Umboðsmaður krefur tvo ráðherra svara um ráðuneytisstjóraráðningar

Umboðs­maður Alþingis sendi í dag bréf á ráð­herrana Lilju Alfreðs­dóttur og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur og óskaði eftir skýr­ingum á skipan og setn­ingu þeirra á æðstu emb­ætt­is­mönnum nýrra ráðu­neyta.

Skúli Magnússon er Umboðsmaður Alþingis.
Skúli Magn­ús­son er Umboðs­maður Alþingis. Mynd: Aðsend

Umboðs­maður Alþingis, Skúli Magn­ús­son, sendi fyrr í dag bréf á bæði Lilju Alfreðs­dóttur ferða­mála-, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, þar sem óskað er eftir því að ráð­herr­arnir skýri laga­legan grund­völl fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýrra ráðu­neyt­is­stjóra í þeirra ráðu­neytum.[links]

Lilja Dögg tók ákvörðun um það í síð­ustu viku að skipa Skúla Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda sem ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti, en Áslaug Arna setti Ásdísi Höllu Braga­dóttur í gær tíma­bundið í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti.

Af bréfum Umboðs­manns Alþingis til ráð­herr­anna tveggja má merkja að hann átti sig ekki fylli­lega á því hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir þess­ari skipun og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskar hann skýr­inga.

Í til­felli Skúla Eggerts fylgdi til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu um skipan hans lítil klausa um að hann hefði verið skip­aður án aug­lýs­ingar í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli starfa í 36. grein lag­anna.

[adspot]

Umboðs­maður Alþingis bendir hins vegar á það í bréfi sínu til Lilju að rík­is­end­ur­skoð­andi sé emb­ætt­is­maður sem heyri laga­lega undir Alþingi og sé sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum.

Jóhann Páll Jóhann­son þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýndi skipan Skúla Eggerts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra á þessum sama grund­velli á þingi í dag og full­yrti að verið væri að mis­beita 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins með skipan rík­is­end­ur­skoð­anda í þetta emb­ætti.

Umboðs­maður óskar eftir skýr­ingum á því frá Lilju á hvaða laga­grund­velli ákvörðun um skip­un­ina, án aug­lýs­ingar, hafi verið reist.

Ef skýr­ingin sé sú að það hafi verið gert á grund­velli ákvæðis starfs­manna­laga um flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta óskar Umboðs­maður eftir því að ráð­herra geri grein fyrir því hvaða for­sendur og laga­sjón­ar­mið bjuggu þar að baki.

Vill fá að vita af hverju staðan var ekki auglýst

Síðdegis í gær var til­kynnt af hálfu nýs ráðu­neytis háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis að Ásdís Halla hefði verið sett í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra tíma­bundið til þriggja mán­aða, á meðan aug­lýst yrði eftir ráðu­neyt­is­stjóra.

Í bréfi Umboðs­manns Alþingis til Áslaugar Örnu segir að ekki verði annað ráðið, í ljósi þess að verið sé að setja á fót nýtt ráðu­neyti, að um nýtt emb­ætti innan ráðu­neyt­is­ins sé að ræða.

Umboðs­maður óskar því eftir upp­lýs­ingum „um hvort umrætt emb­ætti hafi verið aug­lýst til umsóknar“ og ef svo hafi ekki verið, óskar hann eftir skýr­ingum frá ráð­herra á því á hvaða laga­grund­velli það hafi verið gert.

Í til­felli beggja ráð­herra óskar Umboðs­maður Alþingis eftir því að fá svör eigi síðar en þann 11. febr­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár