Maxwell berst ekki lengur gegn afhjúpun áttmenninganna

Það er nú undir dóm­ara í New York komið hvort að nöfn átt­menn­inga sem tengj­ast með einum eða öðrum hætti Jeffrey Epstein verði gerð opin­ber.

Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell voru góðir vinir.
Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell voru góðir vinir. Mynd: EPA

Ghislaine Maxwell hefur ákveðið að láta af and­stöðu sinni við það að nöfn átt­menn­inga sem tengj­ast ásök­unum Virginiu Roberts Giuffre um kyn­ferð­is­brot auð­manns­ins Jeffrey Epsteins gegn sér verði birt. Menn­irnir átta tengj­ast einka­máli sem Giuffre höfð­aði gegn Epstein árið 2015. Málinu lauk utan dóm­stóla með sátt.

Hin breska Maxwell var náin Epstein í fjölda ára og var í síð­asta mán­uði fundin sek um fimm brot, m.a. man­sal stúlkna undir lög­aldri. Hún á yfir sér 65 ára fang­els­is­dóm. Epstein hafði verið ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjölda kvenna sem voru undir lög­aldri á árinum 1994-2004. Hann var færður í gæslu­varð­hald í fang­elsi í New York en svipti sig þar lífi áður en mála­ferlin hófust. Yfirvöld reyndu að hafa hendur í hári Maxwell en hún fór huldu höfði mán­uðum saman áður en hún var loks hand­sömuð í júlí 2020.

[adspot]

Maxwell hefur barist gegn því að nöfn átt­menn­ing­anna sem fjallað var um í dóms­skjöl­unum í einka­máli Giuffre árið 2015 verði gerð opin­ber. En í bréfi sem lög­fræð­ingar hennar sendu dóm­ara í New York þann 12. jan­úar kemur fram að hún muni ekki halda þeirri and­stöðu sinni til streitu. Í bréf­inu kom fram að átt­menn­ing­arnir sem kall­aðir voru „Doe“ 17, 53, 54, 55, 73, 93 og 151 í mála­ferlunum gegn Maxwell hafi allir eigin lög­fræð­inga og geti því sjálfir varist opin­berun nafna sinna.

[links]Lögmaður Guiffre krafð­ist þess í síð­ustu viku að nöfn átt­menn­ing­anna yrðu gerð opin­ber. „Nú þegar dóms­mál­inu gegn Maxwell er lokið þá er lítil ástæða til að halda vernd yfir þeim feiki­lega miklu upp­lýs­ingum um mansals­hring Epsteins og Maxwell sem voru inn­sigl­aðar í fyrra mál­inu,“ skrif­aði lög­fræð­ingur Guiffre í beiðn­inni.

En hverjir eru þessir átta karlar? Líklegt þykir að Andrew Breta­prins sé einn þeirra en Guiffre hefur nú höfðað mál gegn honum fyrir meint kyn­ferð­is­t­brot er hún var enn á ung­lings­aldri. Lögmenn Andrews hafa kraf­ist þess að fá afhent gögn um geð­heilsu Guiffre og halda því fram að minn­ingar hennar um brotin sem hún ásakar prins­inn um sé „falskar“.

Tveir átt­menn­ing­anna hafa sagt dómnum að þeir legg­ist ekki gegn því að nöfn þeirra verði birt. Aðrir hafa sagt að opin­berun á nöfnum þeirra muni valda þeim „óþæg­indum og skömm“. Allir voru menn­irnir nefndir á nafn í einka­máli Guiffre á sínum tíma vegna tengsla sinna við Epstein og Maxwell eða báru vitni í því máli.

Guiffre seg­ist hafa verið þvinguð af Epstein til að hafa kyn­mök við Andrew prins í þrí­gang. Hún var þá sautján ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

epstein

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár