Hægt að sporna við lífsstílstengdum sjúkdómum með fræðslu áður en í óefni er komið

Sandra Sig­urð­ar­dóttir safnar á Karolina Fund fyrir Berg­lindi Heilsu­m­ið­stöð. Markmið verk­efn­is­ins er að auka heilsu­læsi almenn­ings, að almenn­ingur nái sem bestu lífs­gæðum út lífið og að fjölga heil­brigðum ævi­árum Íslend­inga.

Sandra Sigurðardóttir
Sandra Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Aðsend mynd

Sandra Sig­urð­ar­dóttir er íþrótta- og heilsu­fræð­ingur að mennt með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Sandra hefur meðal ann­ars unnið við þjálfun, kennslu og end­ur­hæf­ingu, en hug­myndin að Berg­lindi Heilsu­m­ið­stöð kvikn­aði einmitt þegar hún vann við end­ur­hæf­ingu og sá með eigin augum hversu fljótt ein­stak­lingar áttu það til að missa niður góðan árangur sem náð­ist í mark­vissu heilsu­átaki undir stjórn fag­fólks. Hug­mynd­ina vann hún síðan jafnt og þétt sam­hliða MBA-námi sínu og er nú til­búin með hana á markað.

Berglind Heilsu­m­ið­stöð er fyr­ir­tæki sem veitir fjar­heil­brigð­is­ráð­gjöf sem felur í sér skimun, fræðslu og for­varnir. Þeim sem vilja styðja við verk­efnið er bent á að fara inn á karolina­fund.com.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin kvikn­aði þegar ég sá ein­stak­linga koma í end­ur­hæf­ingu eða mark­vissa þjálfun hjá fag­að­ilum og ná undra­verðum fram­förum. Þegar sömu ein­stak­lingar komu síðan aftur í með­höndlun ári síðar voru margir þeirra því miður komnir í sama farið, eða voru jafn­vel í verra standi. búnir að missa niður þennan árangur og oft í verra standi heldur en áður en þeir komu inn. Ég sá að þarna var stór hópur fólks sem vant­aði stuðn­ings­net og eft­ir­fylgni til að aðlaga breyttar venjur að sínu dag­lega lífi. Ég sá það alltaf betur að það vantar að grípa ein­stak­linga fyrr, áður en í óefni er komið og vinna að því að fræða og vera með fleiri fyr­ir­byggj­andi aðgerðir.

Við Íslend­ingar erum heppnir að búa við jafn gott heil­brigð­is­kerfi og raun ber vitni, en við vitum að við getum gert betur. Til að minnka álag á heilsu­gæslur lands­ins verðum við að vinna betur í for­vörnum og fræðslu til almenn­ings. Hægt er að sporna við frek­ari lífs­stílstengdum sjúk­dómum með skimun og fræðslu áður en í óefni er komið. Það sem var svo vendi­punkt­ur­inn var COVID-19. Þá þurftum við allt í einu að hugsa öðru­vísi og í lausnum. Skyndi­lega kunnu all flestir á fjar­funda­búnað og þá kom þessi loka­af­urð, fjar­heil­brigð­is­ráð­gjöf.“

Hvert er mark­mið verk­efn­is­ins?

„Markmið verk­efn­is­ins er að auka heilsu­læsi almenn­ings, að almenn­ingur nái sem bestu lífs­gæðum út lífið og við náum að fjölga heil­brigðum ævi­árum Íslend­inga. Það er svona grunn­ur­inn og það sem hug­mynda­fræðin gengur út á í stórum dráttum. Við veitum fjar­heil­brigð­is­ráð­gjöf þar sem við­skipta­vinir hitta okkur í gegnum fjar­funda­búnað Kara Connect. Við bjóðum upp á þrjár þjón­ustu­leiðir. Skimun og ráð­gjöf, tíma­bundna eft­ir­fylgni og svo áskrift­ar­leið. Við­skipta­vin­ur­inn fær fullan aðgang að sínum per­sónu­lega ráð­gjafa á áskrift­ar­tíma­bil­inu. Við sendum út spurn­inga­lista sem við­skipta­vin­ur­inn skilar til okkar raf­rænt fyrir fyrsta við­talið og vinnum svo úr spurn­inga­list­anum áður en við­talið fer fram. Í við­tal­inu er ski­mað fyrir frek­ari áhættu­þáttum út frá svörun spurn­inga­list­ans með sam­tals­með­ferð. Nið­ur­stöður eru svo sendar að loknu við­tali og þeim fylgt eftir á fjög­urra vikna fresti með við­tali, sé áskrift­ar­leið valin. Í nið­ur­stöðum er meðal ann­ars að finna ábend­ingar um þjón­ustu og með­ferð­ar­að­ila, ef þurfa þykir, ásamt ráð­legg­ingum og ábend­ingum um þjón­ustu- og stuðn­ings­úr­ræði sem við­kom­andi kann að eiga rétt á. Með þessu erum við ekki ein­ungis að þjón­usta höf­uð­borg­ar­svæðið heldur allt landið.

Ótrúlegt en satt þá er meðal ævi­lengd Íslend­inga 82,5 ár, en með­al­ævi­lengd Íslend­inga við góða heilsu er ekki nema 69 ár. Þarna sjáum við að við lifum rúm 13 ár við slæma heilsu, árin sem við erum einmitt að hætta að vinna, fara á líf­eyri og njóta lífs­ins. Við þurfum eitt­hvað að breyta þessu, það er alveg klárt mál. Lýð­heilsu­stöð hefur einnig skoðað hreyf­ing­ar­leysi og gerði rann­sókn þar sem fram kom að beinn kostn­aður Íslenska rík­is­ins vegna kyrr­setu nemur um 4,7 til 4,9 millj­örðum árlega.

Berglind Heilsu­m­ið­stöð er með teymi sem hefur fundið lausn og vill leggja lóð sín á vog­ar­skál­arnar og aðstoða fólk. Við brennum fyrir lýð­heilsu almenn­ings og viljum aðstoða fólk að ná og við­halda góðri lík­am­legri-, and­legri- og félags­legri heilsu.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár