Marine Le Pen: Viðkunnanlegi kattaeigandinn sem gæti sett Evrópusamstarfið á hliðina

Í kjöl­far ímynd­ar­breyt­ingar hefur stuðn­ingur við Marine Le Pen for­seta­fram­bjóð­anda í Frakk­landi auk­ist. Þó helstu stefnu­mál hennar síð­ustu ár séu ekki í for­grunni má ætla að þau séu enn til staðar og gætu þau sett sam­starf vest­rænna þjóða í upp­nám.

Marine Le Pen fæddist í Frakklandi árið 1968 og þegar hún var fjögurra ára gömul stofnaði faðir hennar, Jean-Marie Le Pen, öfgahægri stjórnmálaflokkinn National Front.
Marine Le Pen fædd­ist í Frakk­landi árið 1968 og þegar hún var fjög­urra ára gömul stofn­aði faðir hennar, Jean-Marie Le Pen, öfga­hægri stjórn­mála­flokk­inn National Front. Mynd: EPA

Almenn­ingur í Frakk­landi heldur á kjör­stað öðru sinni á morgun, sunnu­dag, til þess að kjósa í síð­ari umferð for­seta­kosn­inga. Mun valið standa á milli tveggja fram­bjóð­enda sem urðu hlut­skarp­astir í fyrri umferð­inni sem fram fór fyrir tveimur vikum, en það voru sitj­andi for­set­inn Emmanuel Macron ann­ars vegar og Marine Le Pen hins vegar. Um er að ræða þriðja fram­boð þeirrar síð­ar­nefndu til for­seta Frakk­lands, en hún hefur lengst af þótt of öfga­full til þess að þykja lík­leg til þess að bera sigur úr býtum.

Þrátt fyrir það var hún einnig annar atkvæða­hæsti fram­bjóð­and­inn í for­seta­kosn­ing­unum 2017 og atti þar kappi við Emmanuel Macron í annarri umferð kosn­ing­anna, þar sem Macron hlaut mik­inn meiri­hluta, eða rúm­lega 66% atkvæða og var þar með kjör­inn for­seti lands­ins.

[adspot]Vegna vax­andi óánægju almenn­ings, og ekki síst fólks af verka­manna­stétt, með for­ystu Macron, en kannski einna helst vegna ímynd­ar­breyt­ingar Le Pen og flokks­ins hennar, National Rally, áður National Front, þykir öfga­hægri­stefna hennar sífellt lík­legri til þess að bera sigur úr býtum þegar talið verður upp úr kjör­köss­unum á morgun.

Hlaut stjórnmálaskoðanir í arf

Marine Le Pen fædd­ist í Frakk­landi árið 1968 og þegar hún var fjög­urra ára gömul stofn­aði faðir hennar, Jean-Marie Le Pen, öfga­hægri stjórn­mála­flokk­inn National Front. Le Pen erfði stjórn­mála­á­huga og -skoð­anir föður síns og gekk form­lega í flokk­inn 18 ára gömul. Eftir fram­halds­skóla lagði hún stund á lög­fræði og starf­aði sem slíkur um nokk­urt skeið sam­hliða stjórn­mál­unum.

Helstu stefnu­mál National Front hafa löngum ein­kennst af mik­illi þjóð­ern­is­hyggju og útlend­inga­andúð og hefur franska þjóðin haft tak­mark­aðan áhuga á stjórn slíkra öfga­hægri­manna. Jean-Marie Le Pen, faðir núver­andi for­seta­fram­bjóð­and­ans, bauð sig nokkrum sinnum fram til for­seta en náði loks árangri árið 2002 þegar hann komst óvænt áfram í aðra umferð for­seta­kosn­ing­anna. Það féll frönsku þjóð­inni ekki í skaut og hvöttu nær allir stjórn­mála­flokkar almenn­ing til þess að kjósa gegn Le Pen, meira að segja franski sós­í­alista­flokk­ur­inn sem var ann­ars helsti gagn­rýn­andi og and­stæð­ingur sitj­andi for­set­ans og keppi­nautar Le Pen í kosn­ing­unum, Jacques Chirac. Svo fór að Chirac fór með stærsta sigur í sögu for­seta­kosn­inga í Frakk­landi og hlaut 82,2% atkvæða. Þá var einnig um að ræða síð­asta skipti sem sitj­andi franskur for­seti hlaut end­ur­kjör. Það gæti breyst á morgun, fari Macron með sigur af hólmi.

[links]Það er hins vegar ekki næsta víst, enda mælist and­stæð­ingur hans, Le Pen, tals­vert nálægt honum í könn­unum. Eins og áður segir hefur Le Pen hingað til ekki þótt mjög raun­veru­legur val­kostur í for­seta­kosn­ingum, enda hefur stefna hennar yfir­leitt beinst að harð­línu­málum og hana skort heild­ræna stefnu, svo sem í efna­hags­málum. Nú hefur hún hins vegar breytt um aðferð og talað mikið fyrir auknum kaup­mætti frönsku þjóð­ar­innar, svo sem með lækkun skatta, og lítið talað um þau stefnu­mál sín sem almenn­ingur hefur, að minnsta kosti hingað til, átt erf­ið­ara með að sætta sig við. Þar má nefna skoð­anir Le Pen á veru Frakk­lands í Evr­ópu­sam­band­inu og Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, sem og á útlend­inga­málum, svo fátt eitt sé nefnt. Það þýðir hins vegar ekki að hún hafi breytt um skoðun, og ótt­ast margir að hljóti hún kjör muni það hafa afger­andi áhrif ekki ein­ungis fyrir Frakk­land heldur fyrir Evrópu og vest­rænt sam­starf almennt, en til að mynda hefur Le Pen lagt áherslu á gott sam­band Rúss­lands og Frakk­lands. Hinum megin borðs­ins situr svo Macron sem hefur fyllt í skarð Angelu Merkel, fyrr­ver­andi kansl­ara Þýska­lands, sem leið­togi Evr­ópu­sam­bands­ins á alþjóða­svið­inu. Þá hefur hann beitt sér mjög gegn inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og jafn­vel sakað Le Pen um að vera á launa­skrá hjá Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta, en stjórn­mála­flokkur hennar tók lán hjá rúss­neskum banka til að fjár­magna kosn­inga­bar­átt­una.

Rak föður sinn úr flokknum

Annað sem talið er að hafi haft mikil áhrif á auknar vin­sældir Le Pen er per­sónu­leg ímynd­ar­breyt­ing þar sem lögð hefur verið áhersla á að gera hana við­kunna­legri. Lengst af lagði hún áherslu á að aðskilja einka­lífið og stjórn­mála­fer­il­inn, ekki síst kannski vegna þess hve hún og fjöl­skylda hennar hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu og yfir­leitt ekki af eft­ir­sókn­ar­verðum ástæðum. Brá Le Pen á það ráð að reka föður sinn úr flokknum sem hann stofn­aði og end­ur­nefna hann, en hann er þekktur fyrir útlend­inga­andúð, gyð­inga­hatur og fyrir að gera lítið úr hel­för­inni, í til­raun til þess að bæta ímynd flokks­ins. Þá hefur hún lagt mikla áherslu á líf sitt sem ein­stæð móðir og einnig sem ein­hleyp kona með ketti á heim­il­inu. Þar reynir hún að spila á óvin­sældir Macron, sem hefur löngum þótt yfir­læt­is­fullur og ótengdur almenn­ingi í Frakk­landi.

En hvort kjós­endur láti afvega­leið­ast af vin­sam­legri Le Pen og láti öfga­fyllri stefnu­mál hennar liggja á milli hluta kemur í ljós í kjör­klef­unum á morgun. Hljóti Le Pen kjör verður hún fyrsti kven­kyns for­seti Frakk­lands, en það mun hafa veiga­miklar afleið­ingar bæði á inn­lendum og alþjóð­legum vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár