Ásdís Halla ráðin til að koma að mótun nýs ráðuneytis Áslaugar Örnu

Ásdís Halla Braga­dóttir fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ hefur verið ráðin sem verk­efna­stjóri við und­ir­bún­ing nýs ráðu­neytis vís­inda, iðn­aðar og nýsköp­unar.

Ásdís Halla Bragadóttir.
Ásdís Halla Braga­dóttir.

Ásdís Halla Braga­dóttir hefur verið ráðin verk­efn­is­stjóri við und­ir­bún­ing nýs vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, en frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar segir að hún komi til með að starfa hjá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti en vinna náið með öðrum starfs­mönnum stjórn­ar­ráðs­ins að þessu verk­efni.

Á meðal verk­efna verður meðal ann­ars að móta skipu­lag aðal­skrif­stofu nýs ráðu­neytis og skipt­ingu þess í fag­skrif­stofur, en vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið er annað tveggja glæ­nýrra ráðu­neyta sem stjórn Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks kom sér saman um að skapa.

Hitt ráðu­neytið er nýtt ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­ráðu­neyti sem Lilja Alfreðs­dóttir mun stýra, en auk þess fær­ast fjöl­margir mála­flokkar á milli ráðu­neyta.

[adspot]

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins segir að Ásdís Halla hafi fjöl­þætta reynslu úr bæði stjórn­sýslu og atvinnu­lífi. Hún er með meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu frá Harvard-háskóla og MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Hún hefur verið bæj­ar­stjóri í Garðabæ, aðstoð­ar­maður Björns Bjarna­sonar mennta­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sat í einnig í háskóla­ráði HR. Síðustu ár hefur hún svo komið að stofnun og rekstri fyr­ir­tækja í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­þjón­ustu ásamt því að sinna rit­störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár