Guðni með mikla yfirburði

Guðni Th. Jóhann­es­son var með rúm­lega 90 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum er fyrstu tölur höfðu borist úr fjórum kjör­dæmum. Er það í takti við nýj­ustu skoð­ana­kann­anir.

Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson í viðtali við RÚV eftir að fyrstu tölur höfðu borist.
Eliza Reid og Guðni Th. Jóhann­es­son í við­tali við RÚV eftir að fyrstu tölur höfðu borist. Mynd: Skjáskot RÚV

Þegar fyrstu tölur í for­seta­kosn­ing­unum höfðu verið birtar úr fjórum kjör­dæmum í kvöld var Guðni Th. Jóhann­es­son með mikla yfir­burði eða 90,3 pró­sent atkvæða. Guð­mundur Franklín Jónsson var þá með 9,7 pró­sent atkvæða. Er þetta í takti við nýj­ustu skoð­ana­kann­anir. Enn áttu þá eftir að ber­ast fyrstu tölur úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum báðum.

Yfir fimm­tíu þús­und manns kusu utan kjör­fundar.

[adspot]

Guðni sagð­ist í sam­tali við RÚV eftir að fyrstu tölur voru komnar úr tveimur kjör­dæmum að hann var þakk­látur fyrir stuðn­ing­inn. Hann vildi þó bíða með „fulln­að­ar­dóma“ um nið­ur­stöður kosn­ing­anna á þeim tíma­punkti.

Eliza Reid, eig­in­kona Guðna, var einnig til við­tals í RÚV og var spurð hvernig henni lit­ist á fjögur ár til við­bótar á Bessa­stöðum. „Bara mjög vel,“ sagði hún. „Ég hlakka mikið til fram­tíð­ar­innar og er mjög stolt af Guðna, að sjálf­sögðu.“

Sigríður Hagalín Björns­dóttir frétta­maður RÚV spurði Elizu því næst um þá umræðu sem skap­að­ist um að hún, maki for­seta, væri úti­vinn­andi. „Mér finnst þetta ágætis umræða til að taka. Mér fannst alveg sjálf­sagt að ég haldi áfram í minni vinnu eins og ég var alltaf að gera þó að mað­ur­inn minn fengi nýja vinnu. Og ég held að meiri­hluti þjóð­ar­innar sé sam­mála því.“

Eliza sagði að þau Guðni reyndu að halda fjöl­skyldu­líf­inu með börn­unum eins venju­legu á Bessa­stöðum og hægt er. Við vorum til dæmis að ganga upp á Esjuna í dag og reynum að gera margt saman sem fjöl­skylda.“

[adspot]

Guðni sagði margt sem hægt væri að gera betur í sam­fé­lag­inu, „og margt sem við verðum að gera betur og getum svo hæg­lega gert betur. En eitt af því sem við getum verið stolt af hér á Íslandi er sú stað­reynd að sá eða sú sem gegnir emb­ætti for­seta Íslands getur um frjáls höfuð strokið. Farið með sinni fjöl­skyldu á íþrótta­við­burði, í leik­hús, upp á Esjuna, án þess að það kalli á ein­hverjar meiri­háttar fram­kvæmdir og und­ir­bún­ing. Og við eigum að halda í þetta. Við eigum að halda í þetta frjálsa og opna sam­fé­lag okkar – þetta sam­fé­lag frelsis og jafn­réttis, víð­sýni og umburð­ar­lyndis. Þar sem for­set­inn getur gengið um meðal fólks­ins ólíkt því sem gengur og ger­ist víða úti í heimi.“

Guð­mundur Franklín Jónsson sagði í sam­tali við RÚV að hann væri ánægður með fyrstu tölur og sagði að hvert atkvæði sem hann fengi væri atkvæði gegn spill­ingu. Spurður hvort að hann hafi á ein­hverjum tíma­punkti talið sig hafa raun­hæfa mögu­leika á að verða for­seti sagði hann að allt væri hægt í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár