Umboðsmaður hættir athugun á skipun ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra vegna aðkomu Alþingis

Umboðs­maður Alþingis hefur lokið athugun sinni á skipun rík­is­end­ur­skoð­anda í stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í nýju menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti í ljósi aðkomu Alþingis. Umboðs­maður tekur þó enga efn­is­lega afstöðu til máls­ins.

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skipaði Skúla Eggert Þórðarson ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Skúla Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis. Mynd: Samsett

Umboðs­maður Alþingis, Skúli Magn­ús­son, mun ekki hafa frek­ari afskipti af ákvörðun menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra að skipa Skúla Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs ráðu­neytis. Ástæðan er sú að Alþingi kom að ákvörð­un­inni og tók afstöðu til hennar. Því er það mat umboðs­manns að það sé utan starfs­sviðs emb­ætt­is­ins að fjalla um flutn­ing­inn.

Skúli Egg­ert, sem verið hefur rík­is­end­ur­skoð­andi frá árinu 2018, var í lok jan­úar skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri nýs menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis og hóf þar störf þann 1. febr­ú­ar. Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði í emb­ætt­ið.

Í til­kynn­ingu­ frá Stjórn­ar­ráð­inu í lok jan­úar kom fram að ákvörðun um flutn­ing Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra hafi verið tekin á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli starfa.

Óljóst hvaða lagalegi grundvöllur væri fyrir skipununum

Sama dag og Skúli Eggert hóf störf óskaði umboðs­maður Alþingis eftir skýr­ingum á laga­legum grund­velli fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýs ráðu­neyt­is­stjóra. Sams konar bréf sendi hann á Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra vegna ákvörð­unar hennar að skipa Ásdísi Höllu Braga­dóttur í tíma­bundið emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti.

Af bréfum umboðs­manns til ráð­herr­anna tveggja mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­lega á því hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir þess­um skip­unum og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskaði hann skýr­inga og höfðu ráðu­neytin frest til 11. febr­úar til að skýra á hvaða laga­grund­velli ákvarð­an­irnar voru teknar.

Í bréfi sem menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið sendi umboðs­manni 10. febr­úar kemur fram að Lilja hafi óskað eftir því við for­seta Alþingis að Skúli Eggert yrði fluttur úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­unar til for­seta Alþingis sem fall­ist var á með bréfi 27. jan­úar með vísan til 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem segir meðal ann­ars að stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, geti flutt emb­ætt­is­mann í annað starf án aug­lýs­ingar, enda liggi fyrir ósk eða sam­þykki emb­ætt­is­manns­ins sjálfs.

Jóhann Páll Jóhann­s­son þing­­maður Sam­­fylk­ingar vakti athygli á skipan rík­is­end­ur­skoð­anda á Alþingi, dag­inn sem Skúli Eggert hóf störf. Jóhann Páll full­yrti að verið væri að mis­­beita fyrr­nefndri 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins með skipan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í ráðu­neyt­is­stjóra­emb­ættið og setja „hættu­legt for­dæmi“.

Utan starfssviðs umboðsmanna að fjalla um málið vegna aðkomu Alþingis

Umboðs­maður sendi Lilju Alfreðs­dóttur bréf á fimmtu­dag þar sem fram kemur að athugun hans á skipan þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis sé lokið.

[links]Í til­kynn­ingu á heima­síðu Umboðs­manns Alþingis kemur fram að eftir að umboðs­maður hóf athugun sína barst honum til­kynn­ing frá Alþingi þar sem aðkomu þings­ins að ákvörð­un­inni að skipa Skúla Eggert ráðu­neyt­is­stjóra var lýst, auk þess sem fram kom afstaða til þeirra laga­sjón­ar­miða sem byggt var á við flutn­ing­inn.

Í bréf­inu segir meðal ann­ars að í ljósi aðkomu og afstöðu þings­ins verði ekki hjá því kom­ist að líta svo á að það falli utan við starfs­svið umboðs­manns, þar sem það taki ekki til starfa Alþingis, að fjalla um ákvörðun ráð­herra að skipa við­kom­andi með þeim hætti sem gert var og án und­an­geng­innar aug­lýs­ingar. Ekki séu því laga­skil­yrði til þess að emb­ætti umboðs­manns geti haldið athugun sinni áfram.

Umboðs­maður tekur þó fram að með nið­ur­stöð­unni hefði engin efn­is­leg afstaða verið tekin til atvika máls­ins eða þeirra skýr­inga sem hefðu verið færðar fram vegna þess.

Engin aðkoma Alþingis í skipun Ásdísar Höllu í nýtt ráðuneyti

Nið­ur­staða í máli háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sem skip­aði Ásdísi Höllu Braga­dóttur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garðabæ, sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án und­an­geng­innar aug­lýs­ingar, var hins vegar allt önnur. Þar kom Alþingi ekki að ákvörð­un­inni og komst Umboðs­maður Alþingis að því að Áslaug Arna hafi brotið lög með því að setja Ásdísi Höllu sem ráðu­neyt­is­stjóra.

Ás­laug Arna setti Ásdísi Höllu í emb­ættið í lok jan­úar. Starfið var svo aug­lýst laust til umsóknar 3. febr­ú­ar og er Ásdís Halla meðal þeirra átta sem sækj­ast eftir starf­inu. Áður hafði Ásdís Halla verið ráð­in verk­efna­­stjóri við und­ir­­bún­­ing ráðu­­neyt­is­ins, sem er nýtt, í byrjun des­em­ber í fyrra.

Í áliti umboðs­manns segir að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. „Við stofnun ráðu­neyt­is­ins hefði orð­ið til nýtt emb­ætti og ekki yrði séð að lög­bundnar und­an­tekn­ingar frá því að aug­lýsa það laust til umsókn­ar, og setja tíma­bundið í emb­ættið á þeim grund­velli sem ráðu­neytið byggði á, ættu við um þá stöðu sem var upp­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár