Trump hringdi í ríkisstjórann og hvatti til aðgerða til að ógilda sigur Bidens

Á föstu­dag tap­aði kosn­ingateymi Donalds Trump málum í sex ríkjum Banda­ríkj­anna. Á laug­ar­dag hringdi for­set­inn í einn rík­is­stjór­ann og bað hann um aðstoð við að snúa úrslit­unum sér í hag.

Donald Trump á kosningafundi í Georgíu í október.
Donald Trump á kosn­inga­fundi í Georgíu í októ­ber. Mynd: EPA

Donald Trump hringdi í rík­is­stjóra Georgíu í gær­morgun og hvatti hann til að grípa til aðgerða svo ógilda mætti sigur Joe Bidens í rík­inu. „Ef við sigrum í Georgíu mun allt annað ganga eftir,“ skrif­aði Trump á Twitter í gær. „Ég mun auð­veld­lega vinna í Georgíu“ ef Brian Kemp rík­is­stjóri leyfir ein­falda end­ur­skoðun und­ir­skrifta“ skrif­aði for­set­inn einnig og bætti við: „Hvers vegna segir þessi „repúblikani“ nei?“

Í sím­tal­inu bað Trump rík­is­stjór­ann Brian Kemp, sem er repúblikani, um að fyr­ir­skipa end­ur­skoðun á und­ir­skriftum póst­at­kvæða. Um er að ræða enn ein per­sónu­leg afskipti for­set­ans af kosn­ing­unum sem fram fóru í byrjun nóv­em­ber.

[adspot]

Í frétt Washington Post um málið er haft eftir nafn­lausum heim­ild­ar­mönnum að í sím­tal­inu hafi Trump þrýst á Kemp að boða til sér­staks þing­fundar þar sem þing­menn myndu ógilda nið­ur­stöður kosn­ing­anna og velja kjör­menn sem myndu styðja Trump í kjör­manna­ráð­inu.

Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins hafn­aði Kemp beiðni for­set­ans enda hefur hann ekki vald til að krefj­ast end­ur­skoð­unar á kjör­seðl­unum þó að hann hafi opin­ber­lega sagst styðja slíka skoðun.

Tals­maður rík­is­stjór­ans stað­festir að hann hafi rætt við Trump í síma.

Kosn­ingateymi Trumps höfð­aði í kjöl­far kosn­ing­anna mál í mörgum ríkjum þar sem það taldi svindl hafa átt sér stað. Á föstu­dag tap­aði teymið slíkum málum í sex ríkjum, m.a. í Arizona og Nevada.

Trump er sagður sér­stak­lega ósáttur við kosn­inga­úr­slitin í Georgíu og í frétt Washington Post segir að hann hafi reiðst mjög er yfir­völd þar stað­festu sigur Bidens.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár