Viðtal eða áróðursæfing?

Tenn­is­stjarnan Peng Shuai segir í við­tali við L'Equipe að færsla þar sem hún sakar fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um kyn­ferð­is­of­beldi byggi á mis­skiln­ingi. Kín­verska ólymp­íu­nefndin hafði milli­göngu um við­talið, sem vekur upp fleiri spurn­ingar en svör.

Viðtalið í L'Equipe er það fyrsta sem Peng Shuai veitir vestrænum miðli eftir að hún birti færslu á samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakar fyrrverandi varaforseta Kína um kynferðisofbeldi.
Viðtalið í L'Equipe er það fyrsta sem Peng Shuai veitir vest­rænum miðli eftir að hún birti færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo þar sem hún sakar fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um kyn­ferð­is­of­beldi. Mynd: EPA

Kín­verska tenn­is­stjarnan Peng Shuai segir að færsla hennar á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo þar sem hún sakar fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um að hafa þvingað hana til kyn­maka byggja á „gríð­ar­legum mis­skiln­ingi“. Í við­tali við franska fjöl­mið­il­inn L'Equipe seg­ist hún aldrei hafa haldið því fram að hún hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi.

Þetta er í fyrsta sinn sem Peng veitir fjöl­miðli utan Kína við­tal, að und­an­skildu dag­blaði í Singa­pore, frá því að færslan birt­ist í nóv­em­ber. Viðtalið fór þó fram undir sér­stökum kring­um­stæðum og líkir frétta­rit­ari BBC í Kína við­tal­inu við áróð­ursæf­ingu, sem skilji eftir fleiri spurn­ingar en svör.

Hvarf sporlaust en dró svo ásakanirnar til baka

Mál Peng er hið furðu­leg­asta. Í nóv­em­ber í fyrra birti hún ítar­­lega 1.600 orða færslu á sam­­fé­lags­mið­l­inum Weibo þar sem hún lýsti því hvernig Zhang Gaoli, fyrr­ver­andi vara­for­seti Kína, þving­aði hana til kyn­maka árið 2018.

[links]Færslan var fjar­lægð um tutt­ugu mín­útum eftir að hún birt­ist og ekk­ert heyrð­ist frá Peng sem virt­ist hafa horfið spor­laust. Kín­versk yfir­völd vildu ekk­ert tjá sig um málið en alþjóð­legar tenn­is­stjörnur líkt og Naomi Osaka, Ser­ena Willi­ams og Novak Djokovic kröfð­ust svara. Steve Simon, fam­kvæmda­stjóri Sam­taka kvenna í tennis (WTA), lýsti yfir áhyggjum vegna máls­ins og sagð­ist ótt­ast um öryggi Peng.

Um tveimur vikum eftir að færslan birt­ist á Weibo birti rík­­is­­fjöl­mið­ill­inn CGTN tölvu­­póst sem Peng sendi Simon. Þar segir að hún sé örugg og að ásak­an­­irnar sem birt­ust á Weibo séu ekki sann­­ar. Fjórum dögum seinna, 21. nóv­em­ber, birt­ust mynd­skeið af Peng, ann­ars vegar á veit­inga­stað og hins vegar á tennis­móti barna, en trú­verð­ug­leiki þeirra var dreg­inn í efa, ekki síst þar sem þau voru birt af Hu Xijin, rit­­stjóra Global Times, rík­­is­rek­ins fjöl­mið­ils.

Í des­em­ber sagði Peng í við­tali við blaða­mann frá Singa­pore að hún hefði alltaf verið frjáls ferða sinna. „Af hverju ætti ein­hver að fylgj­ast með mér?“ sagði hún í við­tal­inu.

Formaður kínversku ólympíunefndarinnar þýddi svör Peng

Fyrir við­talið við L'Equipe var þess kraf­ist að spurn­ingum yrði skilað inn fyr­ir­fram. Viðtalið sjálft fór fram á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum sem standa yfir þessa dag­ana í Peking og var full­trúi kín­versku Ólymp­íu­nefnd­ar­innar við­staddur og sá hann einnig um að þýða öll svör Peng.

Í við­tal­inu seg­ist Peng lifa eðli­legu lífi, nokkuð sem kín­versk stjórn­völd hafa full­yrt áður. Peng þakk­aði einnig öllum þeim sem hafa hugsað til hennar en sagð­ist á sama tíma ekki skilja hvaðan áhyggj­urnar koma. „Mig langar að vita: Af hverju allar þessar áhyggjur? Ég sagði aldrei að ein­hver hefði mis­notað mig kyn­ferð­is­lega,“ sagði hún í sam­tali við blaða­mann L'Equipe.

Peng, sem er 36 ára, gaf einnig til kynna í við­tal­inu að tenn­is­ferli hennar væri brátt að ljúka. „Með til­liti til ald­urs míns, fjölda aðgerða og heims­far­ald­urs­ins sem hefur neytt mig til að hætta að spila svona lengi tel ég að það verði mjög erfitt fyrir mig að ná aftur lík­am­legum styrk,“ sagði Peng.

Varðandi færsl­una á Weibo segir Peng að hún hafi valdið „gríð­ar­legum mis­skiln­ingi“ utan Kína. Sagðist hún hafa eytt færsl­unni sjálf af því að hana lang­aði til þess en útskýrði ekki frekar á hverju mis­skiln­ing­ur­inn var byggður að hennar mati.

Aðkoma kín­versku ólymp­íu­nefnd­ar­innar að við­tal­inu vekur sér­staka athygli þar sem for­maður hennar, Thomas Bach, var með þeim fyrstu full­yrti að Peng væri óhult eftir að færslan var fjar­lægð að Weibo en hann átti mynd­sím­tal við Peng í nóv­em­ber. Trú­verð­ug­leiki Bach og nefnd­ar­innar hefur verið dreg­inn í efa, ekki síst í aðdrag­anda vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna og hefur nefndin verið sökuð um að hunsa mann­rétt­inda­brot af hálfu kín­verskra stjórn­valda.

Vilja ræða við Peng án aðkomu stjórnvalda

Sam­tök kvenna í tennis hafa barist fyrir því að fá upp­lýs­ingar um vel­ferð Peng frá því að færslan birt­ist og aflýstu til að mynda öllum fyr­ir­hug­uðum við­burðum og keppnum sam­tak­anna í Kína í mót­mæla­skyni.

Í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin sendu frá sér í gær segir að við­talið í L'Equipe hafi ekki gert neitt til að draga úr efa­semdum sam­tak­anna um vel­ferð Peng. Steve Simon, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, hefur óskað eftir að sam­tökin fái að hitta Peng, í ein­rúmi, til að ræða stöðu hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár