Áslaug Arna braut gegn lögum með því að setja Ásdísi Höllu sem ráðuneytisstjóra

Umboðs­maður Alþingis segir að lög­bundnar und­an­tekn­ingar frá því að aug­lýsa stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í nýju ráðu­neyti lausa til umsóknar, og að setja ein­hvern tíma­bundið í emb­ættið á þeim grund­velli sem ráðu­neytið byggði á, hafi ekki átt við.

Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, ráð­herra háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­unar, var ekki heim­ilt að setja Ásdísi Höllu Braga­dóttur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garðabæ, sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án und­an­geng­innar aug­lýs­ingar. Þetta er nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis en álit þess efnis var birt í dag. Áslaug Arna setti Ásdísi Höllu í emb­ættið í lok jan­úar síð­ast­lið­ins, en starfið var svo aug­lýst laust til umsóknar 3. febr­úar. Greint var frá því í gær að Ásdís Halla væri á meðal þeirra átta sem sækj­ast eftir starf­inu. Áður hafði Ásdís Halla verið ráð­inn verk­efna­stjóri við und­ir­bún­ing ráðu­neyt­is­ins, sem er nýtt, í byrjun des­em­ber í fyrra.

Í áliti umboðs­manns segir að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. „Við stofnun ráðu­neyt­is­ins hefði orðið til nýtt emb­ætti og ekki yrði séð að lög­bundnar und­an­tekn­ingar frá því að aug­lýsa það laust til umsóknar, og setja tíma­bundið í emb­ættið á þeim grund­velli sem ráðu­neytið byggði á, ættu við um þá stöðu sem var uppi.“

[adspot]Þegar fyr­ir­ætlun stjórn­valda um að koma hinu nýja ráðu­neyti á fót hafi legið fyrir hefði ráð­herr­anum borið að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að tryggja starf­semi þess við stofnun. „Ef ekki hefði verið nægur tími til að aug­lýsa emb­ættið og ljúka skip­un­ar­ferli áður en ráðu­neytið tæki form­lega til starfa hefðu verið færar leiðir að lögum til bráða­birgða­ráð­staf­ana. Ólögfest sjón­ar­mið um skyldur stjórn­valda til taf­ar­lausra við­bragða við þessar aðstæður gætu ekki rétt­lætt ákvörðun ráð­herra um tíma­bundna setn­ingu ráðu­neyt­is­stjóra án aug­lýs­ingar með vísan til þeirra sjón­ar­miða sem ráðu­neytið byggði á.“

Umboðs­maður áréttar í álit­inu mik­il­vægi þess að stjórn­völd fylgi þeim laga­reglum sem gilda um veit­ingu opin­berra starfa og emb­ætta og virði þau mark­mið sem þeim er ætlað að þjóna. „Það eigi ekki síst við um ráðu­neyti sem fari með æðstu stjórn fram­kvæmda­valds­ins. Hann tekur fram að ekki séu líkur á að dóm­stólar myndu meta setn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans ógilda og að emb­ættið hafi nú verið aug­lýst en mælist engu að síður til þess að ráðu­neytið taki fram­vegis mið af sjón­ar­mið­unum í álit­inu.“

Sendi tveimur ráðherrum bréf

Umboðs­maður Alþing­is, Skúli Magn­ús­son, sendi fyrr bréf á bæði Lilju Alfreðs­dóttur ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur þann 1. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir því að ráð­herr­arnir skýrði laga­legan grund­völl fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýrra ráðu­neyt­is­stjóra í þeirra ráðu­neyt­u­m.

Lilja, sem stýrir líka nýju ráðu­neyti, tók ákvörðun um það skömmu áður að skipa Skúla Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda sem ráðu­neyt­is­stjóra í sínu ráðu­neyti, en Áslaug Arna setti Ásdísi Höllu dag­inn áður tíma­bundið í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti.

Af bréfum Umboðs­manns Alþingis til ráð­herr­anna tveggja mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­lega á því hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir þess­ari skipun og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskaði hann skýr­inga.

Í til­felli Skúla Egg­erts fylgdi til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu um skipan hans lítil klausa um að hann hefði verið skip­aður án aug­lýs­ingar í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins, þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­­manna rík­­is­ins milli starfa í 36. grein lag­anna.

Umboðs­maður Alþingis benti hins vegar á það í bréfi sínu til Lilju að rík­is­end­ur­skoð­andi væri emb­ætt­is­maður sem heyri laga­lega undir Alþingi og sé sjálf­stæður og engum háður í störfum sín­um.

Umboðs­maður hefur ekki birt neitt álit vegna skip­unar Lilju á Skúla Eggerti enn sem komið er.

Annar ráðuneytisstjóri á meðal umsækjenda

Á meðal ann­arra umsækj­enda um starf ráðu­neyt­is­stjóra í hinu nýja ráðu­neyti Áslaugar Örnu er Sig­ríður Auður Arn­ar­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­neyt­inu. Hún hefur gegnt því starfi í sjö ár.

Aðrir umsækj­endur eru Borg­hildur Ein­ars­dóttir for­stjóri, Elmar Hall­gríms Hall­gríms­son fram­kvæmda­stjóri, Huld Magn­ús­dóttir fram­kvæmda­stjóri, Katrín Olga Jóhann­es­dóttir fram­kvæmda­stjóri, Ragn­hildur Ágústs­dóttir sölu­stjóri og Sig­urður Erlings­son við­skipta­fræð­ing­ur.

Skipað verður í starfið til fimm ára frá 1. maí næst­kom­andi. Þriggja manna nefnd hefur verið falið að meta hæfni umsækj­enda og skila skýrslu til ráð­herra. Í henni sitja Mar­grét Ein­ars­dótt­ir, sem er for­mað­ur, Gunnar Björns­son og Heiðrún Jóns­dótt­ir. Guð­mundur Árna­son, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, er í umboði ráð­herra settur ráðu­neyt­is­stjóri til þess að ann­ast skip­un­ar­ferl­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár