Þolendur Jeffrey Epstein höfða mál gegn Deutsche Bank og JPMorgan

Við­skipta­bankar Jeffrey Epstein huns­uðu „rauð flögg“ og gerðu honum kleift að stunda man­sal og brjóta á fjölda kvenna. Þetta er rök­stuðn­ingur kvenna sem ætla í mál við tvo banka vest­an­hafs.

Jeffrey Epstein.
Jeffrey Epstein.

Tvær konur sem saka banda­ríska auð­jöf­ur­inn Jeffrey Epstein um kyn­ferð­is­brot hafa höfðað mál gegn tveimur banka­stofn­unum JP Morgan Chase og Deutsche Bank. Þær saka bank­ana um að hafa hunsað „rauð flögg“ um við­skipta­hætti og meint brot Epsteins og hagn­ast á man­sali sem hann stund­aði. Epstein var hand­tek­inn vegna fjölda ásak­ana um kyn­ferð­is­brot gegn ungum stúlkum árið 2019. Hann svipti sig lífi í fang­els­inu skömmu síðar og áður en saka­málin, sem m.a. snéru að man­sali voru tekin fyrir dóm­stóla.

[adspot]

Kærur kvenn­anna eru skil­greindar sem hóp­mál­sóknir. Konurnar tvær eru ekki nafn­greindar í fréttum Wall Street Journal sem sagði fyrst frá mál­inu og hefur máls­skjölin undir höndum.

Önnur konan er í þeim sögð hafa verið ball­ett­dans­ari sem lenti í neti Epsteins og sam­verka­manna hans árið 2006. Brotin sem hún sakar auð­mann­inn um stóðu allt til árs­ins 2013.

[links]Í kærunni er því haldið fram að starfs­menn JP Morgan hafi vitað að Epstein og félög honum tengd hafi notað reikn­inga hjá bank­anum í tengslum við man­sal. Í gegnum þessa reikn­inga hafi flætt háar fjár­hæðir. Þá hafi glæp­sam­leg saga Epsteins átt að vera á vit­orði stjórn­enda bank­ans.

Hin konan höfðar mál gegn Deutsche Bank. Samkvæmt dóms­skjölum mis­not­aði Epstein hana kyn­ferð­is­lega og seldi man­sali í fimmtán ár. Hún segir hann hafa borgað sér fyrir kyn­lífs­at­hafnir með bein­hörðum pen­ingum.

Í kærunni kemur fram að Epstein hafi snúið sér til Deutsche Bank með við­skipti sín er tengsl hans við JP Morgan rofn­uðu árið 2013. Einnig er vísað til nið­ur­stöðu eft­ir­lits­stofn­unar í New York sem var sú að þrátt fyrir að stjórn­endur Deutsche Bank hafi skil­greint Epstein sem „áhættu“ fyrir bank­ann hafi þeir ekki grand­skoðað við­skipti hans í tengslum við meinta glæp­sam­lega starf­semi sem hefði átt að vera þeim ljós.

Deutsche Bank hefur við­ur­kennt að hafa gert „grund­vallar mis­tök“ er Epstein flutti við­skipti sín til bank­ans. Hins vegar hafnar bank­inn umkvört­un­ar­efnum kvenn­anna og seg­ist ætla að taka til varna fyrir dóm­stólum.

„Epstein og sam­verka­menn hans hefðu ekki getað fram­kvæmd brot sín án aðstoðar frá efn­uðum ein­stak­lingum og fjár­mála­stofn­unum,“ segir Bradley Edwards, lög­fræð­ingur í teymi kvenn­anna, við BBC. „Við munum ekki hætta að berj­ast fyrir þolend­unum fyrr en allir sem komu að málum hafa verið dregnir til ábyrgðar. Þetta er stórt skref í þá átt en markar engin enda­lok.“

Hann segir tíma­bært að þeir sem gerðu Epstein kleift að mis­nota stúlkur axli ábyrgð, hvort sem það eru auð­ugir ein­stak­lingar eða bank­arnir. „Þessir aðilar spil­uðu stórt hlut­verk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

epstein

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár