Ekkert í lögum girði fyrir flutning embættismanna á milli greina ríkisvaldsins

Skrif­stofa Alþingis segir ekk­ert í lögum girða fyrir flutn­ing rík­is­end­ur­skoð­anda í stöðu ráðu­neyt­is­stjóra. Ekki er tekin þó afstaða til þess hvort heppi­legt sé að flytja emb­ætt­is­mann sem kjör­inn er af þing­inu í emb­ætti sem heyri undir ráð­herra.

Skrifstofa Alþingis birti í gær minnisblað um álitaefni vegna skipunar Skúla Eggerts Þórðarsonar fv. ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra.
Skrif­stofa Alþingis birti í gær minn­is­blað um álita­efni vegna skip­unar Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar fv. rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Mynd: Bára Huld Beck

Lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, hin svoköll­uðu starfs­manna­lög, taka til rík­is­end­ur­skoð­anda og eru ein­stök ákvæði lag­anna, þar á meðal þau sem fjalla um flutn­ing emb­ætt­is­manna, þar ekki und­an­skilin. Í lögum eru engin ákvæði sem girða fyrir að emb­ætt­is­maður geti flust í annað emb­ætti sem heyrir undir annan geira rík­is­valds­ins.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem skrif­stofa Alþingis tók saman í til­efni af fram­komnum athuga­semdum bæði umboðs­manns Alþingis og þing­manna við flutn­ing Skúla Eggert Þórð­ar­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í nýju menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti Lilju Alfreðs­dóttur.

Afstaða ekki tekin til þess hvort flutningurinn sé heppilegur

Í minn­is­blað­inu, sem birt var á vef Alþingis í gær ásamt öðrum gögnum sem varða flutn­ing Skúla Eggerts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra, er þó ekki tekin nein afstaða til þess „hvort almennt sé heppi­legt að emb­ætt­is­maður sem kjör­inn er af Alþingi til þess að gegna trún­að­ar­störfum á þess vegum sé fluttur í emb­ætti er heyrir undir ráð­herra að skipa í“.[links]

Jóhann Páll Jóhann­sson þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýndi skipan Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra á þessum sama grund­velli á þriðju­dag­inn og full­yrti að verið væri að mis­beita 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins með skipan rík­is­end­ur­skoð­anda í ráðu­neyt­is­stjóra­emb­ættið og setja „hættu­legt for­dæmi“.

Skúli Eggert samþykkur flutningi

Rík­is­end­ur­skoð­and­inn fyrr­ver­andi sendi for­seta Alþingis, Birgi Ármanns­syni, bréf þann 25. jan­úar þar sem hann sagði frá því að Lilja hefði leitað til hans um að taka við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra og óskaði eftir því að for­seti Alþingis sam­þykkti flutn­ing­inn, sem svo var gert þann 27. jan­úar.

[adspot]

Í bréf­inu sagði Skúli Eggert að af lögum um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga mætti ráða að starfs­manna­lögin giltu um starfs­fólk Rík­is­end­ur­skoð­unar, þar með talið um flutn­ing á milli starfa. Reynt hefði á það tvisvar á árinu 2018, er tveir starfs­menn rík­is­skatt­stjóra voru fluttir til Rík­is­end­ur­skoð­unar á grund­velli flutn­ings­á­kvæðis, þó ekki því sama og fjallar um flutn­ing emb­ætt­is­manna.

Í til­kynn­ingu frá Alþingi segir að líta beri „á sam­þykki Skúla Eggerts um flutn­ing í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands sem ósk um starfs­lok með sam­bæri­legum hætti og þegar emb­ætt­is­maður biðst lausnar frá emb­ætti sínu.“

Skúli Magn­ús­son, umboðs­maður Alþingis, óskaði á þriðju­dag eftir því að fá frek­ari skýr­ingar frá bæði Lilju og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur á skipan og setn­ingu þeirra á nýjum ráðu­neyt­is­stjórum, en í hinu nýja ráðu­neyti háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­unar var Ásdís Halla Braga­dóttir sett tíma­bundið í stöð­una.

Í til­felli beggja ráð­herra óskaði umboðs­maður eftir því að fá svör við bréfum sínum eigi síðar en þann 11. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár