Óboðlegt að láta eins og forseti Alþingis hafi „húsbóndavald yfir ríkisendurskoðanda“

„Hér hefur verið sett hættu­legt for­dæmi og bara ég mót­mæli þessu,“ sagði þing­maður Sam­fylk­ingar á þingi í dag þegar hann ræddi skipan ráðu­neyt­is­stjóra í nýju menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti Lilju Alfreðs­dóttur.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði skipan rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Skúli Egg­ert Þórð­ar­son, sem verið hefur rík­is­end­ur­skoð­andi frá árinu 2018, hefði verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri nýs ráðu­neytis Lilju Alfreðs­dóttur menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra.

Þing­mað­ur­inn sagði í ræðu sinni að nýlega hefði þing­mönnum verið til­kynnt að for­seti Alþingis hefði fall­ist á beiðni menn­ing­ar­ráð­herra um að rík­is­end­ur­skoð­andi yrði fluttur yfir í nýtt ráðu­neyti og skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri.

Þetta hefði verið gert, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Alþingis, á grund­velli 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, en sam­kvæmt ákvæð­inu „getur stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, sam­þykkt að hann flytj­ist í annað emb­ætti er lýtur öðru stjórn­valdi, enda óski það stjórn­vald eftir því“.

„Ef við skoðum nú aðeins grein­ar­gerð­ina frá því að starfs­manna­lög voru sett þá kemur þar skýrt fram að ákvæðið snýst um heim­ildir ráð­herra – að heim­ilt sé að flytja mann úr einu emb­ætti í annað þótt emb­ættin heyri undir tvo ráð­herra. Tvo ráð­herra. Þetta skiptir máli.

Því við skulum hafa það alveg á hreinu að rík­is­end­ur­skoðun er ekki hluti af fram­kvæmda­vald­inu og rík­is­end­ur­skoð­andi heyrir ekki undir neinn ráð­herra – þetta er sjálf­stæð eft­ir­lits­stofnun sem starfar á vegum Alþingis rétt eins og umboðs­maður Alþingis,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Skaðlegt að beita lögunum með þessum hætti

Jóhann Páll hélt því fram að með „þessum gjörn­ingi“ væri verið að mis­beita 36. grein starfs­manna­laga. „Það myndi engum detta það í hug að ráð­herra gæti til dæmis teygt sig yfir á svið dóms­valds­ins og sótt sér þangað dóm­ara og fært yfir í ráðu­neytið sitt, en lögin gera heldur ekki ráð fyrir að ráð­herra teygi sig yfir á svið lög­gjaf­ar­valds­ins og eft­ir­lits­stofn­ana þess og sæki sér þangað emb­ætt­is­mann.“

Hann sagði enn fremur að það væri skað­legt að beita lög­unum með þessum hætti og óboð­legt að láta eins og for­seti Alþingis hefði eitt­hvert hús­bónda­vald yfir rík­is­end­ur­skoð­anda, að for­seti „féllist á“ flutn­ing hans yfir til ráðu­neytis.

„Rík­is­end­ur­skoð­andi er sjálf­stæður í sínum störfum, hann er trún­að­ar­maður Alþingis – alls Alþingis – hann er kos­inn af Alþingi og honum verður ekki vikið úr starfi nema með sam­þykki Alþingis.

Hér hefur verið sett hættu­legt for­dæmi og bara ég mót­mæli þessu. Þetta stríðir gegn þrí­skipt­ingu rík­is­valds, þetta er virð­ing­ar­leysi gagn­vart Alþingi og gagn­vart þeim eft­ir­lits­stofn­unum sem starfa á vegum Alþingis. Og við hér í þessum sal getum ekki setið þegj­andi undir þessu. Við getum það ekki. Við verðum að taka þetta til skoð­unar,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár