OR leggur ekki til að virkjanakostir verði færðir úr biðflokki í nýtingarflokk

Orku­veita Reykja­víkur leggur áherslu á að halda öllum virkj­ana­kostum á Heng­ils­svæð­inu sem eru flokk­aðir í nýt­ing­ar­flokk þar áfram. Þrír kostur OR eru í nýt­ing­ar­flokki til­lögu að ramma­á­ætlun og einn í bið­flokki.

Í Lakaskörðum milli Tjarnarhnúks og Hrómundartinds er að finna jarðhita og á þessum slóðum áformar Orkuveitan Þverárdalsvirkjun.
Í Laka­skörðum milli Tjarn­ar­hnúks og Hró­mund­ar­t­inds er að finna jarð­hita og á þessum slóðum áformar Orku­veitan Þver­ár­dals­virkjun.

Þrír virkj­un­ar­kostir Orku­veitu Reykja­víkur eru í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem lögð verður fram, ennþá einu sinni, á Alþingi í lok mars. Allir eru þeir í jarð­varma og á Heng­il­svæð­inu: Hvera­hlíð II (90 MW), Þver­ár­dalur (90 MW) og Meit­ill­inn (45 MW).

Virkjun í Þver­ár­dal er í bið­flokki núgild­andi ramma­á­ætl­unar en verk­efn­is­stjórn 3. áfanga lagði til í loka­skýrslu sinni í ágúst 2016 að kost­ur­inn færi í nýt­ing­ar­flokk. Hvera­hlíð II er hins vegar „nýr“ kostur sem tekin var til mats í þriðja áfanga og ekki var hreyft við flokkun Meit­ils­ins sem er þegar í nýt­ing­ar­flokki núgild­andi áætl­unar.

[adspot]

Í svörum við fyr­ir­spurn Kjarnans um áherslur Orku­veit­unnar nú þegar ákveðið hefur verið að leggja þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram í fjórða sinn og af fjórða ráð­herr­anum á rúm­lega fimm árum, segir að allir þeir kostir sem fyr­ir­tækið lagði fram til mats í þriðja áfanga eigi enn við, þ.e.a.s. eng­inn þeirra er orð­inn úreltur og ekki lengur fýsi­legur.

„Við leggjum áherslu á að halda öllum kostum á Heng­ils­svæð­inu sem eru flokk­aðir í nýt­ing­ar­flokk áfram þar,“ segir í svörum OR. „Mik­il­vægt er að skoða svæðið eins heild­stætt og völ er á til að setja fram­tíð­ar­nýt­ing­ar­stefnu fyrir Hengil­inn. OR leggur ekki til að færa kosti úr bið­flokki yfir í nýt­ing­ar­flokk.“

Aðeins einn virkj­un­ar­kostur, einnig í jarð­varma, er í bið­flokki sam­kvæmt til­lög­unni, Inn­sti­dalur, og eng­inn kostur fyr­ir­tæk­is­ins sem lagður var til mats verk­efn­is­stjórnar 3. áfanga, er í vernd­ar­flokki.

Inn­sti­dalur er lok­aður dalur sunnan Hengils en norðan Skarðs­mýr­ar­fjalls. Dalurinn sjálfur er til­tölu­lega lítið rask­aður og hefur gildi sem slíkur þótt umhverfi í kring hafi verið raskað, sagði m.a. í nið­ur­stöðu verk­efn­is­stjórnar þriðja áfanga um virkj­ana­kost­inn. Yrði Þver­ár­dalur nýttur til orku­fram­leiðslu væri lík­legt að verð­mæti Inn­sta­dals myndu aukast, sér­stak­lega í ljósi nálægðar svæð­is­ins við höf­uð­borg­ar­svæðið og þar með auk­ins fágætis sam­fara fækkun aðgengi­legra og lítt raskaðra úti­vist­ar­svæða. „Vegna sam­legð­ar­á­hrifa ber því að skoða ráð­stöfun Inn­sta­dals í sam­hengi við afdrif Þver­ár­dals. Af þessum sökum telur verk­efn­is­stjórn 3. áfanga ekki rétt­læt­an­legt að ráð­stafa báðum þessum virkj­un­ar­kostum án þess að leggja nýtt mat á þau áhrif sem ráð­stöfun ann­ars svæð­is­ins hefur á verð­mæti hins.“ Verk­efn­is­stjórn taldi sér­stöðu Inn­sta­dals einnig meiri, m.a. vegna þess að um hann liggur fjöl­farin göngu­leið á Hengil­inn.

[links]Kjarninn hefur und­an­farið fjallað um til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar í ljósi þess að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er að finna lof­orð um að lokið verði við afgreiðslu hans. Því er hins vegar bætt við, í sömu setn­ingu, að kostum í bið­flokki verði fjölgað. Frekari útskýr­ingar hafa stjórn­völd ekki gefið á hvað standi til og spurn­ingum Kjarnans til umhverf­is­ráð­herra hefur enn ekki verið svarað.

Vegna óvissunnar hafa vaknað spurn­ingar um hvernig afgreiðsla til­lög­unnar verði. Að fjölga kostum í bið­flokki getur aðeins þýtt tvennt: Að kostir verði færðir úr annað hvort vernd­ar­flokki eða nýt­ing­ar­flokki í þann flokk. Nema að hvort tveggja sé. Hægt er að hreyfa við flokk­un­inni svo lengi sem Orku­stofnun hefur ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki eða svæði í vernd­ar­flokki hafi verið frið­lýst.

Í stjórn­ar­sátt­mála var hins vegar einnig að finna lof­orð um a lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, þ.e. ramma­á­ætlun, verði end­ur­skoðuð „frá grunni til að tryggja ábyrga og skyn­sam­lega nýt­ingu og vernd orku­kosta á Íslandi“. Sérstök lög á svo að setja um nýt­ingu vind­orku með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera.

Markmið ramma­á­ætl­unar, þar sem fram­lagðir virkj­ana­kostir eru metnir í fag­hópum út frá ýmsum áherslum, er að leysa sem mest má úr ágrein­ingi í sam­fé­lag­inu um virkj­ana- og nátt­úru­vernd­ar­mál. Að for­gangs­raða öllum þeim virkj­ana­hug­myndum sem eru uppi hverju sinni og flokka í ýmist orku­nýt­ingar-, bið­flokk eða vernd­ar­flokk.

Núgild­andi ramma­á­ætlun, 2. áfangi, var sam­þykktur á Alþingi í jan­úar árið 2013 fyrir nákvæm­lega níu árum síðan. Verk­efn­is­stjórnir næstu tveggja áfanga hafa þegar lokið störfum og stjórn þess fimmta þegar hafið störf.

[adspot]

Þessa flóknu stöðu, sem hefur orðið til þess að nú velta margir fyrir sér hvort til standi að „rífa upp“ til­lögu að þriðja áfanga í þing­legri með­ferð hennar, færa kosti milli flokka, eða hvort hún verði ein­fald­lega end­an­lega lögð til hliðar og ný lög sett til að takast á við fram­haldið, á rætur að rekja til stjórn­mál­anna.

Verk­efn­is­stjórnir hafa staðið við sitt, skilað sínu, þótt sú fjórða undir for­ystu Guðrúnar Pét­urs­dóttur hafi vegna óvissu um fyrri til­lögu og ólíkrar sýnar þáver­andi orku­mála­stjóra unn­ist tími til að ljúka loka­skýrslu sinni. Sú verk­efn­is­stjórn lagði aðeins fram drög að til­lögu að flokkun og ein­göngu nokk­urra þeirra sem Orku­stofnun skil­aði loks til stjórn­ar­innar eftir ítrek­aðar beiðnir.

Komi að fjórða ráðherranum

Stjórn­ar­slit hafa tvisvar sinnum orðið til þess að ekki tókst að afgreiða til­lögu að þriðja áfanga á þing­inu. Þriðja rík­is­stjórnin, fyrsta rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sat heilt kjör­tíma­bil og á því var til­lagan tvisvar sinnum lögð fram en ekki afgreidd.

Nú er því komið að fjórða umhverf­is­ráð­herr­anum, Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, sem einnig er ráð­herra orku­mála, að leggja hina fimm ára gömlu til­lögu fram og hefur dag­ur­inn 31. mars verið val­inn til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár