„Af hverju ætti einhver að fylgjast með mér?“

Kín­verska tenn­is­konan Peng Shuai segir það ekki rétt að hún hafi sakað fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um nauðgun. Málið sé byggt á mis­skiln­ingi og seg­ist hún alltaf hafa verið frjáls ferða sinna. Mann­rétt­inda­sam­tök segja mál Peng vekja óhug.

Peng Shuai segir færsluna sem hún birti á Weibo í nóvember hafa verið persónulega og að „allir hafi misskilið hana.“ Hún segist aldrei hafa ásakað neinn um kynferðislega áreitni.
Peng Shuai segir færsl­una sem hún birti á Weibo í nóv­em­ber hafa verið per­sónu­lega og að „allir hafi mis­skilið hana.“ Hún seg­ist aldrei hafa ásakað neinn um kyn­ferð­is­lega áreitni. Mynd: EPA

„Af hverju ætti ein­hver að fylgj­ast með mér? Ég hef alltaf verið frjáls ferða minna,“ sagði Peng Shuai í sam­tali við blaða­mann dag­blaðs­ins Lianhe Zaobao sem gefið er út í Singa­pore.

Blaða­mað­ur­inn náði tali af Peng á sunnu­dag þegar hún sótti skíða­við­burð í Shanghai en hún hefu lítið sést opin­ber­lega frá því í byrjun nóv­em­ber þegar hún birti ítar­lega færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo þar sem hún lýsti því hvernig Zhang Gaoli, fyrr­ver­andi vara­for­seti Kína, þving­aði hana til kyn­maka árið 2018.

[links]Færslan var fjar­lægð um tutt­ugu mín­útum eftir að hún birt­ist og ekk­ert heyrð­ist frá Peng sem virt­ist hafa horfið spor­laust. Kínversk yfir­völd vildu ekk­ert tjá sig um málið en alþjóð­legar tenn­is­stjörnur líkt og Naomi Osaka, Serena Williams og Novak Djokovic kröfð­ust svara. Steve Simon, fam­kvæmda­stjóri Samtaka kvenna í tennis, lýsti yfir áhyggjum vegna máls­ins og sagð­ist ótt­ast um öryggi Peng.

Um tveimur vikum eftir að færslan birt­ist á Weibo birti rík­is­fjöl­mið­ill­inn CGTN tölvu­póst sem Peng sendi Simon. Þar segir að hún sé örugg og að ásak­an­irnar sem birt­ust á Weibo séu ekki sann­ar. Fjórum dögum seinna, 21. nóv­em­ber, birt­ust mynd­skeið af Peng, ann­ars vegar á veit­inga­stað og hins vegar á tennis­móti barna, en trú­verð­ug­leiki þeirra var dreg­inn í efa, ekki síst þar sem þau voru birt af Hu Xijin, rit­stjóra Global Times, rík­is­rek­ins fjöl­mið­ils, auk þess sem sér­stak­lega er tekið fram hvaða dagur er í öðru mynd­skeið­inu.

Segist aldrei hafa ásakað neinn um kynferðislega áreitni

Spurn­ingar blaða­manns Lianhe Zaobao sem tengj­ast færsl­unni á Weibo og tölvu­póst­inum sem var sendur í nafni Peng í kjöl­farið virð­ast flækj­ast fyrir Peng sem hló og bað blaða­mann­inn að end­ur­taka þær.

Í við­tal­inu segir Peng að hún hafi aldrei sakað neinn um kyn­ferð­is­lega áreitni eða kyn­ferð­is­brot. Færslan hafi inni­haldið „per­sónu­leg skila­boð sem allir hafi mis­skilið“.

Um tölvu­póst­inn sem var sendur í hennar nafni til Simon segir Peng að hún hafi skrifað hann að eigin frum­kvæði en fengið aðstoð með að þýða text­ann yfir á ensku.

Tals­maður Samtaka kvenna í tennis segir að sam­tökin hafi enn ekki náð sam­bandi við Peng að eigin frum­kvæði. Samtökin krefj­ast þess enn að ásak­anir Peng á hendur Zhang verði rann­sak­aðar, án rit­skoð­unar.

Viðtalið ýti undir áhyggjur af raunverulegri líðan Peng

Ekkert er fjallað um mál Peng í kín­verskum rík­is­fjöl­miðlum og tals­menn mann­rétt­inda­sam­taka eru fullir efa­semda um allt sem teng­ist mál­inu. Kenneth Roth, fram­kvæmda­stjóri Human Rights Watch, segir í færslu á Twitter að við­talið við Peng á sunnu­dag „auki ein­ungis áhyggjur um þann þrýst­ing sem kín­versk yfir­völd setja á Peng.“

Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað í máli Peng Shuai en það fer ekki á milli mála að þegar upp­lýs­ingar birt­ast á kín­verska inter­net­inu sem geta mögu­lega skaðað yfir­völd eru rit­skoð­endur rík­is­ins ræstir út. Samkvæmt rann­sókn New York Times og ProPublica voru orð líkt og „kyn­ferð­is­of­beldi“ og „tennis“ úti­lokuð á kín­verska net­inu og allt efni þeim tengdum rit­skoðað.

Að sögn Xiao Qiang, fræði­manns við Berkely-háskóla sem hefur sér­hæft sig í tján­ing­ar­frelsi á inter­net­inu, voru alls um hund­rað orð bönnuð í tengslum við mál Peng. Segir hann aðferðir yfir­valda í máli henn­ar­svipa til aðgerða sem not­aðar eru til að koma í veg fyrir að Kín­verjar leiti upp­lýs­inga eða tjái sig um mót­mælin á torgi hins himneska friðar árið 1989.

Xiao segir að kín­versk yfir­völd hafi ekki getað eytt aðgangi Peng á Weibo þar sem færslan hennar náði útbreiðslu á örfáum mín­útum. og að hún hafi ekki bein­línis tekið stöðu gegn yfir­völdum. Venja yfir­valda sé að þegar mál líkt og þessi fái athygli utan land­stein­ana sé bíða uns storm­inn lægi en það virð­ist ekki ætla að takast í máli Peng Shuai.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár