Hættir sem forstjóri Barclays vegna tengsla við Epstein

Stjórn breska bank­ans Barclays hefur kom­ist að sam­komu­lagi við for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins til síð­ustu sex ára um starfs­lok vegna rann­sóknar á tengslum hans við Jeffrey Epstein.

Jes Staley var vinur Jeffrey Epsteins.
Jes Staley var vinur Jeffrey Epsteins. Mynd: EPA

Jes Staley, for­stjóri Barclays banka, hefur látið að störfum vegna rann­sóknar á tengslum hans við fjár­festir­inn og kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein. Staley er 64 ára og hefur verið for­stjóri bank­ans frá árinu 2015.

[adspot]

Í frétt Bloomberg um málið segir að nið­ur­staða opin­berrar rann­sókn­ar­nefndar á tengslum Staleys og Epstein hafi verið kynnt stjórn­endum bank­ans á föstu­dags­kvöld. Nefndin hefur unnið að rann­sókn­inni í tvö ár en í henni var m.a. skoðað hvernig Staley útskýrði langvar­andi sam­band sitt við Epstein fyrir stjórn­endum bank­ans. Epstein er sak­aður um fjölda kyn­ferð­is­glæpa og man­sal en hann lést í fang­elsi í New York áður en rétt­ar­höldin yfir honum hófust.

[links]Í yfir­lýs­ingu frá stjórn bank­ans í gær, mánu­dag, sagði að í ljósi frum­nið­ur­staðna rann­sókn­ar­innar, sem Staley mót­mæli, hafi stjórnin kom­ist að sam­komu­lagi við hann um starfs­lok. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar hafa enn ekki verið gerðar opin­berar en í yfir­lýs­ingu stjórnar bank­ans segir að í henni komi ekk­ert fram um að „Staley hafi séð eða orðið vitni með nokkrum hætti að meintum glæpum Epsteins“.

Epstein sóp­aði að sér vinum úr við­skipta­líf­inu bæði í Bret­landi og í Banda­ríkj­unum. Hann átti einnig vini úr skemmt­ana­iðn­að­inum og innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar en hann og Andrew prins, yngsti sonur Elísa­betar drottn­ingar, voru nánir.

Staley sem er Banda­ríkja­maður og hóf feril sinn hjá JPMorgan Chase & Co., verður á launum hjá Barclays út næsta ár, segir í frétt Bloomberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár