Segja „fullyrðingar“ Landverndar „ekki svaraverðar“

Stofn­anir, sam­tök og ein­stak­lingar vilja vita hvernig Arctic Hydro komst að þeirri nið­ur­stöðu að áformuð Geit­dals­ár­virkjun yrði 9,9 MW að afli, rétt undir þeim mörkum sem kalla á ítar­lega með­ferð í ramma­á­ætlun.

Fossaröð í Geitdalsá í Leirudal skammt neðan við áformað miðlunarlón. Rennsli í fossunum mun skerðast með tilkomu virkjunar.
Fossaröð í Geit­dalsá í Leirudal skammt neðan við áformað miðl­un­ar­lón. Rennsli í foss­unum mun skerð­ast með til­komu virkj­unar. Mynd: Andrés Skúlason

„Full­yrð­ingar sam­tak­anna um að áformin valdi eyði­legg­ingu á víð­ernum og nátt­úru og séu ávísun á erf­iðar deilur eru ekki svara­verðar.“

Þetta kemur fram í við­brögðum for­svars­manna Geit­dals­ár­virkj­unar ehf. við umsögn Land­verndar á mats­á­ætlun fyrir sam­nefnda virkjun sem áformuð er í Múla­þingi. Mats­á­ætlun, sem er eitt skref í umhverf­is­mati fram­kvæmda, var lögð fram til kynn­ingar síð­asta vetur. Umsagnir bár­ust frá fjöl­mörgum stofn­unum, sam­tökum og ein­stak­lingum þar sem ítrekað var m.a. mik­il­vægi marg­vís­legra rann­sókna á hinu fyr­ir­hug­aða virkj­ana­svæði, rann­sókna sem eru lyk­il­at­riði í því að varpa ljósi á þau umhverf­is­á­hrif sem af virkj­un­inni myndu hljót­ast. Bent var á að meta þyrfti vot­lendi sem yrði fyrir áhrifum, fossa og óbyggð víð­erni – allt fyr­ir­bæri sem njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum og má ekki raska nema að brýna nauð­syn beri til.

[adspot]

Geit­dals­ár­virkjun ehf. er alfarið í eigu Arctic Hydro hf. Það félag er skráð í eigu sex aðila og á Quadran Iceland ehf. (nú Qair Iceland), sem áformar fjöl­mörg vind­orku­ver vítt og breitt um landið, stærstan hlut eða 38 pró­sent. Stjórn­ar­for­maður þess er Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í tíð Geirs H. Haarde.

Adira Hydro á 23 pró­sent í Arctic Hydro og Snæból, fjár­fest­inga­fé­lag Stein­unnar Jóns­dóttur og Finns Reyrs Stef­áns­sonar, á 18 pró­sent.

Tíu pró­senta hlutur Arctic Hydro er svo í eigu Hængs ehf. Það félag er að fullu í eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar, frænda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Samkvæmt mats­á­ætlun yrði Geit­dals­ár­virkjun 9,9 MW, rétt undir 10 MW mörk­unum sem hefði þýtt að kost­ur­inn yrði að fara í ferli ramma­á­ætl­unar.

[links]Í umsögn Land­verndar kemur fram að umrædd áform sýni fram á mik­il­vægi þess að breyta við­miðum svo fram­kvæmda­að­ilar kom­ist ekki upp með að ráð­ast í jafn stór­tækar virkj­un­ar­fram­kvæmdir og hér um ræði án umfjöll­unar fag­hópa og verk­efn­is­stjórnar um ramma­á­ætlun. Benda sam­tökin á að ef af fram­kvæmdum verði, séu auknar líkur á enn frek­ari fram­kvæmdum á svæð­inu þar sem fyr­ir­tækið hyggi jafn­vel á stækkun Geit­dals­ár­virkj­unar á síð­ari stigum. Benda sam­tökin á að þessi áform séu ekki ein­göngu „ávísun á eyði­legg­ingu verð­mætra víð­erna og nátt­úru“ heldur séu þau einnig „ávísun á erf­iðar deilur sem spilla munu sam­heldni og friði í aðliggj­andi sam­fé­lögum“.

Líkt og lög og reglur gera ráð fyrir gefst fram­kvæmda­að­ila færi á að bregð­ast við umsögnum við mats­á­ætlun áður en Skipu­lags­stofnun gefur út álit sitt á áætl­un­inni. For­svars­menn Geit­dals­ár­virkj­unar benda í svari sínu við þessum athuga­semdum Land­verndar á að í umhverf­is­mats­skýrslu verði nán­ari grein gerð fyrir því hver end­an­leg stærð og afköst virkj­un­ar­innar koma til með að verða. „Fram­kvæmd­ar­að­ili hefur enga skoðun á sýn Land­verndar til við­miða ramma­á­ætl­unar.“

Land­vernd er ekki eini umsagn­ar­að­il­inn sem bendir á þá afl­stærð virkj­un­ar­á­for­manna. Það gerir Orku­stofnun einnig. Í umsögn hennar er bent á að ekki liggi fyrir hvaða for­sendur liggi að baki reikn­ingum á virkj­uðu rennsli sem geti leitt til 9,9 MW virkj­unar. Í næsta skrefi umhverf­is­mats þurfi að fjalla um rennsli, miðlun og fyr­ir­hug­aðar veitur. Jafn­framt veltir stofn­unin því upp hvort rekstr­ar­að­ili hafi reiknað kosti og galla auk­innar fram­leiðslu­getu.

Í svörum for­svars­manna Geit­dals­ár­virkj­unar segir að orku­getu­reikn­ingar verði byggðir á rennsl­is­röðum til árs­ins 2018 og að í umhverf­is­mats­skýrslu verði gerð nán­ari grein fyrir öllum for­sendum að baki áformunum.

Geit­dalsá á upp­tök sín í lækjum og tjörnum á hálend­inu upp af Ham­ars­dal og Fossár­dal vestan Ódáða­vatna, í jaðri svæðis sem nefn­ist Hraun. Hún rennur til norð­urs, á köflum í gegnum gljúfur og í fossa­röðum, og á þess­ari leið falla í hana margar þverár og lækir.

Mest af vatni Geit­dalsár kemur úr Leiru­dalsá, á sem rennur í gegnum nokkur stöðu­vötn á leið sinni úr vestri. Tvö þess­ara vatna munu fara undir miðl­un­ar­lón verði áform fyr­ir­tæk­is­ins að veru­leika.

Tvær stíflur yrðu reistar, önnur við miðl­un­ar­lón í Leirudal, lón sem yrði í rúm­lega 700 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og um þrír fer­kíló­metrar að stærð. Stíflan sú yrði 1 kíló­metri að lengd og mesta hæð hennar 18 metrar. Önnur stífla vegna inn­takslóns yrði gerð í far­vegi Geit­dalsár. Hún er áætluð um 300 metrar að lengd og mesta hæð hennar yrði 32 metrar.

[adspot]

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Aust­ur­lands (NAUST) benda í umsögn sinni á að Geit­dals­ár­virkjun sé ein­ungis ein af þeim virkj­unum sem áætluð sé á svæð­inu og segja, líkt og Land­vernd, að auki þess íhugi fram­kvæmda­að­ili stækkun hennar. Því sé brýnt að víð­tæk skoðun verði gerð á þeim fyr­ir­ætl­unum um raf­orku­fram­leiðslu sem uppi eru og umhverf­is­á­hrif þeirra á svæðið skoðuð heild­stætt.

Fram­kvæmda­að­il­inn svarar því til að önnur virkj­un­ar­á­form séu enn á rann­sókn­ar­stigi „og ekki vitað hvort og þá hvenær umhverf­is­á­hrif þeirra verði skoðuð.

NAUST segja brýnt að skoða sam­fé­lags­leg áhrif fram­kvæmd­anna. Lausleg könnun leiði í ljós að drjúgur meiri­hluti íbúa sé andsnú­inn frek­ari virkj­unum. Eina svar fram­kvæmda­að­ila við þessu er að ítreka að í umhverf­is­mats­skýrsl­unni verði lagt mat á sam­fé­lags­leg áhrif.

Land­erf­ingjar í Skriðdal benda í umsögn sinni á að Fljóts­dals­hérað sé senni­lega meðal þeirra sveit­ar­fé­laga sem búi við hvað trygg­ustu afhend­ingu raf­orku, þar sem upp­sett afl raf­orku­vera sé um 720 MW. Með áfram­hald­andi upp­bygg­ingu raf­orku dreifi­kerf­is­ins, t.a.m. með Kröflu­línu 3, muni öryggi afhend­ingar aukast enn frekar og því draga þeir raun­veru­lega þörf fyrir Geit­dals­ár­virkjun í efa.

For­svars­menn Geit­dals­ár­virkj­unar svara þessu ein­fald­lega með því að í umhverf­is­mats­skýrslu verði gerð nán­ari grein fyrir áhrifum virkj­unar á fram­boð, öryggi og gæði raf­orku á svæð­inu.

Segja öll áhrif rennslisbreytinga afturkræf

Pétur Heim­is­son, sem seg­ist þekkja vel til svæð­is­ins og fara þar reglu­lega um, segir í umsögn sinni að áhrif Geit­dals­virkj­unar yrðu óaft­ur­kræf, enda ekki hægt að snúa áhrifum slíkra fram­kvæmda til baka og „end­ur­lífga fossaraðir“.

„Áhrif fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar á fossa verða metin í umhverf­is­mats- skýrslu,“ segir í við­brögðum virkj­un­ar­að­il­ans. „Hér skal þó tekið fram að öll áhrif rennsl­is­breyt­inga eru aft­ur­kræf og því ekki rétt með farið í þess­ari athuga­semd.“

Pétur minnir einnig á að nátt­úran eigi sinn til­vistar­rétt og með virkjun yrði líf­ríki svæð­is­ins raskað með ófyr­ir­séðum afleið­ingum. Fram­kvæmda­að­il­inn segir ljóst að ákvörðun um að heim­ila virkj­un­ina verði tekin á grund­velli „ítar­legra gagna og yfir­grips­mik­illar þekk­ingar“. Ófyr­ir­sjá­an­legar afleið­ingar verði því að telj­ast ólík­legar.

Guð­mundur Ármanns­son og Gréta Ósk Sig­urð­ar­dóttir, bændur að Vaði í Skriðdal, vekja athygli á því að um 80 pró­sent af allri raf­orku fram­leiddri hér á landi fari til stór­iðju. Þeir sem áhuga hafi á að taka til sín sem flestar ár til raf­orku­fram­leiðslu séu vit­an­lega ein­göngu að hugsa um eigin fjár­hag. Það sé með öllu ólíð­andi að slíkir hafi frjálsan aðgang að nátt­úru lands­ins. Lofts­lags­váin vomi yfir og ekki sé hægt að „halda partí­inu áfram“. Vatns­afls­virkj­anir og umfram fram­leiðsla raf­orku eigi ekki að vera næsta mál á dag­skrá.

Að 80 pró­sent raf­orku fari til stór­iðju má líta á sem fram­lag Íslands til minni koltví­sýr­ingslos­unar og þar með lofts­lags­vár­innar, segir í svörum virkj­un­ar­að­il­ans, þar sem um sé að ræða iðnað sem að öðrum kosti yrði rek­inn ann­ars staðar með orku sem losar marg­falt magn koltví­sýr­ings.

Afar langsótt að bera saman við Kárahnjúkavirkjun

Guð­mundur og Gréta segja stríð hafa geisað milli fólks fyrir austan á tímum Kára­hnúka­fram­kvæmd­anna. Margir hafi flutt burt og tengsl vina, nágranna og fjöl­skyldna rofnað. Það gefi auga leið að allt tal um að nú eigi að blása í her­lúðra að nýju, eyði­leggja frið­sam­lega sam­búð í litlum sam­fé­lögum, veki upp ugg og skelf­ingu.

„Hér verður ekki lagt mat á „stríðið“ sem Guð­mundur og Gréta kalla að hafi ríkt meðan á fram­kvæmdum stóð við Kára­hnjúka­virkjun,“ segir í svörum Geit­dals­virkj­unar ehf. „Þó skal það tekið fram að það er afar lang­sótt að ætla að bera fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir vegna Geit­dals­ár­virkj­unar saman við fram­kvæmdir við Kára­hnjúka­virkjun.“

Ekki tímabært að leggja mat á hvort virkjun sé réttlætanleg

Ingi­björg Jóns­dóttir, Jónína Zophoníasdóttir og Einar Hró­bjartur Jónsson telja enga ríka almanna­hags­munir í húfi né orku­þörf sem rétt­læti það rask sem myndi eiga sér stað á fossum svæð­is­ins. Fram­kvæmda­að­il­inn svarar því til að áhrif rennsl­is­breyt­inga virkj­un­ar­innar á fossa verði metin en að á þessu stigi sé „ekki tíma­bært að leggja mat á hvort þau áhrif séu rétt­læt­an­leg“.

Þre­menn­ing­arnir hvetja Skipu­lags­stofnun til að hafna mats­á­ætl­un­inni þar sem ekki sé hægt að rétt­læta bygg­ingu Geit­dals­ár­virkj­unar á nokkurn hátt.

„Í þessu sam­hengi skal á það bent, að nið­ur­stöður umhverf­is­mats liggja ekki fyrir,“ svarar fram­kvæmda­að­ili. Í umhverf­is­mats­skýrslu verði nið­ur­stöður rann­sókna og mat áhrifa, byggt á þeim, sett fram. „Út frá þeim nið­ur­stöðum verður skoðað hvort umhverf­is­á­hrifin telj­ist rétt­læt­an­leg.“

Álit Skipu­lags­stofn­unar á mats­á­ætlun Geit­dals­virkj­unar ehf. er í vinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arctichydro

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár