­mörkin séu frekar stór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár