Ásdís Halla tímabundið sett ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hefur sett Ásdísi Höllu Braga­dóttur sem ráðu­neyt­is­stjóra til næstu þriggja mán­aða.

Ásdís Halla Braga­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ, verður sett ráðu­neyt­is­stjóri háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis frá 1. febr­úar næst­kom­andi. Setn­ingin er tíma­bundin til þriggja mán­aða á meðan aug­lýst er eftir ráðu­neyt­is­stjóra fyrir hið nýja ráðu­neyti.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. Ásdís Halla var ráðin verk­efn­is­stjóri við und­ir­bún­ing ráðu­neyt­is­ins í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins.

Það er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sem setur í emb­ættið. Ákvörð­unin er tekin á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild um setn­ingu, að því er fram kemur hjá ráðu­neyt­inu.

„Hlutverk nýs ráðu­neytis er kynnt í for­seta­úr­skurði sem birtur er í dag en hann öðl­ast gildi 1. febr­úar 2022. Þann sama dag tekur ráðu­neytið til starfa. Með stofnun nýs ráðu­neytis er ætl­unin að tengja betur háskóla, vís­indi, iðnað og nýsköpun.

Það end­ur­speglar áherslur rík­is­stjórn­ar­innar á að takast á við áskor­anir fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og nýta hrað­fleygar tækni­breyt­ingar og staf­ræna umbylt­ingu í þágu sam­fé­lags­ins alls, líkt og segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um breytta skipan ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands. Þar segir jafn­framt að á 21. öld­inni hafi orðið bylt­ing í þekk­ing­ar­iðn­aði þar sem vís­indi og rann­sóknir á háskóla­stigi hafa gegnt lyk­il­hlut­verki. Stjórn­kerfi hvers ríkis þurfi að laga skipu­lag sitt að þeim veru­leika,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár