Þögli stormurinn á kínverskum samfélagsmiðlum: Hvar er Peng Shuai?

21 dagur er síðan tenn­is­stjarnan Peng Shuai ásak­aði fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um nauðgun. Lítið sem ekk­ert hefur spurst til hennar síðan. Þar til í gær þegar kín­verskur rík­is­fjöl­mið­ill birti tvö mynd­skeið. Trú­verð­ug­leiki þeirra er dreg­inn í efa.

Kín­verska tenn­is­konan Peng Shuai birti ítar­lega færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo, sem svipar til Facebook og Instagram, 2. nóv­em­ber þar sem hún lýsir því hvernig Zhang Gaoli þving­aði hana til kyn­maka árið 2018. Peng er með um 600 þús­und fylgj­endur á Weibo og vakti færslan gríð­ar­lega athygli þó svo að hún hafi horfið örfáuum mín­útum eftir birt­ingu. Peng, sem er 35 ára, vakti heims­at­hygli árið 2014 þegar hún vann Opna franska meist­ara­mótið í tví­liða­leik. Síðan þá hefur hún unnið fjölda titla á hinum ýmsu stór­mótum.

[adspot] Zhang Gaoli er fæddur árið 1946 og gegndi emb­ætti vara­for­seta Kína 2013-2018 og er náinn banda­maður Xi Jinping, for­seta Kína. Peng greinir frá því í færsl­unni á Weibo að hún hafi sofið hjá Zhang árið 2011, áður en hann fékk stöðu­hækkun hjá hinu opin­bera. Peng heyrði þá ekk­ert frá honum þar til árið 2018 þegar Zhang og eig­in­kona hans buðu Peng að borða með sér á heim­ili þeirra eftir að hafa fylgst með Peng spila tennis fyrr um dag­inn. Zang þving­aði Peng til kyn­maka á heim­ili hjón­anna. „Ég gat ekki hætt að gráta,“ segir Peng í færsl­unni.

„Ég hataði sjálfa mig“

Peng lýsir því að hún hafi borið til­finn­ingar til hans og eyddu þau tíma saman við og við frá 2018 þar til Peng ákvað að stíga fram í byrjun nóv­em­ber og greina frá nauðg­un­inni. „Ég hataði sjálfa mig, hataði til­veru mína í þessum heimi og að þurfa að upp­lifa þennan hryll­ing. Þú sagðir mér að þú elskaðir mig, elskaðir mig heitt, og að þú von­aðir að í næsta lífi myndum við hitt­ast sem 18 og 20 ára,“ skrifar Peng, en 40 ára ald­urs­munur er á henni og vara­for­set­anum fyrr­ver­andi.

Færsl­unni var eytt nokkrum mín­útum eftir að Shuai birti hana en skjá­skot af færsl­unni hafa dreifst víða. Degi síðar var nán­ast ekk­ert hægt að finna um Peng Shuai á inter­net­inu í Kína, en það sem meira var, Peng Shuai virt­ist einnig hafa horfið úr raun­heimum.

Tennisstjörnur krefjast svara

Engin við­brögð bár­ust frá kín­verskum yfir­völdum en eftir því sem alþjóð­legur þrýst­ingur jókst gáfu Samtök kvenna í tennis, WTA, út yfir­lýs­ingu þar sem þess er kraf­ist að ásökun Peng á hendur Zang verði rann­sökuð með rétt­látum og gagn­sæjum hætti. Tenn­is­stjörnur hvaðanæva að kröfð­ust einnig svara og aðgerða. Billie Jean King, helsta tenn­is­stjarna Banda­ríkj­anna á 7. og 8. ára­tugnum, var með þeim fyrstu sem birti færslu á Twitter þar sem hún seg­ist vona að Shuai sé örugg og að ásak­an­irnar verði rann­sak­aðar. Fleiri tenn­is­stjörnur tjáðu sig í kjöl­farið og lýsa þau öll áfall­inu sem fréttir af hvarfi Peng eru. Þeirra á meðal er Naomi Osaka, fremsta tenn­is­kona Japans, sem hefur meðal ann­ars nýtt Twitter til að tjá sig um and­leg mál­efni. „Rit­skoðun er aldrei í lagi. Ég vona að Peng Shuai og fjöl­skylda hennar séu örugg og líði vel.“

Fremsti tenn­is­spil­ari heims í dag í karla­flokki, Novak Djokovic, tjáði sig um málið á blaða­manna­fundi í vik­unni. „Í hrein­skilni sagt er það áfall að hún sé horfin. Þetta er ein­hver sem ég hef séð í keppnum á und­an­förnum árum,“ sagði Djokoviz.

Yfirvöld í Kína hafa verið innt eftir við­brögðum við hvert tæki­færi. Zhao Lijan, tals­maður utan­rík­is­ráðu­neytis Kína, sagð­ist ekki hafa heyrt af mál­inu aðspurður á blaða­manna­fundi. „Svar mitt er ein­falt. Þetta er ekki utan­rík­is­mál og ég hef ekk­ert heyrt um þetta,“ bætti hann við.

„Hæ allir þetta er Peng Shuai“

Á mið­viku­dag­inn, 17. nóv­em­ber, birti rík­is­fjöl­mið­ill­inn CGTN tölvu­póst sem Peng á að hafa sent frá sér. Þar segir að hún sé örugg og að ásak­an­irnar sem birt­ust á Weibo séu ekki sannar. Trú­verð­ug­leiki tölvu­pósts­ins, það er að hann komi í raun og veru frá Peng, hefur stór­lega verið dreg­inn í efa. Ávarp Shuai í upp­hafi, „Hæ allir þetta er Peng Shuai“ þykir gefa til kynna að ekki sé allt með felldu. Í póst­inum segir Peng að hún sé örugg og hafi bara verið heima að hvíla sig.

Steve Simon, fram­kvæmda­stjóri Samtaka kvenna í tennis, seg­ist áhyggju­fullur og ótt­ast um öryggi Shuai og að hann eigi erfitt með að trúa að tölvu­póst­ur­inn sé í raun og veru frá henni. „Peng Shuai sýndi ótrú­legt hug­rekki þegar hún ásak­aði fyrr­ver­andi hátt­settan emb­ætt­is­mann um kyn­ferð­is­brot. Samtök kvenna í tennis og heim­ur­inn allur þarf raun­veru­lega sönnun um öryggi hennar,“ segir Simon í yfir­lýs­ingu sem hann birti fljót­lega eftir að tölvu­póst­ur­inn var birtur í kín­verskum fjöl­miðlum. Þar segir einnig að hann hafi ítrekað reynt að hafa sam­band við hana eftir ýmsum leiðum en án árang­urs. „Raddir kvenna verða að fá að heyr­ast,“ sagði Simon jafn­framt.

Á föstu­dag­inn sagð­ist Simon vera reiðu­bú­inn að slíta öllum við­skipta­tengslum við Kína finn­ist Peng ekki brátt og krefst hann Zhang sæti rann­sókn vegna ásakan­anna.. „Við erum algjör­lega til­búin að hætta öllum við­skiptum og taka afleið­ing­unum sem fylgja,“ sagði Simon. Slit á við­skipta­tengslum fela meðal ann­ars í sér að engar tenn­is­konur sem til­heyra sam­tök­unum munu taka þátt á mótum í Kína og WTA mun ekki halda nein mót þar í landi. „Af því að þetta snýst vissu­lega um meira en við­skiptin. Konur eiga að njóta virð­ingar, ekki rit­skoð­unar,“ sagði Simon.

Fleiri tenn­is­konur hafa stigið fram undir myllu­merk­inu #WhereIsPengShuai og krefj­ast rétt­lætis og upp­lýs­inga um öryggi Peng. „Ég vona að hún sé örugg og finn­ist sem fyrst. Rannsókn verður að fara fram og við megum ekki vera þögul,“ sagðiSerena Williams í færslu á Twitter.

Trúverðugleiki myndskeiða á veitingastað og tennismóti barna dreginn í efa

Í gær birti Hu Xijin, rit­stjóri Global Times, rík­is­rek­ins fjöl­mið­ils, tvö mynd­skeið þar sem Peng bregður fyrir, ann­ars vegar á veit­inga­stað og hins vegar á úrslitum Fila-barna­móts­ins í tennis. Trú­verð­ug­leiki mynd­skeið­anna hefur verið dreg­inn í efa, ekki síst þar sem á öðru þeirra er mikið gert úr hvaða dagur sé. Simon, fram­kvæmda­stjóri kvenna í tennis, seg­ist í enn einni yfir­lýs­ingu vera glaður að sjá Peng á mynd­skeið­unum en það sé enn óljóst hvort hún sé í raun frjáls ferða sinna. „Ég hef verið skýr varð­andi hvað þarf að ger­ast og sam­band okkar við Kína er á kross­götum,“ segir í yfir­lýs­ingu Simon.

Viðbrögð stjórnvalda í takt við þöggun á #metoo

Viðbrögð, eða við­bragðs­leysi öllu heldur, kín­verskra yfir­valda koma ekki gríð­ar­lega á óvart en hafa valdið gríð­ar­legri reiði. Þöggun stjórn­valda eru í takt við við­brögð við #metoo-bylt­ing­unni sem kín­versk yfir­völd hafa ítrekað reynt að kveða niður þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir kvenna til að stíga fram og greina frá kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legri áreitni. Peng er fyrsta konan sem ásakar hátt­settan stjórn­mála­mann um kyn­ferð­is­of­beldi en ekki sú fyrsta sem setur fram ásak­anir á hendur þjóð­þekktum ein­stak­lingi.

Árið 2018 steig hin 28 ára gamla Zhou Xiaoxuan fram og ásak­aði Zhu Jun, vin­sælan sjón­varps­mann hjá kín­verska rík­is­sjón­varp­inu, um kyn­ferð­is­brot, en hún var 21 árs þegar brotin áttu sér stað. Hún greindi frá brotum sjón­varps­manns­ins í þrjú þús­und orða færslu á Weibo og er frá­sögn hennar talin marka upp­haf #metoo-bylgj­unnar í Kína. Xianzi, eins og hún er betur þekkt á sam­fé­lags­miðlum, kærði Zhu en eftir að hafa velkst um í kerf­inu í þrjú ár var málið fellt niður í sept­em­ber, meðal ann­ars þar sem ásak­anir Xianzi hafi ekki full­nægt kröfum um sönn­un­ar­byrði.

Ef Peng Shuai kom ekki nálægt tölvu­póst­inum, eins og flest virð­ist benda til, hvar í ver­öld­inni er hún þá?

„Hvarf af þessu tagi er aldrei góðs viti í Kína,“ segir Isabel Hilton, sér­fræð­ingur í mál­efnum Kína og gesta­pró­fessor við LAB China Institute, sem telur áhyggjur af skyndi­legu brott­hvarfi Shuai rétt­læt­an­legar. Á meðan engar raun­veru­legar fregnir ber­ast af sama­stað Peng Shuai eða líðan hennar er ljóst að áhyggj­urnar munu ekki hverfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár